Feykir - 02.06.2021, Blaðsíða 5
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR F
Meiri verður dramatíkin varla á
fótboltavellinum en síðastliðið
fimmtudagskvöld þegar lið
Tindastóls og Þórs/KA mættust
á Sauðárkróksvelli. Tindastóll
leiddi lengstum í leiknum en
gestirnir tóku yfir leikinn í síðari
hálfleik, jöfnuðu metin þegar
um 20 mínútur voru eftir og
gerðu síðan sigurmarkið
bókstaflega með síðasta sparki
leiksins – rothögg um leið og
bjallan klingdi! Svekkjandi úrslit
fyrir Stólastúlkur en kannski má
segja að sigur Þórs/KA hafi
verið sanngjarn að þessu sinni.
Lokatölur 1-2.
Leikurinn var jafn í fyrri hálfleik
en lið Tindastóls virkaði hættu-
legra í sínum sóknaraðgerðum.
Murr var aðgangshörð strax í
byrjun og það skapaðist oft
hætta þegar hún komst á skrið
með boltann. Hún braut enda
ísinn með skallamarki á 22.
mínútu, hamraði boltann í
markið eftir aukaspyrnu frá
Laufeyju.
Sem fyrr segir var lið Akur-
eyringa sterkara í síðari hálfleik
og uppskar jöfnunarmark á 73.
mínútu en það gerði Sandra
Pepsi Max-deildin | Tindastóll – Þór/KA 1–2
Grátleg lokasekúnda
Murr skallar boltann í markið og gerði fyrsta mark sitt í Pepsi Max deildinni. MYND: ÓAB
Leikmenn Kormáks Hvatar
bættu þremur stigum í
pottinn þegar þeir mættu
Úlfunum á Framvellinum í
Reykjavík á laugardag. Bæði
lið höfðu unnið einn leik og
tapað öðrum í ansi jöfnum
D-riðli 4. deildar og því
mikilvægt fyrir bæði lið að
sækja þrjú stig og koma sér
betur fyrir á stigatöflunni.
Húnvetningar skoruðu
snemma leiks og þar við sat,
lokatölur 0-1.
Það var hinn eldsnöggi og
áræðni Akil Rondel Dexter De
Freitas sem gerði eina mark
leiksins á 10. mínútu. Heima-
menn urðu fyrir áfalli snemma
í síðari hálfleik þegar fyrirliði
þeirra, Arnór Siggeirsson, fékk
að líta annað gula spjald sitt í
leiknum og varð því að skottast
af velli og skilja félaga sína eftir
einum færri. Lið Kormáks
Hvatar hélt síðan sjó það sem
eftir lifði leiks og sætur seiglu-
sigur í höfn.
Næsti leikur er nk. laugar-
dag en þá mæta Húnvetningar
í Kópavog þar sem Vatna-
liljurnar bíða eftir þeim. /ÓAB
4. deild | Úlfarnir – Kormákur Hvöt 0–1
Sterk þrjú stig í pottinn
3. deild | Tindastóll – Augnablik 1–1
Eitt stig í hús hjá Stólum
Lið Tindastóls og Augnablika
mættust í hörkuleik á laugar-
dag í 3. deildinni en leikið var
á Sauðárkróksvelli. Heima-
menn tóku forystuna
snemma leiks en gestirnir
jöfnuðu metin í upphafi
síðari hálfleiks og þrátt fyrir
mikil átök tókst hvorugu
liðinu að gera sigurmarkið og
skildu því jöfn. Lokatölur 1-1.
Það var hlýtt á vellinum í
dag en hliðarvindurinn á
köflum ansi snarpur. Þrátt
fyrir það tókst liðunum að
spila ágætan bolta. Það var
Arnar Ólafsson sem kom liði
Tindastóls yfir á 17. mínútu,
reykspólaði sig inn fyrir vörn
gestanna og skoraði gott mark.
Gestirnir stjórnuðu ferðinni í
fyrri hálfleik en Atli Dagur
varði aukaspyrnu frábærlega
og einu sinni fór boltinn í
stöng.
