Feykir - 07.04.2021, Síða 9
Lengi vel var það svo að
álitið var að hestamennsku-
hæfni væri meðfædd; sumir
væru bornir reiðmenn en
aðrir jafnvel klaufar og yrðu
ekki annað. Vissulega er
það svo að þeir sem ætla að
ná færni á þessu sviði sem
öðrum þurfa að búa yfir
áhuga og elju og ákveðnum
líkamlegum forsendum en
að því gefnu gildir hið
fornkveðna: Æfingin skapar
meistarann.
Þrátt fyrir þetta var þó
snemma farið að birta ýmsar
leiðbeiningar og fræðslu í
ritgerðum og jafnvel bókum
hér á landi til að auka
þekkingu á meðferð og
tamningu hesta. Fyrirmyndir
að slíku voru til erlendis,
jafnvel í fornöld. Hvað
kunnust þessara íslensku
bóka frá fyrri tíð er bókin
Hestar eftir Theodór Arn-
björnsson frá Ósi, fyrsta
ráðunaut Búnaðarfélags Ís-
lands sem hafði hrossaræktina sem
megin starf, bókin kom út hjá félaginu
árið 1931 og hefur síðan verið
endurútgefin. Bókin hefur víðtæka
skírskotun en í henni er að finna
mikla andagift, enda var Theodór
óvenju ritfær maður eins og önnur
bók hans, Sagnaþættir úr Húnaþingi,
sem út kom að honum látnum árið
1941, ber með sér, þar er m.a. að finna
frásöguþáttinn Um Þingeyrarfeðga
og kemur reiðmennskusnilld Jóns
Ásgeirssonar á Þingeyrum mikið við
sögu. Lokaorð Hesta gefa frábæra sýn
á þroskað viðhorf til tamningar
hrossa, þau hljóma svo: „ .., en
tamningin er það, að fá hrossið til að
vilja það, sem húsbóndinn vill. Þá er
hrossið orðið það, sem það á að verða:
Vinur mannsins og félagi, hjálp
mannsins og öryggi, gleði mannsins
og metnaður, því það vitnar um,
hvílíkur maðurinn er. – Það er kvarð-
inn sem mælir alla rétt.“ (bls. 385 í
téðu riti).
Fyrsti ráðunauturinn, Theodór,
var hestamaður sjálfur, þó svo engar
sérstakar sagnir séu til, höfundi alla-
vega kunnar, um reiðmennsku hans
e.þ.h., hitt er að hann var í miklum
tengslum við stórkunna hestamenn
þeirrar tíðar, s.s. Ásgeir Jónsson frá
Gottorp, og upprunninn í íslenskri
sveit. Sá sem tók við af Theodóri,
Gunnar Bjarnason, var alls enginn
hestamaður hvorki að eðli né uppruna
og enginn hefur tekið skýrar af öll
HESTAR OG MENN | palli@feykir.is
Kristinn Hugason forstöðumaður Söguseturs íslenska hestsins
Reiðkennsla eflist – réttindi verða til
Frá fyrsta eiginlega reiðnámskeiðinu sem haldið var á Íslandi, fór það fram í nýbyggðu reiðgerði hestamannafélagsins
Fáks í Reykjavík í mars 1971. Kennarar voru Walter Feldmann eldri og yngri og þeim til aðstoðar Ragnheiður
Sigurgrímsdóttir, menntaður reiðkennari frá Þýskalandi og í forystusveit FT á fyrstu árunum,
á myndinni eru Feldmann eldri og Ragnheiður ásamt hluta þátttakenda.
MYND ÚR SAFNI SÍH | LJM.: FRIÐÞJÓFUR ÞORKELSSON
tvímæli þar um en hann sjálfur. Hitt er
að hann gaf sig, fljótlega eftir að hann
hóf störf, mjög að hestamönnum, s.s.
Boga Eggertssyni, sem ítrekað hefur
komið við sögu í greinum þessum, auk
þess sem Gunnar hafði þá sýn að
hlutina mætti læra hefðu menn vit til,
áhuga og lágmarks hæfileika. Gunnar
hafði þannig forgöngu um það strax
árið 1951 að fyrsti vísir að reiðskóla
varð til við Bændaskólann á Hvanneyri,
þar sem Gunnar kenndi ýmis búfjár-
ræktarfög jafnhliða ráðunautsstörfum,
sjá nánar í ritinu Ættbók og saga
íslenzka hestsins á 20. öld, II. bindi, útg.
BOB á Akureyri 1979, bls. 167 til 211:
Reiðskóli úr íslenzkri hefð. Ekki er
nokkur vafi á að frumkvæði Gunnars
hafði mikil áhrif og fjölmargir þeirra
sem hug höfðu á að leggja fyrir sig
hestamennsku fóru gagngert á Hvann-
eyri eða Hóla til að ljúka búfræði-
prófi. Eftirsóttur verðlaunagripur fyrir
árangur í tamningum varð svo hin
svokallaða Morgunblaðsskeifa, fyrst
veitt á Hvanneyri árið 1957 og nokkru
síðar líka á Hólum (sama heimild bls.
