Breiðholtsblaðið - 01.05.2022, Blaðsíða 4
Að undanförnu hefur verið unnið
markvisst að margvíslegri upp
byggingu í Breiðholtinu. Bæði
er snúa að skipulagi, eins
og uppkaupum á hverfiskjörnum við
Arnarbakka og Völvufelli, fjárfestingu í
íþróttamannvirkjum við Suður Mjódd,
samgöngubrú yfir Breiðholtsbraut og
endurbættum torgum í Mjódd en líka í
félagsauð og mannlífi í fjölmennasta
hverfi borgarinnar. Ýmsar nýjungar hafa
verið til gerðar og komist til framkvæmda.
Má þar nefna styrki til þátttöku í félagslífi
og eflingu félagsauðs. Sérstakt verkefni til
þess að auðvelda aðfluttu fólki að hefja
nýtt líf í Breiðholti en þar er einhver
fjölmennasta byggð fólks sem á uppruna
sinn í öðrum löndum og stundum ólíku
menningarumhverfi. En gefum Söru orðið.
Hún byrjar á að fjalla um íbúaráðin og
hlutverk þeirra.
„Ein að þeim ákvörðunum sem teknar
voru við myndum meirihluta í borgarstjórn
að aflokunum síðustu kosningum var
að endurskoða þáverandi hverfisráð. Í
framhaldi af því fór fram vinna við að
endurskilgreina verkefni ráðanna, þau
fengu nýtt nafn og þróun þeirra áfram varð
að tilraunaverkefni til tveggja ára. Eitt af
því sem var lagað var samsetning hópsins
en ráðsmönnum var fjölgað, fundir gerðir
opnir öllum íbúum alltaf og heiti var breytt
úr hverfisráðum í íbúaráð. „Eitt af því sem
var gert var að opna fundi ráðanna með
það fyrir augum að hver sem er gæti komið
inn á fundina. Hugsunin að baki því var
að tengja ráðin betur við íbúana. Vera
mikilvæg brú hverfisins við stjórnsýslu
borgarinnar en Kovid faraldurinn tafði
þessa framkvæmd eða breytti henni um
tíma vegna þess að við urðum að streyma
fundunum þegar ekki var hægt að kalla
fólk saman. Fjarfundir verða aldrei eins
kröftugir eða skemmtilegir. En starfsemin
breyttist. Áður voru þetta lokaðir pólitískri
fundir en nú var þetta opnað fyrr alla. Í
dag eru ráðin skipuð sex fulltrúum.
Þrír þeirra eru kjörnir. Einn er valinn af
handahófi, fulltrúi íbúa án neinna tengsla
við borgarstjórn eða félagasamtök, einn
er fulltrúi foreldrafélaganna og einn
fulltrúi íbúasamtaka. Fjölbreyttur hópur
sem tengist hverfinu á ólíkan hátt, er
á mismunandi aldri en allir hafa það
sameiginlegt bera hlýhug til hverfisins og
hag þess í brjósti.“
198 milljónir í
hverfistengd verkefni
Sara segir að fyrir utan að vera
upplýsingabrú séu íbúaráðin mikilvægur
hlekkur í að efla félagsauð, samvinnu og
grasrótarstarf innan hverfanna. Hverfis
stengd lýðræðisverkefni fara í gegnum
íbúaráðin sem dæmi. Hún nefnir verkefnið
„Hverfið mitt“ sérstaklega í því sambandi
en þar fékk Breiðholtið 198 milljónir króna
til ráðstöfunar á kjörtímabilinu. Verkefnið
„Hverfið mitt“ snýst um að fá íbúa að koma
inn með hugmyndir sem síðan er kosið
um af hálfu íbúanna. „Mér finnst dýrmætt
að gefa íbúum hverfanna tækifæri til gera
hverfið sitt og umhverfi þess betri stað til
að búa á. Sjá góðar hugmyndir fæðast og
komast til framkvæmda eins og jólaljósin
við Seljatjörn. Þar setti vaskur íbúi fram
frábæra hugmynd, hún var kosin af
hverfinu og sett í framkvæmd fyrir síðustu
jól. Til viðbótar þessu var íbúaráðunum
falið að úthluta úr hverfissjóðum
Reykjavíkurborgar. Þar er um umtalsverða
fjármuni að ræða og hafa gerbreytt umgjörð
og möguleikum á að efla félagsauð og
grasrótarverkefni í hverfinu.
Stoltir Breiðhyltingar bjóða heim
„Íbúaráðið í Breiðholti fær árlega 2,7
milljónir framlag úr hverfissjóði og vegna
Kóvid kom einnig nýtt verkefni til undið
heitinu Borgin okkar og þar vorum við í
Breiðholti með 4,5 milljónir sem tengdust
sumarborginni,“ heldur Sara áfram.
„Þetta eru því umtalsverðir fjármunir
sem Breiðholt hefur fengið til ráðstöfunar
síðustu þrjú árin þegar allt er dregið saman.
Við höfum meðal annars nýtt þetta til þess
að styrkja félagsstarfsemi í hverfinu. Þar má
nefna hátíðahöld á 17. júní. Þessar hátíðir
hafa verið eftirsóttar og fjölmennar bæði í
Efra Breiðholti og einnig í Bakkahverfinu.
