Feykir - 02.06.2021, Page 4
Við óskum
sjómönnum
til hamingju með daginn
H Ö N N U N P R E N T U N S K I L T A G E R Ð
Borgarflöt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is
BLÖNDUÓSBÆR
VÉLAVERKSTÆÐI
LÖGREGLUSTJÓRINN Á
NORÐURLANDI VESTRA
Steypustöð Skagafjarðar
SAUÐÁRKRÓKI
AÐSENT | Oddvitar í Austur-Húnavatnssýslu skrifa
Á laugardag verður gengið til kosninga um
sameiningu Blönduósbæjar, Húnavatnshrepps,
Skagabyggðar og Sveitarfélagsins Skagastrand-
ar. Sameiningarviðræðurnar eiga sér tölu-
verðan aðdraganda og byggja á farsælli sam-
vinnu sveitarfélaganna í félagsþjónustu og
fræðslumálum, tónlistarskóla, atvinnu- og
menningarmálum, skipu-
lagsmálum og brunavörn-
um. Hagsmunir svæðisins
eru að miklu leyti sam-
eiginlegir, menningin
svipuð og atvinnulíf
byggir á sömu grunn-
stoðum, matvælafram-
leiðslu og ferðaþjónustu.
Með vísan til þessa var
ákveðið að hefja könnunar-
viðræður árið 2017 og í
október 2020 samþykktu
sveitarstjórnirnar að hefja
formlegar sameiningarvið-
ræður. Á laugardaginn
munu íbúar ákveða hvort
sveitarfélögin sameinast
eða ekki.
Vinna við verkefnið hefur gengið vel. Sam-
starfið hefur verið gott og samskiptin hafa verið
hreinskiptin og uppbyggileg. Samstarfsnefndin
hefur ekki alltaf verið sammála, en öll mál hafa
verið til lykta leitt og góð samstaða er um helstu
hagsmunamál svæðisins. Fimm starfshópar voru
skipaðir um ýmsa málaflokka og haldnir voru
íbúafundir í öllum sveitarfélögum til að ná fram
hugmyndum íbúa. Á fimmta tug íbúa og starfsfólks
tók þátt í vinnu starfshópa og rúmlega 100 íbúar
mættu til samráðsfunda í mars.
Niðurstaða starfshópa, íbúafunda og vinnu
samstarfsnefndarinnar eru m.a.:
• Að sameinað sveitarfélag gæti orðið sterkari
eining í hagsmunabaráttu varðandi samgöngu-,
atvinnu- og byggðamál.
• Framtíðarsýn um að Austur-Húnavatnssýsla
verði umhverfisvænasta samfélag landsins.
• Að áhersla verði lögð á að varðveita sérstöðu
hvers samfélags fyrir sig.
• Að samstaða er um að fyrirkomulag fjallskila-
mála verði óbreytt.
• Að leik- og grunnskólar verði reknir áfram á
Blönduósi og Skagaströnd og samstarf og sam-
skipti aukin. Gert er ráð fyrir að Blönduskóli og
Húnavallaskóli sameinist í eina rekstrareiningu
haustið 2022 og verði á einni starfsstöð eigi síðar
en 2024. Ef sameining verður samþykkt. Áætlað
er að leikskóli á Húnavöllum starfi áfram, en lagt
verði mat á kosti og galla þess að Vallaból og
Barnabær sameinist.
• Að fjárhagur sveitarfélagsins verður traustur og
fjárfestingageta góð.
• Að stjórnskipulag sveitarfélagsins verði einfalt
og skilvirkt. Stjórnsýslu- og fjármálasvið, þróun-
arsvið og hafnarmál myndu
hafa aðalstarfsstöð á
Skagaströnd en velferðar-
svið, framkvæmdasvið,
skipulags- og byggingafull-
trúi og slökkviliðsstjóri
myndu hafa aðalstarfsstöð
á Blönduósi.
Allar nánari upplýsingar
má finna á heimasíðu
verkefnisins, hunvetningur.
is. Síðustu vikur hefur sam-
starfsnefndin staðið fyrir
kynningu svo íbúar geti
myndað sér skoðun fyrir
laugardaginn kemur. Upp-
tökur, spurningar íbúa og
svör samstarfsnefndar eru á heimasíðunni.
Samstaða sveitarfélaganna fjögurra er þegar
farin að skila sér í auknum slagkrafti. Oddvitar og
sveitarstjórar hafa átt fundi með öllum þingflokk-
um til að kynna hagsmunamál svæðisins. Auk þess
hafa mennta- og menningarmálaráðherra og
ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
komið í heimsókn, og fundað hefur verið rafrænt
með samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.
Verkefninu er hvergi nærri lokið. Það þarf að
fylgja verkefnum eftir og tryggja að þau klárist
með nýjum þingmönnum og ríkisstjórn. Hver svo
sem niðurstaðan verður á laugardaginn, þá eru
helstu hagsmunamál sveitarfélaganna komin betur
á dagskrá, samstaða sveitarfélaganna er meiri og
íbúar hafa tekið umræðu um þau mál sem brenna
á samfélaginu. Við stöndum sterkar saman.
Við hvetjum alla til að mæta á kjörstað á
laugardaginn, eða greiða atkvæði utan kjörfundar.
Mikilvægt er að þátttaka verði góð og niðurstaðan
skýr.
Jón Gíslason, oddviti Húnavatnshrepps
og formaður samstarfsnefndar
Dagný Úlfarsdóttir,
oddviti Skagabyggðar
Guðmundur Haukur Jakobsson,
oddviti Blönduósbæjar
Halldór G. Ólafsson,
oddviti Sveitarfélagsins Skagastrandar
Húnvetningar: Framtíðin er okkar
Góð kjörsókn tryggir skýra niðurstöðu
Ásmundur Einar Daðason, félags- og barna-
málaráðherra, úthlutaði styrkjum nú á dögunum
til Atvinnumála kvenna. Alls bárust 300
umsóknir og af þeim hlutu 44 verkefni styrki.
Fjögur þeirra koma af Norðurlandi vestra.
Elínborg Erla Ásgeirsdóttir hlaut styrk til að
gera viðskiptaáætlun fyrir verkefnið „Lífræn blóm
í matinn“, Greta Clough hlaut styrk til hönnunar á
húsnæði og markaðssetningu fyrir verkefnið
„Stúdíó Handbendi“, Ingveldur Ása Konráðsdótt-
ir hlaut styrk til að gera viðskiptaáætlun fyrir
verkefnið „Hólakot hundahótel og þjálfun“ og að
lokum hlaut María Eymundsdóttir styrk til að gera
viðskiptaáætlun fyrir verkefnið „Hagnýting burni-
rótar“. /SMH
Atvinnumál kvenna - Styrkúthlutun
Fjórir styrkir á Norðurland vestra
4 22/2021
HOFSÓSI