178). Árið 1953 kom svo út hjá LH
bókin Á fáki – kennslubók í hesta-
mennsku, höfundar Gunnar Bjarnason
og Bogi Eggertsson. Í þessu sambandi
má þó ekki sleppa að nefna höfund-
arverk Ásgeirs Jónssonar frá Gottorp
en árið 1946 kom út hjá bókaútgáfunni
Norðra á Akureyri bókin Horfnir
góðhestar, fyrra bindi, árið 1948 kom
svo síðara bindið út og 1951 bókin
Samskipti manns og hests. Hér er um að
ræða stórmerk rit sem gefa mikilvæga
innsýn í stöðu gæðingakosts á Íslandi
og þróun reiðmennsku.
Breytt viðhorf til
menntunar í hestamennsku
Árið 1960 setti hestamannafélagið
Fákur upp sumarreiðskóla fyrir börn
með fyrsta menntaða reiðkennara
landsins, Rosmarie Þorleifsdóttur.
Árið áður hafði Léttir á Akureyri hafið
slíka starfsemi, fyrst fyrir börn félags-
manna þar sem alvanur hestamaður
leiðsagði. Skólinn varð svo almennur
eftir að Æskulýðsráð Akureyrar kom
inn í stafsemina.
Þó sjá megi af framansögðu að
ýmislegt hafi verið gert og skilningur
farið vaxandi á að hestamennsku
mætti læra eins og hvert annað fag,
væri áhugi og grunnhæfni til staðar,
fóru hjólin fyrst að snúast fyrir alvöru
með tilkomu FT árið 1970 og jafn-
hliða stórauknum utanferðum knapa,
einkum til Þýskalands, gagnkvæmum
heimsóknum og námskeiðahaldi. Við
stofnun FT var kapp lagt á að fá inn í
félagið þá fáu menn, marga hverja
afburðareynda, sem störfuðu við
tamningar en árið 1972 var tekið upp
kerfi inntökuprófa í félagið og í fram-
haldinu búið til stigskipt réttindakerfi
innan þess; þannig var fyrsta reið-
kennaranámskeið FT haldið árið 1976
með prófi að því loknu, þeir sem náðu
prófinu hlutu réttindi sem B
reiðkennarar FT. Árið 1978
náði Reynir Aðalsteinsson svo
fyrstur manna þeim áfanga að
geta kallast tamningameist-
ari FT, nokkrir áttu svo eftir
að bætast í þann hóp síðar en
hann er enn í dag afar fá-
skipaður.
Árið 1981 var Hólaskóli
endurreistur, eftir að eiginlegt
skólahald hafði legið niðri í
tvo vetur. Lykillinn að endur-
reisninni var án nokkurs vafa
bygging nýs hesthúss á
staðnum sem hófst 1980 og
var tekið í notkun árið 1982,
en er hér var komið sögu voru
flestar byggingar staðarins
mjög farnar að láta á sjá, gengi
skólans hafi mjög þorrið og
umsóknum um skólavist
fækkað mjög. (Pétur Bjarna-
son, Biskupsstóll og bændaskóli,
Bókaútgáfan á Hofi 1991, bls.
23 og 26). Við endurreisnina
var lögð mjög aukin áhersla á
hestamennsku í búfræði-
náminu, þó enn þá væri haldið
sig við almennt búfræðinám, skv.
gildandi búfræðslulögum. Meira
verður vikið að þætti Hólaskóla síðar.
Niðurlagsorð
Réttindakerfi FT studdist vitaskuld
ekki við nein lög önnur en félagsins
sjálfs, þannig að hver sem er gat tekið
að sér eftir sem áður að temja hesta
fyrir sjálfan sig eða aðra eða segja fólki
til, svo sem sjálfsagt er. Hitt er að
hestamannafélögin höfðu forgöngu
um að fá oftar en ekki aðila til
námskeiðahalds sem höfðu reið-
kennararéttindi félagsins upp á
vasann. Tvennt ávannst með þessu;
fleirum og fleirum varð ljóst að læra
mætti til verka í hestamennsku og
bæta sig á því sviði eins og öðrum og
starfandi reiðkennarar FT þjálfuðust
upp. Árið 1988 hlutu svo fyrstu A
reiðkennarar FT sín réttindi, þeir
voru: Benedikt Þorbjörnsson, Eyjólfur
Ísólfsson, Reynir Aðalsteinsson og
Sigurbjörn Bárðarson, allt jafnframt
tamningameistarar FT og lengi vel
þeir einu í þeim hópi.
Kristinn Hugason
forstöðumaður
Söguseturs íslenska hestsins
14/2021 9