Feykir - 07.04.2021, Page 7
Nú fyrsta apríl eru 40 ár síðan
ég var skipaður skólastjóri á
Hólum í Hjaltadal. Við Ingibjörg
– ásamt börnum okkar fluttum
frá Bjarnarhöfn á Snæfellsnesi
Heim á Hólastað þá um sumar-
ið. Reglubundið skólahald hafði
þá legið niðri við Bændaskól-
ann um tveggja ára skeið og
framtíð Hóla mjög í óvissu.
Endurreisn Hóla
Sú ákvörðun lá á borðum
stjórnvalda þá að loka bæri
Hólastað sem skólasetri. En
ríkisstjórn Gunnars Thorodd-
sen, sem kom skyndilega til
valda 1980, sneri þeim áform-
um við – skólinn skyldi endur-
reistur. Stofnuð var ný skóla-
nefnd – mönnuð norðanmönn-
um undir forystu Gísla Páls-
sonar á Hofi. Allt einstak-
lingar sem voru tilbúnir að
taka til hendinni.
Og til þess að undirstrika
alvarlega stöðuna og marka
enn frekar nýtt upphaf – hafði
öllu starfsfólki skólans verið
sagt upp störfum.
Þannig að hinn 1. apríl
1981 var ég eini starfsmaður
Hólaskóla með fasta ráðningu.
Spennandi áskorun
Það var bæði tækifæri fyrir
mig – til þess að móta nýjan
skóla en jafnframt gríðarleg
áskorun.
Mér leið því dálítið fyrsta
kastið – eins og Palla einum í
heiminum, svaf á dýnu í einni
kennslustofunni. Það átti þó
eftir að breytast mjög hratt.
Ég fékk mikinn stuðning
frá ríkisstjórninni fyrir þetta
verkefni. Þeir Pálmi Jónsson, á
Akri, landbúnaðarráðherra, og
Ragnar Arnalds, fjármálaráð-
herra, studdu mig með ráðum
og dáð. Skagfirðingarnir og
ráðherrarnir Ólafur Jóhannes-
son og Steingrímur Her-
mannsson stóðu að sjálfsögðu
fast að baki Hóla.
Ég man sérstaklega eftir því
að Pálmi hringdi í mig og lagði
áherslu á að Ingibjörg Sólveig
Kolka, kona mín, yrði þá strax
ráðin sem einskonar Húsfreyja
Hólastaðar, sem hann og gerði.
Og ég var sannarlega ekki einn
með hana mér við hlið og gæfa
fyrir Hóla.
Afbragðs starfsfólk -
góðir nemendur
En annars var það mitt fyrsta
verk að endurráða Grétar
Geirsson sem bússtjóra, Jón-
ínu Hjaltadóttur sem matráð
og Jón Friðbjörnsson sem um-
sjónarmann eða staðarsmið.
Síðan bættist fleira fólk við.
Okkur heppnaðist að ráða
að staðnum afbragðsgott
starfsfólk sem einhenti sér af
fullum krafti í hið mikla
uppbyggingarverkefni er var
framundan. Þetta var í raun
mjög gaman.
Héraðið stóð vel að baki
Hólum þegar stefnan var
tekin. Skólahús voru flest
AÐSENT | Jón Bjarnason skrifar
Heim að Hólum
Jón Bjarnason.
„Fjölskyldumynd af okkur en þetta var jú eitt stórt fjölskylduátak.“ Frá vinstri: Ingibjörg J. Kolka, Laufey Erla, Katrín Kolka, Ingibjörg Sólveig B. Kolka, Jón, Páll Valdimar Kolka,
Ásgeir og Bjarni. MYNDIR AÐSENDAR
komin í niðurníðslu og víða
þurfti að taka til hendi. Hólalax
var þá rétt að taka til starfa.
Hitaveita Hjaltadals komin á
skrið og síðan ný sundlaug.
Eitt fyrsta verkið var að
byggja ný hesthús – enda átti
kennslan að vera með nýjum
áherslum – á hrossarækt og
tamningar, loðdýrarækt og
fiskeldi. Hafa þessar áherslur
staðið síðan – fyrir utan að
ferðaþjónusta hefur leyst loð-
dýraræktina af hólmi.
Það var samt mín bjargfasta
skoðun að endurreisnin sner-
ist ekki aðeins um skólann
sjálfan – heldur Hólastað allan,
stöðu hans og sess í sögu
landsins – og með áherslu á
hliðarstarfsemi sem gæti stutt
við lifandi mannlíf.
Í þessu skyni var margt
brallað. Stofnað var útibú
Veiðimálastofnunar, sumar-
búðir fyrir börn, farið út í um-
fangsmikla skógrækt, vígslu-
biskupsetrið fært heim á
staðinn. Ferðaþjónusta var
efld sem og fjölþættar rann-
sóknir. Og svo mætti áfram
telja. Metnaður okkar á Hólum
var að Skagfirðingar, Norð-
lendingar, já landsmenn allir
gætu átt erindi og lagt leið sína
með stolti Heim að Hólum.
Verkin tala fyrir sig
Nú – 40 árum seinna verða
aðrir að dæma um árangurinn.
Ég var skólastjóri í 19 ár á
miklum umbrotatímum. Okk-
ur Ingibjörgu verður hins vegar
hugsað til allra vina okkar – í
Skagafirði og landinu öllu –
sem komu að verki við að
endurbyggja Hóla á þessum
örlagatímum staðarins. Nem-
endur, kennarar, starfsfólk og
hinir fjölmörgu velunnarar
Hóla, kærar þakkir fyrir góð ár.
Margir hafa nú fallið frá –
blessuð sé minning þeirra. En
okkur Ingibjörgu langar til
þess að koma einlægu þakklæti
til þeirra sem enn lifa og muna.
Lifi Hólar
Já – 1. apríl 1981 var mikill ör-
lagadagur fyrir mig og okkur
Ingibjörgu. Fjölskyldan okkar
hefur ávallt staðið þétt saman í
þessu verkefni. Börnin okkar
ólust upp á Hólum og tvö þau
yngstu fæddust þar. Þau hafa
öll notið skagfirsks menningar-
lífs og norðlenskra mennta-
stofnana. Já – mér finnst þetta
gæfudagur.
Það er stutt í vorið. Við
Ingibjörg óskum vinum og
velunnurum gleðilegs sumars
og Hóla í Hjaltadal allrar
blessunar. Lifi Hólar!Fyrsti útskriftarhópurinn.
14/2021 7