Feykir


Feykir - 02.06.2021, Blaðsíða 8

Feykir - 02.06.2021, Blaðsíða 8
Loðnuveiðar hafa löngum verið stundaðar við Íslandsstrendur enda um einn helsta nytjafisk Íslendinga að ræða, samkvæmt því sem fram kemur á vef Hafrannsóknastofnunar, en með hlýnun sjávar á undan- förnum árum hefur orðið breyting á dreifingu hennar. Loðna er einn af fimm uppsjávarfiskistofnum sem veiddir eru af íslenskum fiskiskipum og á WikiPedia segir að loðna sé brædd og notuð í fiskifóður og lýsisfram- leiðslu, en sé einnig notuð til manneldis, m.a. séu loðnu- hrogn eftirsótt matvara í Japan. Loðnuveiðar eiga sér aðallega stað þegar hrygningarstofninn þéttist fyrir austan landið og gengur réttsælis með Suður- landi að vetrarlagi á leið til hrygningar en á sumrin er loðnan við íshafsröndina þar sem hún étur dýrasvif. Hrygna nær allt að 20 sm lengd og hængur verður allt að 25 sm langur. Í apríl 1965 gerðust þau undur að vart varð við loðnu- torfu rétt utan hafnarinnar á Sauðárkróki sem hafði lokast inni vegna hafíss sem rekið hafði inn Skagafjörð. Ákváðu vinirnir Magnús Jónsson, sem síðar flutti til Ástralíu ásamt fjölskyldu sinni, og Sighvatur P. Sighvats, ævinlega kallaður Hvati á Stöðinni, að athuga hvort hægt væri að koma henni í land og nýta. Maggi átti bátinn en Hvati nótina og fengu þeir syni sína með sér, æskuvinina Helga, son Magga, og Ingvar Sighvatsson, sem gjarna er kallaður Ingi, en þeir voru þá 17 ára gamlir. Til að varna því að ís ræki inn í höfnina hafði vír verið strengdur fyrir hafnarmynnið, festur á endum og hvíldi á fjórum tunnum svo hann sykki ekki. Hægt var að fara undir hann með báta sem næst hafnargarðinum. 69 tunnur á dag Ingi segir að þeir Maggi og Hvati hafi verið miklir vinir en loðnunni. Svo held ég að Maggi hafi farið út í beinaverksmiðju og spurt hvort það stæði nokkuð á því að þeir tækju loðnu ef hún yrði veidd. Þá var einmitt tiltölulega rólegt í fisk- inum og honum sagt að það væri ekkert mál. Svo þurfti að selja mjölið og menn veltu fyrir sér hvort það yrði nokkurt vandamál en það var þveröfugt. Það var verið að gefa búpeningi beinamjöl en þetta var sprikl- andi hráefni þegar það fór í verksmiðjuna þannig að mjölið var gott og ekki einn einasti poki fór úr héraðinu, allt til bænda innan héraðs, þannig að það nýttist allt.“ Ingi segir að loðnan hafi synt inn í höfnina svo hægt var að moka henni þar upp en stundum lónaði ísinn frá svo hægt var að komast með bátinn jafnvel niður með sandinum. Ingi segir að þá hafi þurft að vakta það ef kom aðfall og varð þá að passa að kippa með hraði og sigla inn í höfn svo báturinn lokaðist ekki inni í ísnum. Á þessum tíma var fjörðurinn lokaður vegna hafíss sem náði jafnvel norður fyrir svokallaða Fagranessteina. Ingi segir að upp á hvern dag frá 23. til 30. apríl hafi loðnunni verið mokað upp, tvær til þrjár veiðiferðir á dag, 715 tunnum alls. Síðan var viku stopp en þrjá síðustu veiði- dagana, 7., 8. og 11. maí, minnkaði umfangið og komu einungis 45 tunnur í land. Dularfullur draumur Það var ekki bara loðna sem slæddist í nótina þessa undar- legu daga fyrir rúmri hálfri öld því í eitt skiptið