Feykir - 07.04.2021, Page 12
Ertu með fréttaskot, mynd eða
annað skemmtilegt efni í Feyki?
Hafðu samband. Síminn er 455 7176
og netfangið feykir@feykir.is
14
TBL
7. apríl 2021 41. árgangur
Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981
Oddvitar sveitarstjórnanna fjögurra í Austur-
Húnavatnssýslu munu eiga fjarfundi með þing-
flokkum á Alþingi á næstunni eftir því sem kemur
fram á Húnvetningur.is. Markmið fundanna er
tvíþætt, annars vegar að kynna verkefnið Húnvetn-
ingur fyrir þingmönnum og svara spurningum
þeirra en meginmarkmiðið er hins vegar að kynna
áherslur og helstu hagsmunamál Húnvetninga.
„Húnvetningar leggja áherslu á að þingmenn styðji
við brýn verkefni í atvinnu- og byggðamálum í
Austur-Húnavatnssýslu. Svo sem stofnun Umhverfis-
akademíu, uppbyggingu ferðamannastaða, og fjölgun
starfa við innheimtuþjónustu sýslumanns á Blönduósi
og Vinnumálastofnunar á Skagaströnd.
Þá er brýnt að átak verði gert í viðhaldi héraðs- og
tengivega með það fyrir augum að tryggja greiðar
samgöngur innan nýs sveitarfélags, verði samein-
ingartillagan samþykkt,“ segir í frétt á Húnvetningur.
is.
Sameiningarkosningar fara fram 5. júní
Sveitarstjórnir Blönduósbæjar, Húnavatnshrepps,
Skagabyggðar og Sveitarfélagsins Skagastrandar hafa
samþykkt að atkvæðagreiðsla fari fram 5. júní nk. og
falið samstarfsnefnd að undirbúa atkvæðagreiðslu og
kynna tillöguna og helstu forsendur fyrir íbúum.
Þær hafa jafnframt lýst því yfir að þær muni ekki
nýta heimild í sveitarstjórnarlögum, komi til þess að
sameiningartillaga verði samþykkt af íbúum í hluta
sveitarfélaganna, nema að undangengnu samráði við
íbúa. Það felur í sér að ef íbúar í einu sveitarfélagi fella
tillöguna munu aðrar sveitarstjórnir eiga aftur samráð
við íbúa áður en tekin verði ákvörðun um hvort þau
þrjú sveitarfélög sameinist.
Á Húnvetningur.is segir að sveitarstjórnirnar telji
brýnt að fylgt verði þeim áherslum sem fram hafa
komið á fundum samstarfsnefndar með þingmönnum
og ráðherrum varðandi brýn verkefni í atvinnu- og
byggðamálum í Austur-Húnavatnssýslu, svo sem
stuðningi við stofnun Umhverfisakademíu, uppbygg-
ingu ferðamannastaða, og fjölgun starfa við inn-
heimtuþjónustu sýslumanns á Blönduósi og Vinnu-
málastofnunar á Skagaströnd.
Þá er að mati sveitarstjórnanna mikilvægt að átak
verði gert í viðhaldi héraðs- og tengivega með það
fyrir augum að tryggja greiðar samgöngur innan nýs
sveitarfélags. /PF
Helstu hagsmuna-
málin kynnt
Húnvetningar funda með þingflokkum
Lögreglustjórinn á Norðurlandi vestra
Fékk embætti á Vesturlandi
Dómsmálaráðherra hefur skipað
Gunnar Örn Jónsson, lögreglustjóra
á Norðurlandi vestra í embætti
lögreglustjórans á Vesturlandi frá og
með deginum í dag, 7. apríl. Á
heimasíðu stjórnarráðsins kemur
fram að Gunnar Örn hafi frá árinu
2015 verið yfirmaður ákærusviðs við
embætti lögreglustjórans á Suður-
landi og staðgengill lögreglustjóra,
þar til að hann tók við embætti
lögreglustjóra á Norðurlandi vestra
árið 2017.
Gunnar Örn útskrifaðist sem
lögfræðingur árið 2003 og starfaði
sem löglærður fulltrúi sýslumannsins
á Selfossi frá 2004 til ársins 2014, þar
af sem staðgengill sýslumanns frá 2008 og sem
yfirmaður ákærusviðs embættisins frá 2015.
Í samtali við Skessuhorn sagði Gunnar Örn að
hið nýja starf legðist afar vel í hann og kvaðst
hlakka mikið til þess að
kynnast góðu samstarfsfólki.
Sagði hann að hjá embætti
lögreglustjórans á Norður-
landi vestra hafi mikil áhersla
verið lögð á umferðarmál og
skaðaminnkandi aðgerðir í
tengslum við þau enda hafi
náðst mikill árangur við
fækkun slysa á undan-
förnum árum. Jafnframt
sagði Gunnar Örn að eðli
málsins samkvæmt væru em-
bættin ólík með ýmislegt, til
að mynda væru lögreglu-
stöðvarnar sex á Vesturlandi
en tvær á Norðurlandi vestra,
embættið á Vesturlandi víðfeðmt og mannmargt
og segist hann ætla að gefa sér góðan tíma til þess
að setja sig inn í málin í nýju embætti. /PF
Stafræn prentun
í Nýprenti
Borgaröt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is
Borgaröt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is
Borgaröt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is
Borgaröt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is
Canon imagePRESS C700 skilar frábærum gæðum og gerir okkur kleift að prenta bæklinga,
skýrslur, boðskort, plaggöt, markpóst og margt fleira, hratt og örugglega. Nú getum við
rennt í gegn allt að 300g þykkum pappír, vélin getur prentað á allt að 70 blöð á mínútu og
skilar frábærum myndgæðum.
Nýprent ehf. Borgarflöt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is
Með tilkomu Canon ImagePRESS C700 getum við boðið
viðskiptavinum okkar upp á hagstæðari, fjölbreyttari
og skilvirkari þjónustu. Stafræn prentun hentar
sérstaklega vel fyrir þá sem eru ekki að leita eftir
miklu upplagi í prentun.
Leitaðu ekki langt yfir skammt
– kíktu í Nýprent!
BÆKLINGAR ÁRSSKÝRSLUR BOÐSKORT PLAGGÖT EINBLÖÐUNGAR NAFNSPJÖLD MATSEÐLAR MARKPÓSTUR
ný
pr
en
t e
hf
/
0
32
01
8