Fréttablaðið


Fréttablaðið - 04.08.2022, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 04.08.2022, Qupperneq 10
n Halldór n Frá degi til dags ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jón Þórisson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@ frettabladid.is , Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is . Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is VEFSTJÓRI: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Guðmundur Gunnarsson ggunnars@frettabladid.is, HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Flugið er hvað við- kvæmast fyrir þess- um breyt- ingum, enda eru tveir helstu flugvellir landsins á áhrifa- svæði þessara eldsum- brota. Hugur minn og annarra lands- manna er hjá þeim sem búa næst eldsum- brotunum. Sigmundur Ernir Rúnarsson ser @frettabladid.is Sigríður Hagalín Björnsdóttir hefur í skáldsögum sínum skotið lífinu sjálfu ref fyrir rass að því leyti að svo virðist sem lífið hafi líkt eftir listinni, fyrst með veirunni í Eylandi og síðan með eldsumbrotum á Reykjanesi í Eldunum. Í upphafi bókarinnar Eldarnir – ástin og aðrar hamfarir, vitnar hún í bók Freysteins Sigmundssonar, Magnúsar Tuma Guðmundssonar og Sigurðar Steinþórssonar þar sem talað er um að bræðslusvæðið í möttlinum þar sem bergkvikan myndast sé eins konar eldhjarta Íslands. Við höfum á síðustu misserum fundið vel fyrir kraftinum sem býr í þessu eldhjarta landsins, krafti sem er bæði skapandi og eyðileggjandi. Og nú er eldgos hafið að nýju á svipuðum slóðum og í fyrra. Um leið og við eigum tilvist landsins okkar eldsumbrotum að þakka þurfum við að búa okkur undir það versta en vona um leið það besta. Ríkis­ stjórnin hefur frá því óróinn á Reykjanesi hófst verið með puttann á púlsinum. Við erum við öllu búin með okkar færustu vísindamenn, sem eru í hópi færustu vísindamanna heimsins á þessu sviði, til ráðgjafar í samvinnu við Almannavarnir og heimamenn. Fólk hefur skiljanlega áhyggjur við þær aðstæður sem eru uppi. Við vorum heppin að eldgosið í Geld­ ingadölum var máttlítið. Við vorum þegar það gos hófst reiðubúin að ryðja upp varnargörðum til að vernda Suðurstrandarveg en ekki kom til þess. Og við erum viðbúin að verja eins og kostur er vegi til og frá byggðinni á Reykjanesi eftir því sem gosinu vindur fram. Síðustu ár hefur einnig verið unnið að því að byggja upp varaflugvelli á Egilsstöðum og Akureyri auk þess sem tilvist Reykjavíkurflugvallar hefur verið varin. Hugur minn og annarra landsmanna er hjá þeim sem búa næst eldsumbrotunum. Það er erfitt að búa við slíkt og mikið álag á börn og fullorðna. Við þau vil ég segja að svæðið er vaktað eins og hægt er og brugðist verður við því sem verður af öllum þeim krafti sem samfélagið býr yfir. n Eldhjarta Íslands Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra  ser@frettabladid.is Flug og gos Auðvitað er Ísland stórasta land í heimi þegar kemur að kenjum náttúrunnar. Aftur og endur­ tekið getur þetta land elds og ísa boðið upp á flug og gos. Og ekkert annað land í heiminum er í færum til þess að beina alþjóðafluginu til landsins með jafn skýrum hætti og að fljúga fram hjá eldglæringum í sjálfri lendingunni. Heita má að braut­ arljósin komi upp úr jörðinni. Þar af leiðandi eru jarðeldarnir í göngufæri frá flugstöðinni, aftur og nýbúið, en vörumerki af þessu tagi í ferðaþjónustunni getur bara ekki klikkað. Fögnuður Grindvíkingar héldu upp á gærdaginn með kökutertum og öðru kruðeríi, enda ángskotans skjálftahrinan að baki sem haldið hefur fyrir þeim vöku svo sólarhringunum skiptir. Ber nú nýrra við í þeirra lífi með hæg­ fljótandi gosi sem lullar sína leið í Meradölum. En þeir vita líka hvaða afleiðingar það hefur fyrir bæjarlífið. Vart verður sofið fyrir drynjandi þyrluhljóðum yfir bænum næstu vikurnar, jafnvel mánuði, ef ekki ár, en þess utan verður bærinn svo yfirfullur af ferðamönnum, íslenskum og erlendum, að heimamönnum verður fyrirmunað að ferðast um eigin bæ. Voru skjálftarnir þá skárri? n Eldgosahrinan sem hafin er á Reykja­ nesskaga er bæði lítil áminning og stór. Hún er lítil að því leyti að jarð­ eldarnir hafa til þessa logað á einstak­ lega heppilegu svæði, svo mjög raunar að hægt er að kalla þá þægilegt ferðamannagos í göngufæri frá þjóðleiðinni um suðurströnd. En hún er stór í öðru tilliti, einkum og sér í lagi hvað varðar innviði landsins, f lugvelli, þjóðvegi og raflínur, enda bendir endurtekin eldvirkni til þess að nýtt og langvarandi gos­ tímabil sé hafið á suðvesturhorni landsins þar sem mestur hluti landsmanna býr og megin­ hluta opinberrar þjónustu er að finna. Enda þótt engin ástæða sé til að fara á taugum á meðan jarðeldarnir eru staðbundnir og geta vart eða ekki valdið skaða á mannvirkj­ um, hvað þá að fólki standi hætta af þeim, er full ástæða til að endurmeta framtíðarskipu­ lagið á fjölmennasta byggðasvæði Íslands. Ef til vill er of mikið sagt að þar hafi orðið forsendubrestur, en breytingin er augljós og áhrifin af henni munu að öllum líkindum vara lengi. Flugið er hvað viðkvæmast fyrir þessum breytingum, enda eru tveir helstu flugvellir landsins á áhrifasvæði þessara eldsumbrota, en þau geta, samkvæmt rannsóknum vísinda­ manna, teygt sig allt frá hafsvæðinu vestan Reykjanestáar og austur fyrir Bláfjöll, á milli fimm virkra belta, sem nú eru vöknuð af átta hundruð ára dvala. Af sjálfu leiðir að hugmyndir yfirvalda um uppbyggingu innanlandsflugs í Hvassa­ hrauni eru í besta falli í uppnámi. Fyrir vikið er Reykjavíkurflugvöllur líklega að festa sig áfram í sessi, enda virðist ekki hægt að setja niður nýjan völl fyrir norðan borgina af veður­ farslegum ástæðum. En sömuleiðis verður að horfa til þess hvort miðstöð millilandaflugs á Miðnesheiði eigi bjarta framtíð fyrir sér á svæði sem verður lík­ lega virkasta eldfjallasvæði landsins á næstu árum og áratugum. Það yrði reiðarslag fyrir íslenskan efnahag ef alþjóðaflugið um Keflavíkurflugvöll myndi stöðvast um tíma, hvað þá til langframa. Meira og minna öll uppbygging ferðaþjónustunnar á síðustu árum hefur beinst að suðvesturhorn­ inu – og þar af leiðandi geta varaflugvellirnir á Akureyri og á Egilsstöðum ekki tekið við þeirri umferð nema að litlum hluta. Allt að öllu eru Íslendingar nú áminntir um afleiðingar þess að byggja upp alla meginþjón­ ustu landsins á einu horni landsins sem safna þar saman svo til allri þjóðinni. n Áhrif eldanna HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 4. ágúst 2022 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.