Þar unnu foreldrafélögin í skólunum
saman með íþróttafélögunum í hverfinu
og buðu fjölmörgum nágrönnum sínum og
borgarbúum heim í frábæra viðburði og
upplifun. Margar hendur sjálfboðaliða unnu
saman að gera þessa hátíðir að veruleika
fyrir okkur hin og fyrir það bera að þakka
fyrir. Það er ekki sjálfsagt að fólk leggi
svona mikla vinnu á sig til að gefa af sér
fyrir okkur hin. Það segir mér að íbúar í
Breiðholti eru stoltir af hverfinu sínu, þykir
vænt um það og vilja bjóða heim. Svo eru
líka mikil lífsgæði fólgin í því að geta gengið
eða hjólað með ungana sína, hitt nágranna
og vini og átt góða stund saman innan
síns hverfis. Íbúar hafa kallað lengi eftir
viðburðum og afþreygingu og þarna small
allt saman. Fyrir þetta ber að þakka fyrir.“
Fjárfestum áfram í félagsauði
og sterkri grasrót
Sara bendir á að foreldrafélög og
skapandi íbúar hafa líka fengið stuðning
í sínum störfum og einnig viðburðir
í skólunum í hverfinu þar sjónum hefur
verið beint að verkefnum fyrir börnin. Þar
megi meðal annars nefna jólaföndur og
spilakvöld og margt fleira sem þau taka
þátt í. Með þessu sé fyrst og fremst verið
að efla félagsauð og fá fólk til að vinna
saman. Efla grasrótina í hverfinu. Draga
öflugt fólk fram, styðja og hvetja til góðra
verkefna. „Íbúarnir þekkja hverfið sitt best
og vita hvar styrkleikarnir liggja. Mér finnst
magnað að hafa upplifað þá góðu mætingu
og sterku samkennd sem hefur vaknað
við 17. júní hátíðirnar. Þetta er að mestu
unnið í sjálfboðaliðastarfi sem vert er að
þakka fyrir. Hér er öflugt fólk sem tók að
sér að vinna að þessu. Fjármunirnir sem
við höfum verið að fá til ráðstöfunar skipta
einnig gríðarlega miklu máli til að styðja við
verkefni af þessum toga. Þetta er eitt af því
sem ég er stoltust af á þessu kjörtímabil.
Þessi samvinna og samhygð fólks.
Samfylkingin vill halda áfram að fjárfesta
í eflingu félagsauðs og fólki, við viljum
halda áfram að styrkja hverfin innan, skapa
umgjörð fyrir betra nærsamfélag stefnum á
að halda þessu áfram fáum við nýtt umboð
til þess eftir kosningarnar í vor.“
Lægri hámarkshraði
minnkar slysahættu
Sara er mikil hjólreiðamanneskja. Hún
segir gaman að sjá hvað margir eru farnir
að hjóla, bæði sér til heilsubótar og sem
samgöngumáta. Markviss uppbygging
hjólastíga á síðustu átta árum hafi
gjörbreytt sýn okkar á hjólreiðar. Að ekki
sé talað um tilkomu rafmagnshjóla og
rafhlaupahjóla. Hún segir að í nýsamþykktu
hverfaskipulagi Breiðholts sé að finna
skilgreinda hjólastíga um hverfið þvert og
endilangt. „Með þeim er verið að leggja
grunn að aukinni sjálfbærni. Breiðholt er
vel hannað hverfi og mikilvægt fyrir okkur
foreldrana að öruggar hjólaleiðir liggi
innan hverfisins og milli hverfishluta. Á
leið til skóla, í íþrótta og tómstundastarf,
að verslun og þjónustu og til annarra
erinda. Þessu tengdu þá samþykktum við
á kjörtímabilinu nýja hámarkshraðaáætlun
Reykjavíkur en þar var hraði innan
Breiðholtsins lækkaður á nokkrum stöðum
til að tryggja betur öryggi barna í hverfinu.
Áætlunin er að koma í veg fyrir alvarleg
slys á fólki í umferðinni þar sem ólíkir
ferðamátar mætast verður blöndun ólíkra
ferðamáta að vera á forsendum gangandi
og hjólandi vegfarenda. Eitt skref í þá átt
er að stuðla að lágum umferðarhraða við
þær aðstæður enda ekkert eins mikilvægt
eins og öryggi barna og gangandi
í hverfinu okkar.“
Klárum Borgarlínu upp
í Breiðholt
Sara segir að Breiðholtsbúar séu heppnir
að búið sé að flýta komu Borgarlínunnar
upp í Mjódd og Efra Breiðholt. Tilkoma
Borgarlínunnar muni gerbreyta lífsgæðum
þeirra sem búa í Breiðholti. „Fólk mun geta
farið um hverfið á hjóli niður í Mjódd eða
nýtt sér þjónustu Borgarlínunnar til þess
að fara til annarra borgarhluta. Hjólastígar
og Borgarlína koma til með að vinna hvort
með öðru. Fyrst við erum farið að ræða um
fjölbreytta vistvæna ferðamáta vil ég benda
á þá staðreynd að hjólreiðar eru ekki bara
lýðheilsumál heldur einnig loftslagsmál. Eitt
stærsta verkefni okkar tíma og við verðum
að horfa til.“
4 Breiðholtsblaðið MAÍ 2022
V i ð t a l i ð
Breiðholt framtíðar verður til
- segir Sara Björg Sigurðardóttir frambjóðandi Samfylkingarinnar fyrir borgarstjórnarkosningar-
nar í vor, skipar 7. sæti listans, hefur verið varaborgarfulltrúi síðan 2019. Hún er einnig formaður
íbúaráðsins í Breiðholti og tekur spjallið við Breiðholtsblaðið að þessu sinni.
Sara Björg Sigurðardóttir er formaður
Íbúaráðs Breiðholts og vara borgarfulltrúi
Samfylkingarinnar.