Feykir


Feykir - 07.04.2021, Blaðsíða 7

Feykir - 07.04.2021, Blaðsíða 7
Nú fyrsta apríl eru 40 ár síðan ég var skipaður skólastjóri á Hólum í Hjaltadal. Við Ingibjörg – ásamt börnum okkar fluttum frá Bjarnarhöfn á Snæfellsnesi Heim á Hólastað þá um sumar- ið. Reglubundið skólahald hafði þá legið niðri við Bændaskól- ann um tveggja ára skeið og framtíð Hóla mjög í óvissu. Endurreisn Hóla Sú ákvörðun lá á borðum stjórnvalda þá að loka bæri Hólastað sem skólasetri. En ríkisstjórn Gunnars Thorodd- sen, sem kom skyndilega til valda 1980, sneri þeim áform- um við – skólinn skyldi endur- reistur. Stofnuð var ný skóla- nefnd – mönnuð norðanmönn- um undir forystu Gísla Páls- sonar á Hofi. Allt einstak- lingar sem voru tilbúnir að taka til hendinni. Og til þess að undirstrika alvarlega stöðuna og marka enn frekar nýtt upphaf – hafði öllu starfsfólki skólans verið sagt upp störfum. Þannig að hinn 1. apríl 1981 var ég eini starfsmaður Hólaskóla með fasta ráðningu. Spennandi áskorun Það var bæði tækifæri fyrir mig – til þess að móta nýjan skóla en jafnframt gríðarleg áskorun. Mér leið því dálítið fyrsta kastið – eins og Palla einum í heiminum, svaf á dýnu í einni kennslustofunni. Það átti þó eftir að breytast mjög hratt. Ég fékk mikinn stuðning frá ríkisstjórninni fyrir þetta verkefni. Þeir Pálmi Jónsson, á Akri, landbúnaðarráðherra, og Ragnar Arnalds, fjármálaráð- herra, studdu mig með ráðum og dáð. Skagfirðingarnir og ráðherrarnir Ólafur Jóhannes- son og Steingrímur Her- mannsson stóðu að sjálfsögðu fast að baki Hóla. Ég man sérstaklega eftir því að Pálmi hringdi í mig og lagði áherslu á að Ingibjörg Sólveig Kolka, kona mín, yrði þá strax ráðin sem einskonar Húsfreyja Hólastaðar, sem hann og gerði. Og ég var sannarlega ekki einn með hana mér við hlið og gæfa fyrir Hóla. Afbragðs starfsfólk - góðir nemendur En annars var það mitt fyrsta verk að endurráða Grétar Geirsson sem bússtjóra, Jón- ínu Hjaltadóttur sem matráð og Jón Friðbjörnsson sem um- sjónarmann eða staðarsmið. Síðan bættist fleira fólk við. Okkur heppnaðist að ráða að staðnum afbragðsgott starfsfólk sem einhenti sér af fullum krafti í hið mikla uppbyggingarverkefni er var framundan. Þetta var í raun mjög gaman. Héraðið stóð vel að baki Hólum þegar stefnan var tekin. Skólahús voru flest AÐSENT | Jón Bjarnason skrifar Heim að Hólum Jón Bjarnason. „Fjölskyldumynd af okkur en þetta var jú eitt stórt fjölskylduátak.“ Frá vinstri: Ingibjörg J. Kolka, Laufey Erla, Katrín Kolka, Ingibjörg Sólveig B. Kolka, Jón, Páll Valdimar Kolka, Ásgeir og Bjarni. MYNDIR AÐSENDAR komin í niðurníðslu og víða þurfti að taka til hendi. Hólalax var þá rétt að taka til starfa. Hitaveita Hjaltadals komin á skrið og síðan ný sundlaug. Eitt fyrsta verkið var að byggja ný hesthús – enda átti kennslan að vera með nýjum áherslum – á hrossarækt og tamningar, loðdýrarækt og fiskeldi. Hafa þessar áherslur staðið síðan – fyrir utan að ferðaþjónusta hefur leyst loð- dýraræktina af hólmi. Það var samt mín bjargfasta skoðun að endurreisnin sner- ist ekki aðeins um skólann sjálfan – heldur Hólastað allan, stöðu hans og sess í sögu landsins – og með áherslu á hliðarstarfsemi sem gæti stutt við lifandi mannlíf. Í þessu skyni var margt brallað. Stofnað var útibú Veiðimálastofnunar, sumar- búðir fyrir börn, farið út í um- fangsmikla skógrækt, vígslu- biskupsetrið fært heim á staðinn. Ferðaþjónusta var efld sem og fjölþættar rann- sóknir. Og svo mætti áfram telja. Metnaður okkar á Hólum var að Skagfirðingar, Norð- lendingar, já landsmenn allir gætu átt erindi og lagt leið sína með stolti Heim að Hólum. Verkin tala fyrir sig Nú – 40 árum seinna verða aðrir að dæma um árangurinn. Ég var skólastjóri í 19 ár á miklum umbrotatímum. Okk- ur Ingibjörgu verður hins vegar hugsað til allra vina okkar – í Skagafirði og landinu öllu – sem komu að verki við að endurbyggja Hóla á þessum örlagatímum staðarins. Nem- endur, kennarar, starfsfólk og hinir fjölmörgu velunnarar Hóla, kærar þakkir fyrir góð ár. Margir hafa nú fallið frá – blessuð sé minning þeirra. En okkur Ingibjörgu langar til þess að koma einlægu þakklæti til þeirra sem enn lifa og muna. Lifi Hólar Já – 1. apríl 1981 var mikill ör- lagadagur fyrir mig og okkur Ingibjörgu. Fjölskyldan okkar hefur ávallt staðið þétt saman í þessu verkefni. Börnin okkar ólust upp á Hólum og tvö þau yngstu fæddust þar. Þau hafa öll notið skagfirsks menningar- lífs og norðlenskra mennta- stofnana. Já – mér finnst þetta gæfudagur. Það er stutt í vorið. Við Ingibjörg óskum vinum og velunnurum gleðilegs sumars og Hóla í Hjaltadal allrar blessunar. Lifi Hólar!Fyrsti útskriftarhópurinn. 14/2021 7

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.