Feykir - 07.04.2021, Side 11
inn í ofn. Gott er að skera
venjulegar kartöflur frekar þunnt
og setja þær í ofnskúffu hella yfir
þær olíu og strá kartöflukryddi.
Avacadosalatið er ferskt og gott
en ásamt avacadionu setjum við
tómata (litla), brauðteninga og
fetaost. Klassísk sósa er pipar-
ostasósan góða.
EFTIRRÉTTUR
Pönnukökur
með ís og marengs
1 dl hveiti
4 egg
100 g brætt smjör
31/2-4 dl mjólk
¼ tsk. vanilludropar
2 dl sykur
2 eggjahvítur
ís
jarðarber
bláber
Mars
rjómi
Aðferð: Hrærið saman hveiti,
eggjum smjöri, mjólk og
vanilludropum og búið til
pönnukökur, þær eru frekar
þunnar (má bæta við hveiti).
Þegar þú ert búinn að baka og
þær orðnar kaldar setur þú ís
ofan á pönnukökuna og pakkar
ísnum inn í pönnukökuna og
setur í frysti. Það er fínt að gera
þetta deginum áður. Áður en
eftirrétturinn er borinn fram
þeytir þú eggjahvítur og sykur og
setur marengsinn ofan á pönnu-
kökuna og setur inn í ofn á grill.
Marengsinn verður dökkur en
passaðu að ísinn verði ekki of
linur. Að lokum setur þú jarðar-
ber og bláber og Mars-sósu
(bræð-ir Mars í potti og bætir við
rjóma).
Verði ykkur að góðu!
Magnús og Kristín skora á
Kristínu Ingibjörgu Lárusdóttur
að taka við keflinu.
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson
SVÖR VIÐ VÍSNAGÁTUR :Band.
Sudoku
Krossgáta
FEYKIFÍN AFÞREYING
Feykir spyr...
Hvað
gerðirðu um
páskana?
Spurt á Facebook
UMSJÓN : klara@nyprent.is
„Ég tók því bara afskaplega
rólega með strákunum
mínum tveimur.“
Brynjar Páll Rögnvaldsson
Finna skal út eitt orð
úr línunum fjórum:
Ótrúlegt - en kannski satt...
Nú eru páskar að baki, mesta og elsta hátíð kristinna manna, þar sem
dauða og upprisu Jesú er minnst. Uppstigningardagur er 40 dögum eftir
páska en þá er þess minnst þegar Jesús steig upp til himna og kvaddi
lærisveina sína. Ótrúlegt, en kannski satt, þá er Mohammed algengasta
nafn í heimi.
Tilvitnun vikunnar
Það má vera að ég sé lifandi goðsögn en það kemur mér
sannarlega ekki að neinu gagni þegar ég þarf að skipta um
dekk. – Roy Orbison
„Ég naut þess að vera með
stórfjölskyldunni minni um
páskana. Samveran fólst
fyrst og fremst í því að elda
góðan mat, fara í göngutúra
og hafa ofan af fyrir
börnunum með því að fara í
fótbolta, spila vist eða henda
í góðan páskaleik.“
Selma Barðdal
„Páskunum var eytt í
samveru með fjölskyldu og
góðum vinum, að ógleymdu
súkkulaðinu!“
Eyrún Sævarsdóttir
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Horfir á pönnuna hitna.
F
„Borða páskaegg og
var með fjölskyldunni.“
Reynald Smári
Folaldakjöt
og fleira gott
Það var stórbóndinn í Stóradal, Víðir Kristjánsson, sem skoraði
á Magnús Sigurjónsson og Kristínu Birgisdóttur í Syðri-Brekku
í Austur-Húnavatnssýslu og eru þau því matgæðingar vik-
unnar. Magnús er fæddur og uppalinn í Hafnarfirði og hefur
lengst af starfað við kennslu en vinnur nú á skrifstofu
Blönduósbæjar ásamt því að sinna bústörfum. Kristín er
uppalin á Kornsá í Vatnsdal og er leikskólakennari og starfar á
Leikskólanum Barnabæ á Blönduósi. Dóttir þeirra heitir Lilja
Karen og er á öðru aldursári.
Hér fyrir neðan má finna eitthvað gómsætt sem hefur verið
mallað í eldhúsinu í Syðri-Brekku.
FORRÉTTUR
Lambafille
með pestósósu
Lambafille
klettasalat
furuhnetur
parmesanostur
Sósa:
2 msk. grænt pestó
1/2 dl hvítvín
1 dl kjúklingasoð
1 dl rjómi
Aðferð: Byrjið á því að krydda
lambafilleið og steikið eða grillið
(magn eftir fjölda). Setjið smá
klettasalat á forréttardisk, þrjár
til fjórar þunnar sneiðar af
lambafille ofan á saltatið,
pestosósu yfir eða meðfram og
stráið nokkrum þurrristuðum
furuhnetum og parmesanosti
yfir.
AÐALRÉTTUR
Folaldakjöt í Caj legi
með kartöflum,
avacadosalati og sósu
Folaldakjöt (t.d lund eða fille)
Caj grillolía (BBQ og hvítlauks)
Pepper Mix krydd
Meðlæti:
Kartöflur
avacado
fetaostur
litlir tómatar
brauðteningar
piparostur
rjómi
Aðferð: Snyrtið kjötið og setjið í
lög (Caj grillolían blanda saman
BBQ og hvítlauks) og kryddið
með PepperMix eða einhverju
góðu sem er til í skápnum. Fínt að
láta liggja vel og lengi. Kjötið má
grilla eða setjið á pönnu, loka á og
( MATGÆÐINGUR VIKUNNAR ) siggag@nyprent.is
Magnús og Kristín | Syðri-Brekku í Austur-Húnavatnssýslu
Magnús og Kristín ásamt Lilju Karen AÐSEND MYND
14/2021 11
Vísnagátur Sveins Víkings
Bogið, neglt í bát það sá.
Á bókum þetta finna má.
Í lykkjum má í sokkum sjá.
Sviptir frelsi, ef lagt er á.