Fréttablaðið - 04.08.2022, Side 8

Fréttablaðið - 04.08.2022, Side 8
 Betur borgandi ferða­ menn eru ágætir en þeir kosta líka meira og það hefur áhrif á kostnað fyrirtækjanna að sinna þeim. Ég hef lengi talað fyrir því að draga þurfi úr opinberu eignarhaldi á íslenska fjarskipta­ markaðnum. Skarphéðinn Berg Steinars- son ferðamálastjóri var gestur í sjónvarpsþættinum Markaðinum sem sýndur var á Hringbraut í gær. Hann segir að endurreisn ferðaþjón- ustunnar sé hafin og að við ættum að forðast að einblína eingöngu á þá ferðamenn sem eyða meiru og dvelja lengur. magdalena@frettabladid.is Fjölbreytileikinn er einn helsti styrkleiki ferðaþjónustunnar á Íslandi og ekki er æskilegt að ein- blína eingöngu á þá ferðamenn sem dvelja lengur og eyða meiru. Þetta sagði Skarphéðinn Berg Steinarsson ferðamálastjóri í sjón- varpsþættinum Markaðinum sem sýndur var á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í gær. „Dreifing á þjóðernum og dreifing á tegund ferðamanna er góð og við eigum að einblína á það. Þegar það verður samdráttur eða eitthvað sem hefur áhrif á eftirspurn í ferða- þjónustu á okkar markaðssvæðum þá er gott að hafa fleiri markaði til að ganga að,“ segir Skarphéðinn og bætir við að mikilvægt sé að huga að langtíma stefnumörkun fyrir ferða- þjónustuna. „Betur borgandi ferðamenn eru ágætir en þeir kosta líka meira og það hefur áhrif á kostnað fyrir- tækjanna að sinna þeim. Það þarf sérhæfð fyrirtæki til að sinna þeim og þetta eru ferðamenn sem eru með aðrar neysluvenjur og annað ferðamynstur en aðrir ferðamenn. Þeir eru líka oftar að breyta ferða- plönunum þannig ég held að það sé ekki nein allsherjar lausn á okkar málum að einblína á þá.“ Skarphéðinn segir að ljóst sé að endurreisn ferðaþjónustunnar sé hafin. Sumarið hafi gengið vel í greininni og vísbendingar séu um að tölurnar séu á pari við 2019. Ferðaþjónustan hafi með mikilli tekjustýringu náð að hækka verð þegar eftirspurnin tók við sér. „Það er spurning hvernig kostn- aðarliðurinn er að leika ferðaþjón- ustuna. Við erum að gera ráð fyrir því að fjöldi ferðamanna á þessu ári verði allavega ein og hálf milljón, sem er í samræmi við bjartsýnustu spár í upphafi árs.“ Skarphéðinn bætir við að ferða- þjónustan sé í raun komin á fullt skrið eftir tvö ár af heimsfaraldri. „Það er alltaf mikið högg fyrir atvinnugrein þegar allir kúnnarnir hverfa og allar tekjur þurrkast upp. Stjórnvöld komu að með öflugum hætti og fyrirtækin sýndu mjög mikinn sveigjanleika. Þau gátu dregið úr kostnaði, sagt upp starfs- fólki, lokað og svo framvegis,“ segir Skarphéðinn og nefnir að með því móti búi fyrirtækin að þessum aðgerðum núna og því að hafa brugðist við með þessum hætti. Skarphéðinn segir að það sé hægt að vera bjartsýnn þegar kemur að ferðaþjónustunni og segist sann- færður um að hún eigi sín bestu ár eftir. „Ég held það sé ágætt að vera bjart- sýnn í þessum efnum. Við erum að koma út úr mjög góðu sumri. Eftir- spurnin er talsvert meiri en reiknað var með og vonandi að menn hafi náð að halda aftur af kostnaði. Það eru áskoranir í haust og vetur sem snúa að verðlagshækkunum og verð- bólgu í okkar markaðslöndum. Það er stríð í Úkraínu svo það er spurning hvort það verði strúktúrbreyting á ferðavenjum fólks.“ Skarphéðinn segir jafnframt að þegar heimsfaraldurinn reið yfir þá hafi ýmislegt setið á hakanum. „Umhverfismálin eru stóru málin sem sátu á hakanum í Covid. Það mál hefur ekkert farið frá okkur.