Fréttablaðið - 04.08.2022, Qupperneq 18
Arnar Gauti Sverrisson er öllum
hnútum kunnugur þegar kemur
að tískunni en hann hefur verið í
tísku og hönnunarbransanum til
fjölda ára og er reglulegur gestur á
skjáum landsmanna í þættinum
Sir Arnar Gauti á sjónvarpsstöð-
inni Hringbraut.
gummih@frettabladid.is
Það styttist óðum í haustið og það
er fróðlegt að fá Arnar til að spá
og spekúlera hvort eitthvað nýtt
og spennandi sé í vændum í heimi
karltískunnar.
„Haustið og veturinn er uppá-
haldstími okkar í karlatískunni.
Þá fáum við að draga fram þykkar
peysur, treflana og dúnvestin og
grófu skóna, sem er útlit sem við
erum alltaf öruggir með. Litir hjá
okkur herrunum eru mest dökkir
jarðlitir. Við erum ekkert að flækja
þetta of mikið,“ segir Arnar Gauti.
Spurður hvort tískan verði
frjálsleg eða í föstum skorðum á
komandi misserum segir Arnar:
„Ég tel að tískan í herrafatnaði
verði í frekar föstum skorðum í
haust og vetur.“
Sérðu eitthvað nýtt, hvað með
húfur og sixpensara?
„Það eru alltaf einhverjir straum-
ar og stefnur en við elskum klassík
eins og ,,Barbour“ jakka sem fara
með öllu og já, ég verð að segja að
sixpensarar hafa náð miklum vin-
sældum síðustu misseri.“
Stíllinn hefur ekki
breyst mikið með árunum
Ert þú duglegur að fylgja nýjum
tískulitum og hefur smekkur þinn
eitthvað breyst með aldrinum?
„Já, ég fylgist mjög vel með og
hef alltaf gert. Við hjónin ásamt
Ragnheiði og Bjarna, vinahjónum
okkar, rekum saman Kroll í
Kringlunni sem er kvenfataverslun
og erum mikið að velta fyrir okkur
vörumerkjum og tískunni í heild
sinni. Minn persónulegi stíll hefur
ekki mikið breyst með árunum. Ég
er alltaf jafn hrifinn af klassískri
fallegri hönnun sem er tímalaus,
eins og til dæmis Barbour vax-
jakkinn minn, sem er flík sem
verður bara fallegri með tímanum
og er alltaf tekinn fram í rigningu.
Ég er líka mjög hrifinn af denim
og annað vörumerki sem er í
algjöru uppáhaldi hjá mér er Ralph
Lauren þar sem í raun skiptir ekki
máli hvað þú ert að fara í. Það talar
allt saman svo fallega. Ég dýrka
að vera í denim gallaskyrtu og
gallabuxum og svo tweed-jakka
eða flauelsjakka yfir. Það er negla,“
segir Arnar Gauti.
Leyfðum okkur
að vera meira frjálslegir
Hafa íslenskir karlmenn tekið ein-
hverjum breytingum í fatavali og
í stíl?
„Já, bara yfir höfuð hafa þeir
verið mun opnari fyrir sínum per-
sónulega stíl í vali á fatnaði og fjöl-
breytileikinn er bestur. Við erum
það sem við klæðumst í karakter
mætti segja.“
En tók Arnar Gauti eftir ein-
hverju sem einkenndi fatastílinn í
heimsfaraldrinum?
„Eina sem kannski breyttist er að
við leyfðum okkur að vera meira
frjálslegir og kósí í klæðnaði. Ég tók
eftir mörgum mönnum í jakka-
peysum og þægilegum buxum
kannski, til að nefna eitthvað.“ n
Haustið og veturinn
uppáhaldstíminn
Arnar Gauti er öllum hnútum kunnugur þegar það kemur að tískunni MYND/AÐSEND
Tweed jakkarnir eu vinsælir og fást í mörgum mynstrum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Trefillinn er alltaf nauðsynlegur þegar hausta tekur. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Leyfum okkur að
vera meira frjáls-
legri og kósi í klæðum.
Við erum það sem við
klæðumst í karakter,
mætti segja.
6 kynningarblað A L LT 4. ágúst 2022 FIMMTUDAGUR