Feykir


Feykir - 07.04.2021, Blaðsíða 4

Feykir - 07.04.2021, Blaðsíða 4
Ert þú áskrifandi? Ef það er eitthvert dýr sem Skagafjörður getur státað af þá er það hesturinn en um þessar slóðir má finna fjöldann allan af flottum ræktendum sem eru að gera góða hluti með íslenska hestinn bæði í keppnum og í ræktun og sölu erlendis. Þar sem ég er nokkuð viss um að margir lesendur Feykis viti meira um hesta en ég ákvað ég að leita uppi nokkrar staðreyndir um hesta sem hugsanlega einhverjir hafa ekki hugmynd um að væri rétt. Vissir þú að hestar fæðast tann- lausir, fá folaldatennur á fyrstu mánuðunum en missa þær 5–6 vetra og fá fullorðinstennur líkt og menn- irnir. Hestar, ásamt fílum, sofa einna styst af spendýrum eða um 3-4 klst á sólarhring. Elsti hestur sem vitað er um er hann Old Billy sem bjó í Englandi og varð 62 ára gamall! Hestar hafa tvo blinda bletti, annar er beint fyrir aftan þá og hinn beint fyrir framan þá. Hestar eyða meiri orku þegar þeir liggja heldur en þegar þeir standa. Hestar geta ekki gubbað. Hestar geta ekki andað gegnum munninn. Stefanía Sigfúsdóttir sem býr á Sauðárkróki og er dóttir Rögnu Hjartardóttur og Sigfúsar Snorrasonar á nokkra hesta og hefur verið mikið í kringum þá frá því að hún var lítil. Feyki langaði til að forvitnast aðeins um Stefaníu og hestana hennar. Hvernig gæludýr áttu? Ég á nokkra hesta og þeir heita Klettur, Bikar, Framtíð, Ljómi, Silfurtoppur og Mummi og svo eru folöldin mín Steinöld og Sólketill. Hvernig eignaðist þú hestana? Ég hef umgengist hesta síðan ég var lítil með afa en eignaðist minn fyrsta hest, hann Klett, þegar ég átti tíu ára afmæli og stórvinur minn Guð- mundur Sveinsson færði mér hann í tilefni af fyrsta tugnum. Hvað er skemmtilegast við gælu- dýrið þitt? Mikill vinur og það er svakalega margt skemmtilegt en toppurinn er að fara í reiðtúr í góðum félagsskap í góðu veðri! Hvað er erfiðast? Það er erfiðast þegar þeir slasast og ekki er hægt að fara í reiðtúra á þeim lengur. Ertu með einhverja sniðuga eða merkilega sögu af gæludýrinu? Ég ætlaði að fara í skemmtireiðtúr með tveimur vinkonum einn góðan dag í sveitinni og þurftum við að labba og sækja hestana út á tún, þá fengum við þá hugmynd, til að stytta okkur labbitúrinn til baka í réttina, að hoppa á berbak og ríða til baka en þá tóku hestarnir gleðihopp með okkur og við hrundum allar af hestunum! Vinirnir Klettur og Stefanía. AÐSENDAR MYNDIR Stefanía á átta hesta ÉG OG GÆLUDÝRIÐ | siggag@nyprent.is Stefanía Sigfúsdóttir | hesturinn Klettur Hér er Klettur tveggja vetra en Stefanía ellefu ára. Það er nú svo að þegar þessi þáttur kemur fyrir sjónir almennings er, þrátt fyrir hertar aðgerðir ríkisins í sóttvörnum, ekki búið að fresta Sæluviku líkt og gert var fyrir ári. Fyrst svo er freistumst við til að kasta fram fyrripörtum og gefum almenningi kost á að taka þátt í vísnakeppni Safnahúss Skagfirðinga. Samkvæmt lauslegri talningu er líklegast komið að 45. keppninni en henni var komið á árið 1976 og hefur farið fram öll árin, utan 2020 vegna Covid áhrifa. Líkt og segir í einum fyrripartinum, sem einnig var gerður að fyrirsögn, hafa sjálfsagt margir viljað gefa liðnu ári löngutöng og jafnvel þessu ári líka en munum að brátt verður þetta leiðindaástand yfirstaðið. Reglur vísnakeppninnar eru sem fyrr einfaldar og góðar; annars vegar að botna fyrirfram gefna fyrriparta og eða semja vísu um ákveðið málefni. Ekki er nauðsynlegt að botna allt og einnig er í lagi að senda bara inn vísu. Gos, gös, Covidáhrif, kaup og kjör og kosningar eru viðfangsefni botnara að þessu sinni og að sjálfsögðu vorið enda stutt í betri tíð. Fyrripartarnir hljóða svo: Í fjölmiðlunum færir menn fræða okkur um gösin. Minni vinnu, meira kaup mun þá auður safnast. Hvað ætlarðu að kjósa í haust? Hverju viltu hafna? Liðnu ári löngutöng langar mig að senda. Flesta daga ferðast ég um fermetrana heima. Senn mun blíð og betri tíð bara prýða fjörðinn. Umsjónarmann vísnakeppninnar lang- ar til að sjá hvernig hagyrðingar ramma inn Ísland og þeirra upplifun á stöðunni í dag, sl. mánuði eða jafnvel hvernig þeir telja hana þróast næstu mánuði. Þó Covid-19 hafi verið alls ráðandi má alveg hugsa út fyrir þann ramma. Veitt verða tvenn peningaverðlaun, annars vegar fyrir bestu vísuna og hins vegar fyrir besta botninn. Ekki er skilyrði að allir fyrripartar séu botnaðir og einnig er leyfilegt að senda einungis vísu. Vísur og botnar verða að hafa borist Safnahúsi Skagfirðinga, Faxatorgi 550 Sauðárkróki í síðasta lagi miðviku- daginn 14. apríl nk. Nauðsynlegt er að vísurnar séu merktar dulnefni, en rétt nafn og símanúmer fylgi með í lokuðu umslagi. Einnig er hægt að senda vísur og botna í tölvupósti á netfangið bokasafn@skagafjordur.is og verður þá viðkomandi höfundi gefið dulnefni, ef það fylgir ekki með, áður en vísurnar fara til dómnefndar. Úrslit verða tilkynnt sunnudaginn 25. apríl, vonandi við setningu Sælu- viku Skagfirðinga, í Safnahúsinu á Sauðárkróki. /PF Vísnakeppni Safnahúss Skagfirðinga 2021 Liðnu ári löngutöng langar mig að senda Frá setningu Sæluviku 2014. MYND: ÓAB 4 14/2021

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.