Augnablikar höfðu vindinn
örlítið í bakið í síðari hálfleik
og þá vill oft vera erfiðara að
hemja boltann. Þeir fengu
aukaspyrnu á 56. mínútu sem
var rennt inn á teiginn, þaðan
var boltinn sendur inn á
markteig þar sem Þorbergur
Steinarsson hælaði boltann
laglega í markið. Leikurinn var
fjörugur allt til loka en
hvorugu liðinu tókst að bæta
við marki. Fyrsta stigið því
komið í hús hjá Stólunum. /ÓAB
Nabweteme sem var nýkomin
inn á. Eftir fjörugan lokakafla
gerði Sandra síðan sigurmark
leiksins á síðustu sekúndunni.
„Það verður að segjast að röð
grundvallarmistaka hafi átt sér
stað undir lokin. Slæmar ákvarð-
anir, rangar staðsetningar, léleg
dekkun – allt hlutir sem við
erum langt því frá að vera þekkt
fyrir. Þór/KA gekk á lagið og
refsaði okkur,“ sagði Guðni Þór
þjálfari að leik loknum.
Úr leik í Mjólkurbikarnum
Lið Breiðabliks og Tindastóls
mættust sl. mánudagskvöld í
Mjólkurbikarnum og var leikið í
Kópavogi. Blikar voru töluvert
sterkari aðilinn í leiknum en
gekk illa að hrista af sér baráttu-
glaðar Stólastúlkur. Heimaliðið
gerði þó mark í sitt hvorum
hálfleik en Murr minnkaði
muninn seint í leiknum og þar
við sat. Lið Tindastóls er því úr
leik í bikarnum en lokatölur 2-1.
Amber Michel í marki
Tindastóls var klárlega maður
leiksins, varði hvað eftir annað
með tilþrifum og hélt Stóla-
stúlkum inni í leiknum. Var
kannski orðin full sókndjörf
undir það síðasta en það vantar
sannarlega ekki stríðshjartað í
hana. /ÓAB
Körfuknattleiksdeild Tindastóls
hefur samið við Sigurð
Þorsteinsson um að leika með
liðinu næsta tímabil. Sigurð þarf
vart að kynna þeim sem fylgjast
með körfubolta en hann hefur
mikla reynslu bæði innanlands
sem erlendis. Í vetur lék
Sigurður með liði Hattar á
Egilsstöðum sem, eftir ágæta
frammistöðu, féll um deild með
14 stig, fjórum stigum frá
Tindastól sem náði inn í
úrslitakeppni með 18 stig.
Sigurður er uppalinn Ísfirð-
ingur og hóf ferilinn með KFÍ
en söðlaði um árið 2006 er hann
flutti sig til Keflavíkur en þar lék
hann til ársins 2011 og svo með
liði Grindavíkur til 2014. Þá
freistaði hann gæfunnar erlend-
is og lék með Solna Vikings í
Svíþjóð og grísku liðunum
Machites Doxas Pefkon og
Gymnastikos Larissa sitthvort
árið þangað til hann kom aftur
til Grindavíkur 2017. Tvö næstu
tímabil var Sigurður á mála hjá
Körfuknattleiksdeild Tindastóls
Sigurður Þorsteins til liðs við Stólana
Baldur Þór Ragnarsson, þjálfari, og Sigurður Þorsteinsson, nýjasti liðsmaður Tindastóls,
handsala leikmannasamninginn. MYND AÐSEND
ÍR og nú í vetur með Hetti
Egilsstöðum.
„Við erum afskaplega spennt
fyrir hans komu á Krókinn og
vonumst til að hann styrki
íslenska kjarnann í liðinu. Hann
hefur mikla reynslu úr úrvals-
deild og ætti að koma sterkur
inn,“ segir Ingólfur Jón Geirsson,
formaður deildarinnar. Hann
vonast til að að þeir leikmenn
sem sömdu við félagið í fyrra til
tveggja ára verði áfram en mál
annarra leikmanna eru í skoðun.
Aðalfundur körfuknattleiks-
deildar Tindastóls er framundan
og segir Ingólfur komið að
tímamótun hjá sér þar sem hann
gefur ekki kost á sér til áfram-
haldandi setu í stjórn. Það verði
ákveðin stjórnarskipti þar sem
stefnir í mikla endurnýjun en
nafn Dags Þórs Baldvinssonar
hefur verið nefnt sem formanns-
efni og beinagrind komin að
nýrri stjórn sem, að sjálfsögðu
þarf samþykki aðalfundar. /PF
Tindastólsmenn gera sig klára í að verjast aukaspyrnu. MYND: ÓAB
Hluti liðsmanna Kormáks Hvatar kampakátir að leik loknum. MYND AF FB
22/2021 5