“ Í þættinum var auk þess rætt um nýsköpun í ferðaþjónustu, hlutverk Ferðamálastofu, hvað stjórnvöld geta gert til að bæta rekstrarum- hverfi ferðaþjónustufyrirtækja og fleira. ■ Segir að fjölbreytileikinn sé einn helsti styrkleiki ferðaþjónustunnar Skarphéðinn segir að ferðaþjónustan sé komin á fullt skrið eftir tvö ár af heimsfaraldri. SKJÁSKOT/HRINGBRAUT Að byggja upp „start­ up“ fyrirtæki síðustu ár hefur verið einstaklega krefjandi verkefni. Nám: Ég er útskrifaður BSc í tölvunar- fræði frá HR. Störf: Ég er fæddur og uppalinn í sveit og byrjaði að vinna kornungur við sveitastörf. Fyrir fermingu fór ég að vinna með föður mínum við uppskipun á fiski á bryggjunni á Sauðárkróki enda stutt að fara úr sveitinni sem er norðan við Sauðárkrók. Á unga aldri vann ég þá vinnu sem bauðst, þar til ég flutti suður í skóla. Síðan 1996 hef ég unnið við hugbúnaðargerð, bæði hérlendis sem og erlendis. Tuttugu árum síðar, 2016, stofn- uðum ég og konan mín fyrirtækið Crossing the line ehf. og höfum stýrt því fram á þennan dag. Fjölskylduhagir: Ég er kvæntur Laufeyju Dóru Wilhelmsdóttur. Ég á son og tvær dætur úr fyrri samböndum og Laufey á eina dóttur. Guðmundur Jón Halldórsson, framkvæmdastjóri og stofnandi Crossing the line, hefur gaman af hjólreiðum og útiveru. Hann segir það hafa verið einstaklega krefjandi verkefni að byggja upp nýsköpunarfyrirtæki. Hver eru þín helstu áhugamál? Hjólreiðar og útivera, sveppa- og hamprækt, vísindi og heimspeki. Hvaða bók hefur haft mest áhrif á þig? Það eru margar bækur sem hafa haft mikil áhrif á mig og má þar nefna „East of Eden“ eftir John Steinbeck, „Leitin að tilgangi lífsins“ eftir Viktor Frankl og „Sapiens“ eftir Yuval Noah Harari. Hver hafa verið mest krefjandi verkefnin á undanförnum miss- erum? Að byggja upp „startup“ fyrir- tæki síðustu ár hefur verið einstak- lega krefjandi verkefni. Við erum staðsett bæði hérlendis og erlendis. Verkefnin hafa verið fjölbreytt, allt frá sveppa- og hamprækt á tilraunabúi í Eyjafirði yfir í fjár- tæknilausnir. Afrakstur af þessari miklu vinnu eru lausnirnar Open banking og Open finance. Mark- mið fjártæknilausnanna er að gefa fyrirtækjum aðgang að sýndarfjár- málastjóra og sýndarbókara sem í sameiningu einfalda reksturinn, lækka kostnað ásamt því að segja þér ef það eru vandamál í rekstri og hvernig á að leysa þau. Hvaða áskoranir eru fram undan? Stóra áskorunin fram undan er að koma okkar fjártæknilausnum á erlendan markað, sem verður bæði erfitt og skemmtilegt. Hvar sérðu þig eftir 10 ár? Að ferðast og njóta lífsins. Ef þú þyrftir að velja annan starfs- frama, hvað yrði fyrir valinu? Eðlisfræði hefur ávallt heillað mig, upphaflega ætlaði ég þá leið í gegnum lífið. Stjarneðlisfræði yrði fyrir valinu. Hver er uppáhaldsborgin þín? Belgrad hefur upp á að bjóða mikla og skrautlega sögu og hefur verið í uppáhaldi hjá mér síðan ég kom þangað fyrst. ■ Vinnur að því að koma fjártæknilausnum á erlendan markað ■ Svipmynd Guðmundur Jón Halldórsson Guðmundur segir að borgin Belgrad sé í miklu uppáhaldi hjá honum. MYND/AÐSEND magdalena@frettabladid.is Opinber rekstur er of mikill á íslenskum fjarskiptamarkaði að mati Orra Haukssonar, forstjóra Símans. Orri var gestur í sjónvarps- þættinum Markaðinum sem sýndur var á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í gær. „Ég hef lengi talað fyrir því að draga þurfi úr opinberu eignarhaldi á íslenska fjarskiptamarkaðnum og að virkja mætti kraft í gegnum einkafjármagnið í þeim geira,“ segir Orri og bætir við að Gagna- veita Reykjavíkur, sem nú heiti Ljósleiðarinn, hafi lýst því yfir að félagið sé að skoða að fara í hluta- fjáraukningu. „Ég vona að sú hlutafjáraukning verði ekki frá opinberum aðilum eins og hingað til.“ Orri segir að ESA hafi bent á að þeir brjóti ríkis- styrktar reglur EES-samningsins og að það sé ámælisvert. Í þættinum var einnig rætt um sölu Símans á Mílu til franska sjóða- stýringarfyrirtækisins Ardian og ákvörðun Samkeppniseftirlitsins að hleypa ekki viðskiptunum í gegn án skilyrða. Þá var auk þess rætt um innleiðingu 5G og hvað sé fram undan hjá Símanum. ■ Segir að draga þurfi úr opinberu eignarhaldi Orri Hauksson, forstjóri Símans. 8 Fréttir 4. ágúst 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMARKAÐURINN FRÉTTABLAÐIÐ 4. ágúst 2022 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.