fylltist hún af óþverra sem enginn vill draga að landi og segir Ingi að pabba hans hefði dreymt fyrir því, a.m.k. hafi draumurinn verið túlkaður þannig. „Pabba dreymdi draum sem hann vissi ekkert hvað þýddi fyrr en dagurinn var búinn. Það var um morguninn, 29. apríl, sem hann segist hafa dreymt Ævintýraleg loðnuvertíð á hafísárunum Mokveiddu loðnu í Sauðárkrókshöfn Ingi Sighvats segir frá skemmtilegu ævintýri sem átti sér stað á vordögum 1965 er hafís lokaði Skagafirði og myndarleg loðnutorfa varð innlyksa sem hann tók þátt í að veiða. Á þessari mynd stendur hann á landfyllingu við smábátahöfnina á Sauðárkróki, þar sem veiðarnar fóru fram áður. MYND: PF VIÐTAL Páll Friðriksson eins og fram kemur hér að framan flutti Maggi til Ástralíu. Kom þó að því að hann flutti til baka á Krókinn en örlögin hög- uðu því þannig að sama dag og Maggi kom dó Hvati. Þótti mörgum það neyðarlegt að þeir fengju ekki að hittast á ný eftir langan aðskilnað. En að loðnuævintýrinu. Frá 23. apríl til 11. maí 1965 voru farnar 22 veiðiferðir á ellefu dögum og loðnu mokað upp úr sjónum, í og við höfnina á Króknum, innan um ís sem hafði fyllt Skagafjörðinn. Alls reyndist aflinn 760 tunnur, sem gerir 69 tunnur á dag, sem bræddur var í mjöl og bændur í héraðinu gáfu búpeningi sínum og þótti afbragðsfóður. Bátur- inn, Hegri SK 164, var í eigu Magga, lítil 3,6 tonna trilla og segir Ingi djarflega hafa verið farið stundum því a.m.k. einu sinni mátti litlu muna að báturinn sykki, svo hlaðinn var hann. Segir hann að 55 tunnur hafi þá verið í bátnum en þann daginn komu þeir með 163 tunnur í land í þremur veiði- ferðum. Hvati átti hins vegar gamla nót sem Ingi telur hafa verið gamlar leifar frá því þegar verið var að veiða smásíld. „Við þurftum að slefa nót- inni tvisvar með okkur því við vorum nærri því sokknir þar sem báturinn var svo drekk- hlaðinn. Magnús sagði við það tækifæri að það væri helvíti hart ef við sykkjum við bryggjuna. Þessi bátur var tal- inn þrjú og hálft tonn en við fylltum hann svoleiðis að það var farið að vatna upp á borðstokkana en það var bara litli listinn innan við sem varnaði því að læki inn. Þá tókum við upp úr honum 55 tunnur en eftir þetta var ekki farið yfir 50 tunnur, en þá er strax búið að létta bátinn um 700 kíló.“ Ingi segir að loðnuveiðin hafi byrjað þegar ísinn var kominn inn á fjörðinn. Pabbi hans hafi alltaf vaktað sjóinn og hefur sjálfsagt séð á fugli að eitthvað spennandi væri komið í fjarðarbotninn. „Pabbi fór til Magga og sagði honum að það hlyti að vera komin bullandi loðna af því að það væri það mikill fugl að sækja í þetta. Pabbi stingur upp á því við Magga hvort þeir ættu ekki að fara að skoða þetta, hvort ekki væri hægt að ná í eitthvað af Báturinn með fánann er Hegri SK 164, sá er dró loðnu- aflann að landi. Hið sögufræga skip, Ernan, í bakgrunni. Á gömlu bryggjunni. Vinirnir Maggi Ástralíufari og Hvati á Stöðinni ásamt Daníel Sighvats. Veiði dagsins er selur og skarfar. Í júní 1965. Helgi Magnússon, fv. siglingamálastjóri, við Syðra-planið. MYNDIR ÚR EINKASAFNI 8 22/2021

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.