Fréttablaðið


Fréttablaðið - 04.08.2022, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 04.08.2022, Qupperneq 6
Þetta hraun er ekki að fara neitt langt en við vitum það betur á morgun. Þorvaldur Þórðarson, eldfjallafræðingur 24. febrúar 2021 2022 Skjálfti af stærðinni 5,7 skók Reykjanesskaga og markaði upp- haf jarðskjálftahrinu á svæðinu. Stiklað á sögu gosanna Heildartala mældra skjálfta frá upphafi hrinunnar náði fjórtán þúsundum. Veðurstofan staðfesti að gosórói hefði mælst á Reykjanesi. Skjálftavirknin færðist í aukana og fulltrúar almannavarna- deildar Ríkislögreglustjóra, Veðurstofunnar, Lögreglunnar á Suðurnesjum og Grindavíkur- bæjar hittust á næturfundi til að ræða stöðuna. Eldgos hófst í Geldingadölum við Fagradalsfjall. Eldgosið í Geldingadölum varð langlífasta gos á 21. öld. Síðasta hraunið flæddi úr gosinu. Veðurstofan lýsti gosinu lokið þar sem þrír mánuðir voru liðnir frá síðasta hraunflæði. Jarðskjálftahrina hófst á Reykjanesi á ný og óvissustigi almannavarna var lýst yfir. Eldgos hófst í Merardölum. Kvikuflæði úr nýja gosinu í Meradölum er talið margfalt meira en í gosinu sem stóð í Geldingadölum í sex mánuði í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR 2. m ar s 3. mars 7. m ar s 19. mars 16. september 18. september 18. desember 30 . j úl í 3. ágúst Hafið var að reisa varnargarð í Nátthaga til að hægja á flæði hraunsins. 25. júní 7. jú lí Glóð sást í gígnum eftir um tveggja sólarhringa hlé. 17. ágúst Nýr gígur myndaðist tímabundið við hlið hins gamla. Eldfjallafræðingar segja enga hættu steðja að mannvirkjum á næstunni að minnsta kosti vegna eldgoss í Meradölum. ragnarjon@frettabladid.is gar@frettabladid.is ELDGOS Margmenni dreif sig í gær í átt að gosstöðvunum í Meradal til að fylgjast með stórkostlegu sjónar- spili sem þar er hafið að nýju. Tæpir tíu mánuðir eru liðnir frá því að eldgosinu í Geldingadölum lauk eftir um hálfs árs gostímabil. Eftir harða jarðskjálftahrinu dag- ana á undan braust kvika loks upp á yfirborðið að nýju, að þessu sinni í gilskorningi í Meradölum, nokkru norðar en gosstaðurinn í fyrra var. Þorvaldur Þórðarson eldfjalla- fræðingur var í Meradölum þegar Fréttablaðið ræddi við hann undir kvöld í gær. „Ég er bara hérna við gíginn,“ svaraði Þorvaldur spurður hvort hann væri mættur á svæðið. Sagði hann gilskorninginn þar sem nú gýs hafa verið dýpri áður en gaus í fyrra. „Þessi gilskorningur mun fyllast tiltölulega f ljótt,“ sagði Þorvaldur og tók þannig í sama streng og eld- fjallafræðingurinn Ármann Hösk- uldsson sem Fréttablaðið ræddi einnig við í gær. „Eftir það er spurn- ing hvort hraunið renni í suður í átt að Meradölum og þá hvort það nær að komast upp úr þar og áfram niður úr,“ sagði Þorvaldur. „Staðsetningin er þannig að gosið þyrfti að standa yfir í langan tíma svo það gæti farið að teygja sig í ein- hverja innviði sem skipta máli. Sem betur fer,“ bætti Þorvaldur við „Ef hraunið kemst út héðan, þá þarf það að byggja sig upp töluvert til þess að komast yfir hæðina. Þetta hraun er ekki að fara neitt langt en við vitum það betur á morgun [í dag].“ Talsvert af fólki var á gosstöðvun- um í gær og töldu björgunarsveitir vera yfir þúsund manns þar seinni partinn. „Það er töluvert af fólki hérna og eykst bara jafnt og þétt,“ sagði Þorvaldur sem kvað hópinn vera dreifðan um svæðið. Á fundi hjá Almannavörnum í gær var bent á að gönguleiðin að gosstöðvunum væri talsvert lengri en að svæðinu í fyrra og að auki grýtt. Fólk þyrfti að vera vant og vel búið í slíka göngu. Auk þess þyrfti að vera á varðbergi vegna gass frá eldstöðinni. Ítrekaði Þorvaldur að betur muni sjást í dag hver þróunin verði. „Eins og ég segi; ef það kemst upp á hraunbeðurnar frá 2021 sem eru Hugsa sér gott til glóðarinnar en fólk varað við grýttri leið Gossprungan var tvö- til þrjú hundruð metrar í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Göngufólk lagði strax leið sína að nýja gosinu í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON BRINK í Meradölum þá fer það í þá áttina. Þá tekur það dágóðan tíma að fylla Meradalina. En varðandi að þetta byggi sig upp og stefni í norður, það er líka töluvert í það,“ sagði Þor- valdur sem kvað enga stórhættu á ferðum. „Það er dalverpi þarna í norðurátt sem það þarf að fylla fyrst. En gosið yrði að standa í dágóðan tíma og tekur eflaust vikur, ef ekki mánuði, áður en við förum að sjá einhverja mögulega hættu gagnvart inn- viðum. En það er líka miðað við að gosið haldi áfram eins og það er og það verði engar breytingar,“ undir- strikaði eldfjallafræðingurinn. Í gær gaus á sprungu sem var um þrjú hundruð metrar. „Væntanlega dregur hún sig eitthvað saman eins og síðast og myndar kannski tvo gíga,“ sagði Ármann Höskuldsson. n ELDGOS Í MERADÖLUM FRÉTTABLAÐIÐ 4. ágúst 2022 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.