Feykir - 20.01.2021, Side 2
Starfsmaður Eflu Verkfræðistofu, ásamt starfs-
manni Sveitarfélagsins Skagafjarðar, unnu að því í
síðustu viku að taka sýni úr jarðvegi á svæði
umhverfis bensínstöð N1 á Hofsósi þar bensínleki
uppgötvaðist síðla árs 2019. Skipt var um tanka
og jarðveg umhverfis þá síðasta sumar.
Sveitarfélagið Skagafjörður réð Verkfræðistof-
una Eflu til að annast rannsóknir á frekara um-
fangi mengunarinnar og var fyrirhugað að hefja
rannsóknir í haust. Steinn Leó Sveinsson, sviðs-
stjóri veitu- og framkvæmdasviðs hjá Sveitarfél-
aginu Skagafirði, sagði í samtali við Feyki að búið
hefði verið að ákveða tíma fyrir rannsóknirnar
þegar þriðja bylgja COVID-19 skall á og því hafi
þurft að seinka framkvæmdum.
Steinn segir að nú sé búið að taka sýni í sam-
ræmi við rannsóknaráætlun sem gerð var í sam-
starfi við Eflu til að kanna útbreiðslu mengunar á
svæðinu en boraðar voru 13 holur, 3-4 metra
djúpar, til sýnatökunnar. „Við erum sem sagt búin
að ná þessum sýnum en svo á eftir að fara yfir þau
frekar og verður eitthvað af þeim sent utan til
rannsóknar. Ég á svo von á skýrslu um málið ein-
hvern tímann á næstunni, það er ekki alveg komin
dagsetning á það en ég geri ráð fyrir að það verði á
næstu vikum,“ segir Steinn.
Aðspurður segir Steinn að framhaldið fari svo
algjörlega eftir niðurstöðum rannsóknarinnar og
að engin leið sé að segja til um það að svo stöddu.
/FE
Nú stendur yfir handboltavertíð, HM á fullri ferð og íslenska
liðið bara staðið undir nafni sem „strákarnir okkar“ hingað
til, svona að mestu. Ég held að engin önnur íþrótt nái að
sameina þjóðina eins og hand-
boltinn gerir, allavega þegar vel
gengur, allir, a.m.k. velflestir,
fylgjast með , hvort sem þeir hafa
nokkurn einasta áhuga á íþrótt-
um yfirleitt.
Ég er ein af þeim sem fylgist
oftast með úr fjarska og tek
stöðuna bara öðru hvoru. Það er
alltaf svolítið gaman að standa
eilítið utan við mestu spennuna og
fylgjast með því hvaða áhrif svona
keppni getur haft á fólk því það eru
svo sannarlega ýmis dýr sem vakna af blundi, jafnvel hjá dag-
farsprúðustu manneskjum.
Engu að síður hef ég gaman af að horfa á leikina, já eða
hlusta, það er oft ekkert verra. En ef ég ætla að fylgjast með þarf
ég helst að vera ein, ég get orðið alveg hrikalega pirruð ef
einhverjir nærstaddir missa sig í neikvæðar upphrópanir um
aumingjaskap og slælega spilamennsku íslenska liðsins, geri
þeir hinir sömu þá bara betur.
Ég kíkti aðeins á leikinn við Marokkó á mánudagskvöldið.
Þar stóð tvennt upp úr: Gróf spilamennska marokkósku leik-
mannanna annars vegar og svo hins vegar hvað liðsmenn
Marokkó voru upp til hópa ófríðir. Ekki að það síðar nefnda
skipti nokkru máli fyrir handboltann, og þó, það er alltaf gott að
fá eitthvað fyrir augað í bónus, ekki satt? En smekkur fólks er
til allrar hamingju mismunandi. Kannski sitja marokkóskar
kynsystur mínar við tedrykkju núna og fárast yfir því hvað
þessir gráfölu Íslendingar séu ótrúlega lítið spennandi að sjá og
algjörar veimiltítur sem varla megi anda á.
Fríða Eyjólfsdóttir, blaðamaður
LEIÐARI
HM þankar
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Páll Friðriksson, palli@feykir.is & 861 9842
Blaðamenn:
Fríða Eyjólfsdóttir, frida@feykir.is | Óli Arnar Brynjarsson, oli@feykir.is
Sigríður Garðarsdóttir, siggag@nyprent.is | Klara Björk Stefánsdóttir, klara@nyprent.is
Prófarkalestur: Fríða Eyjólfsdóttir
Auglýsingastjóri: Sigríður Garðarsdóttir, siggag@nyprent.is
Áskriftarverð: 615 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 755 kr. m.vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171.
Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum
Bensínlekinn á Hofsósi
Jarðvegssýni tekin í síðustu viku
Bjarni Helgi Ragnarsson, starfsmaður þjónustumiðstöðvar Svf.
Skagafjarðar, og Baldvin Jónbjarnarson, jarðeðlisfræðingur
hjá Eflu Verkfræðistofu, við sýnatöku. MYND: FE
AFLATÖLUR | Dagana 11. til 17. janúar 2021 á Norðurlandi vestra
Málmey með rúm 197 tonn
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
SAUÐÁRKRÓKUR
Drangey SK 2 Botnvarpa 115.376
Málmey SK 1 Botnvarpa 197.325
Onni HU 36 Dragnót 8.399
Hafborg SK 54 Þorskfisknet 1.376 Alls á Sauðárkróki 322.476
SKAGASTRÖND
Auður HU 94 Landbeitt lína 8.913
Bergur Sterki HU 17 Lína 2.969
Dagrún HU 110 Net 10.031
Elfa HU 191 Landbeitt lína 1.612
Sæfari HU 212 Landbeitt lína 6.209
Viktoría HU 10 Lína 1.851 Alls á Skagaströnd 31.585
Fáir sóttu sjóinn í síðustu viku á Króknum og var landað rúmum 322 tonnum. Aflahæst var
Málmey SK 1 með rúm 197 tonn.
Á Skagaströnd var heildaraflinn tæp 32 tonn og var það Dagrún HU 110 sem var aflahæst
með rúm 10 tonn. Enginn bátur landaði á Hofsósi né Hvammstanga og var heildarafli síðustu
viku á Norðurlandi vestra 354.051 kg. Gengið hefur verið frá samningi
um kaup FISK Seafood á
útgerðarfélaginu Ölduósi ehf. á
Höfn í Hornafirði og um leið á
krókaaflamarksbáti félagsins,
Dögg SU 118. Kaupin eru gerð
með fyrirvara um samþykki
Samkeppniseftirlitsins.
Aflaheimildir Daggar eru
um 700 þorskígildistonn og eru
heildarverðmæti viðskiptanna
ríflega 1,8 milljarðar króna.
Dögg hefur til þessa verið gerð
út frá Stöðvarfirði og munu
seljendur bátsins ljúka þessu
fiskveiðiári með áhöfn sinni
áður en afhending hins selda
fer að fullu fram.
Í fréttatilkynningu frá Fisk
Seafood segir að með kaupunum
styrki útgerð FISK Seafood
rekstur sinn og hlutdeild í
bolfiskvinnslu félagsins. Þorsk-
veiðikvótinn eykst um tæplega
5% og gera má ráð fyrir að
viðbótaraflinn samsvari tveggja
til þriggja vikna afkastagetu
landvinnslu FISK Seafood á
Sauðárkróki og Snæfellsnesi.
Dögg SU 118 er smíðuð hjá
Trefjum árið 2007. Báturinn er
tæplega 15 brúttótonn, 11,5
brúttórúmlestir og ríflega 11
metrar að lengd.
„Með þessum viðskiptum er
FISK Seafood að fikra sig inn í
smábátaútgerð á línu og skak og
ef vel tekst til munum við halda
áfram að byggja okkur upp á því
sviði, segir Friðbjörn Ásbjörns-
son, framkvæmdastjóri FISK
Seafood. „Vertíðarbátarnir yrðu
kærkomin viðbót við það aukna
líf sem höfnin hér á Sauðárkróki
hefur öðlast á undanförnum
árum og þetta fyrsta skref með
kaupunum á Dögg verður strax
mikil styrking fyrir land-
vinnsluna og verðmætin sem
hún er að skapa á hverjum degi.“
/Fréttatilkynning
FISK Seafood
Kaupir útgerð Daggar og
700 þorskígildistonn
Dögg SU 118. MYND AÐSEND
Á fundi landbúnaðarráðs Húnaþings vestra í síðustu viku var
lögð fram tillaga að bókun sem samþykkt var samhljóða þar sem
lýst er yfir áhyggjum yfir fyrirkomulagi og stöðu dýralækna-
þjónustu í sveitarfélaginu og hvetur ráðið jafnframt Matvæla-
stofnun og atvinnu- og nýsköpunarráðuneytið til að bregðast
strax við þeirri stöðu sem uppi er.
Í bókun fundarins sagði m.a.: „Landbúnaðarráð hvetur Matvæla-
stofnun og atvinnu- og nýsköpunarráðuneytið að bregðast strax við
þeirri stöðu sem uppi er í Húnaþingi vestra. Jafnframt er óskað eftir
fundi með fulltrúum MAST og atvinnu- og nýsköpunarráðuneytis." /FE
Húnaþing vestra
Hafa áhyggjur af stöðu
dýralæknaþjónustu
2 03/2021