Fréttablaðið - 04.08.2022, Page 13
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
FIMMTUDAGUR 4. ágúst 2022
Nýja KFC-lína Hype þykir einkar
lífleg og töff. MYND/KFC/HYPE
thordisg@frettabladid.is
Hvern dreymir ekki um að klæðast
eitursvölum jakka myndskreyttum
brakandi stökkum kjúklinga-
leggjum frá KFC og skarta derhúfu
í stíl? Allt getur það nú ræst því
bandaríski kjúklingarisinn KFC
hefur kynnt til sögunnar eigin
tískufatnað í samstarfi við breska
lífsstílsmerkið Hype.
Fatalínan samanstendur af 47
flíkum og fylgihlutum, þar á meðal
hettupeysum, sólhöttum, jökkum,
bakpokum, toppum, t-bolum,
jogging-buxum, derhúfum og
úlpum.
Sagan, matseðlar og slagorð
Það sem fyllti hönnuði Hype anda-
gift við hönnun KFC-línunnar, sem
þykir einstaklega hressandi og
súpersvöl, var saga, matseðlar og
alþekkt slagorð KFC. Þá má nefna
derhúfur með áletruninni „Bargain
Bucket“ yfir í snjóhvíta kósígalla
með rauðletruðu slagorði KFC,
„Finger Lickin‘ Good“, á skálmum
og bol, sem og ofurtöff „vintage“
kappakstursjakka með ísaumuðu
skjaldarmerki KFC og fleira fínu.
Í tískulínu Hype má líka finna
skemmtilega fylgihluti, eins og
hvítar og rauðar KFC-töskur, sem
líta út eins og KFC-kjúklingafötur,
og sérstakar drykkjartöskur.
Fatalínan verður fyrst föl í vef-
verslun Hype, uk.justhype.com,
í dag, fimmtudaginn 4. ágúst, og
í verslun Hype á Carnaby Street
í Lundúnum. Þar verður mikið
húllumhæ og geta gestir skapað
sína eigin stuttermaboli með úrvali
mynda af matseðli KFC. n
Hipp og kúl KFC
Ég myndi lýsa verkunum mínum sem hráum, áberandi og djörfum, segir Þórunn Heba. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Keðjuverk sem
fjötra líkamann
Þórunn Heba Bjarnadóttir hefur vakið athygli
að undanförnu fyrir keðjur sem hún setur
saman í líkamslistaverk sem hægt er að klæð-
ast. Keðjurnar, skartið og fylgihlutina skapar
hún undir nafninu Habe – Chainwork. 2
B Ä S T A I T E S T
Bäst-i-Test 2022.s
e
BESTA
SÓLARVÖRNIN
7 ár
Í RÖÐ
Fæst í Apótekum, Hagkaup, Fríhöfninni
og víðar | nánar á evy.is og celsus.is