Fréttablaðið - 04.08.2022, Page 28
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Andrés Bertelsen andres@
frettabladid.is, Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar
Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK
OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is TÍMAMÓTA- OG
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Áttu Copenhell-hring?
Sveinn Waage
rokkhundur og
Eyjamaður með
meiru
„Ég vissi ekki af
þessum hring,
the one to rule
them all, en
hann væri klárlega freistandi,“
segir Sveinn Waage um Copen-
hell-hringinn sem stofnendur
þungarokkshátíðarinnar fengu
Jónas Breka Magnússon gullsmið
til þess að hanna og smíða.
Fréttablaðið greindi frá því í
gær að hringurinn hefði selst upp
á hátíðinni í Kaupmannahöfn í
lok júní þar sem Sveinn var svo
upptekinn við að njóta sín í botn
að tilvist rokkskartsins fór alveg
fram hjá honum.
„En já, ég var þarna eftir að hafa
þurft að fresta tvisvar. Ég elska
þessa hátíð. Ég fór á Copenhell
en ekki Þjóðhátíð. Segir það ekki
allt?“ spyr Sveinn, sem er annál-
aður Eyjamaður og sem slíkur
fastagestur í Herjólfsdal um
verslunarmannahelgar.
„Ég er reyndar búinn
með 40 plús Þjóð-
hátíðir en samt, það
var líka tveggja ára
hlé þar,“ segir Sveinn,
sem átti ekki heiman-
gengt síðustu helgi þar
sem hann var fastur við að
búa bílaplan undir steypu. Hann
sótti sér þó ráðlagðan rokk-
skammt á Lemmy á kvöldin.
Hann neitar því þó ekki að helg-
in hafi verið erfið og fráhvörfin
frá Eyjum hafi verið tilfinnanleg.
„Með Þjóðhátíð innprentaða í
DNA-ið finnur maður líkamlega
fyrir öllum hápunktunum í raun-
tíma.“ Framkvæmdirnar og smá-
skammtar af rokki á Lemmy hafi
því hrokkið skammt.
„Að sjá sitt fólk,
fjölskyldu og vini
skemmta sér konung-
lega í Dalnum var ljúf-
sárt en meira fallegt
og fyllti hjartað af ást
og stolti yfir fólkinu
og fallegu Eyjunni minni.“ n
n Lykilspurningin
FRÉTTAVAKTIN
KL. 18.30 ALLA VIRKA DAGA
Fréttavaktin býðum landsmönnum upp á
fjölbreytta fréttaumfjöllun í opinni dagskrá.
Úrvalslið fjölmiðlafólks fer yfir fréttayfirlit
dagsins ásamt því að fá til sín góða gesti að
ræða helstu mál líðandi stundar.
Fréttavaktin er á dagskrá alla virka daga á
Hringbraut og frettabladid.is
Þetta er nettur vagn og
allt mögulegt. Samlok
ur, pylsur, súpur og ís.
Baldur Þórhallsson
20 Lífið 4. ágúst 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Stjórnmálafræðiprófessorinn
Baldur Þórhallsson kemur
úr nokkuð óvæntri átt með
forláta matarvagn sem hann
býður til sölu á Facebook
með þeim orðum að hann sé
skemmtilegur, nettur og veki
mikla athygli.
toti@frettabladid.is
Baldur Þórhallsson, prófessor í
stjórnmálafræði, segist vart hafa
undan að svara fyrirspurnum um
matarvagn sem hann auglýsir til
sölu á Marketplace á Facebook. Þar
kemur fram að skemmtilegur og
nettur vagninn veki mikla athygli og
hafi verið notaður til að selja pylsur,
samlokur og súpur.
Ásett verð er 990.000 krónur
en vagninum fylgja meðal annars
pylsupottur, stórt samlokugrill og
ísskápur þannig að í honum er fólg-
ið tilvalið tækifæri til að taka þátt í
„stækkandi og spennandi matar-
vagnamenningu“.
En hvað er prófessor í stjórnmála-
fræði að vilja upp á dekk með matar-
vagn? Þarna hlýtur einhver saga að
liggja að baki?
„Hún er nú ekki mikil,“ segir
Baldur og hlær. „Það er nú einfald-
lega þannig að við fjölskyldan erum
með lítið ferðaþjónustufyrirtæki
sem heitir Hellarnir við Hellu,“
heldur Baldur áfram og bætir við að
vagninn hafi verið keyptur þegar
fjölskyldan opnaði fyrir almennar
hellaskoðunarferðir 2020. „Við
vinnum mjög stíft með hellakons-
eptið og köllum hann Mathelli.“
Fjöldi svangra gesta
Hellarnir við Hellu opnuðu fyrir
fastar ferðir um manngerðu hell-
ana tólf sem þar eru í febrúar 2020,
nákvæmlega tveimur vikum áður
en Covid skall á af fullum þunga og
skrúfað var fyrir straum erlendra
ferðamanna. Baldur segir þau því
ekki hafa átt von á neinum gestum
það sumarið en þau systkinin stóðu
þarna um hvítasunnuhelgina í
byrjun júní þegar 700 manns komu
að skoða hellana.
„Það stóðu bara hundruð manns
á planinu hjá okkur og heimtuðu
bara að fá eitthvað að borða og við
urðum að fá okkur matarvagn,“
segir Baldur og hlær og vitnar síðan
í systur sína. „Eins og hún segir þá
vorum við þarna um hvítasunnuna
og komumst ekki heim fyrr en um
haustið. Við gerðum bara ekki ráð
fyrir öllum þessum Íslendingum
sem væru á ferðinni og vildu koma
að skoða hellana.“
Þykkvabæjarkartöflusúpa
Baldur segir hins vegar að nú skilji
leiðir með matarvagninum þar sem
öll veitingasala sé komin inn í mót-
tökuna eftir breytingar. „Þess vegna
erum við að selja matarvagninn.
Veitingarnar eru komnar inn. Og
þetta er sagan.“
Baldur lætur þess einnig getið í
auglýsingunni að þar sem vagninn
vegur um 300 kíló sé hann ekki
skráningarskyldur og auðvelt sé að
koma honum fyrir á útihátíðum,
afmælum eða öðrum viðburðum
vegna stærðar og lítillar þyngdar.
„Þetta er nettur vagn og allt mögu-
legt. Samlokur, pylsur, súpur og
ís. Við erum svo gamaldags að við
reynum að vinna sem mest með
allt úr heimabyggð og buðum upp
á þessa alveg indælis kartöflusúpu
úr Þykkvabænum ásamt ýmsu öðru
góðgæti.“
Vagninn stendur enn hjá Hell-
unum við Hellu þar sem hann bíður
nýs eiganda en Baldur rekur mikinn
áhugann á vagninum til ört vaxandi
matarvagnamenningar á Íslandi.
„Hann er enn óseldur en ég er bara í
því að svara skilaboðum núna.
Það er bara skemmtilegt og ég fæ
margar fyrirspurnir, bæði frá fólki
sem er með vagna fyrir en það er
líka margt fólk að spyrja sem er að
velta fyrir sér að fá sér vagn í fyrsta
skipti,“ segir Baldur, sem svarar fyrir-
spurnum í síma og einkaskilaboðum
á Facebook. n
Prófessor selur matarvagn
Baldur Þór-
hallsson og
fjölskylda hans
hafa fóðrað
hellaskoðara í
Mathellinum en
nú skilja leiðir.
MYND/AÐSEND