Feykir - 02.06.2021, Page 12
Kæru brautskráningarnemar frá
Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra
Sveitarfélagið Skagafjörður sendir ykkur
hamingju- og heillaóskir í tilefni áfangans
Við þökkum samfylgdina
á liðnum árum og hlökkum til
að eiga samleið með ykkur
sem flestum í framtíðinni
Það er Ragnar Karl Ingason
(1964) sem svarar Tón-lystinni
í þetta skiptið. Ragnar býr
á Grandanum í Reykjavík
en fæddist og ólst upp á
Hvammstanga, sonur Sigríðar
Karlsdóttir sjúkraliða og Inga
Bjarnasonar mjólkurfræðings.
„Móðir mín ólst upp á
Laugarbakka í Miðfirði en
faðir minn flutti á sínum tíma
til Hvammstanga frá Selfossi,“
segir Ragnar Karl sem einnig
bjó um tíma á Blönduósi.
Hann hefur lengi verið
viðloðandi tónlist, spilar á
gítar, bassa, munnhörpu og
mandólín. Aðspurður um helstu
afrekin á tónlistarsviðinu segir
hann: „Erfitt að segja. Hef verið
í hinum ýmsu hljómsveitum í
gegnum tíðina en ætli það sé
ekki mesta afrekið að hafa,
ásamt ásamt æskufélögum
mínum Skúla Þórðarsyni og
Geir Karlssyni, endurvakið
Slagarasveitina eftir u.þ.b. 15
ára hlé með frábærum liðstyrk
frá Valdimar Gunnlaugssyni,
söngvara, og Stefáni Ólafssyni.
Og í framhaldi af því farið að
taka upp okkar eigin tónlist sem
finna má á Spotify.“
Hvaða lag varstu að hlusta á?
Eitthvert lag með Nice Cave
sem ég hef verið að hlusta á
þessa dagana.
Uppáhalds tónlistartímabil?
Tímabilið 1963 til 1970 eða frá
því að Bítlarnir koma fram er
toppurinn
Lagalisti Ragnars Karls:
I Hope That I Don´T Fall In
Love With You
TOM WAITS
Clay Pigeons
JOHN PRINE
Fljúðu burt dúfa
AUÐUR
Into My Arms
NICE CAVE & THE BAD SEEDS
Ragnheiður biskupsdóttir
MEGAS
No More Heroes
THE STRANGLERS
Ragnar Karl Ingason | gítar, bassi, munnharpa og mandólín
Hafði planað ferð á tónleika
með Paul en þá kom Covid...
( TÓN-LYSTIN ) oli@feykir.is
ótrúlega spennandi tímabil
en þá komu margar flottar
hljómsveitir fram sem eiga lög
sem hafa elst vel. Svo má nefna
pönkbylgjuna sem gekk yfir
um 1980. Þá komu fram margar
áheyrilegar hljómsveitir eins og
sjá má í kvikmyndinni Rokk í
Reykjavík. Það var skemmtilegt
tímabil.
Hvaða tónlist fær þig til að
sperra eyrun þessa dagana?
Við í Slagarasveitinni erum
þessa dagana að taka upp
fjögur lög í hljóðveri sem munu
koma út í vor og sumar. Eðli
málsins samkvæmt þá fylgir
þessari vinnu mikil hlustun og
ég er að því þessa dagana.
Hvers konar tónlist var hlust-
að á á þínu heimili? Á mínu
æskuheimili á Garðavegi 15
á Hvammstanga var til plötu-
spilari sem var hlustað mikið
á og með tíð og tíma safnaðist
upp ágætis plötusafn með
fjölbreyttri músík. Móðir mín
spilaði á gítar og hljómborð
og hún átti það til að syngja
og spila fyrir okkur systkinin.
Í minningunni voru það oft lög
eftir Sigfús Halldórsson.
Hver var fyrsta platan/diskur-
inn/kasettan/niðurhalið sem
þú keyptir þér? Fyrsta hljóm-
platan sem ég keypti mér var
með Hljómsveitinni Paradís.
Hvaða græjur varstu þá með?
Plötuspilari og svo var til
kassettutæki sem var óspart
notað til að taka upp lög úr
útvarpinu.
Hvert var fyrsta lagið sem
þú manst eftir að hafa fílað í
botn? Ævintýri með Björgvini
Halldórssyni og hljómsveitinni
Ævintýri.
Hvaða lag getur eyðilagt fyrir
þér daginn? Ég á ekkert svo-
leiðis lag.
Þú heldur dúndurpartí í
kvöld, hvað læturðu hljóma í
græjunum til að koma öllum
í stuð? Hef prufað nokkrum
sinnum að setja Deildarbungu-
bræður á fóninn við þessar
aðstæður þegar liðið er á kvöld-
ið. Klikkar ekki en tímasetning-
in þarf að vera rétt.
Þú vaknar í rólegheitum á
sunnudagsmorgni, hvað viltu
helst heyra? Eitthvað rólegt
með Leonard Cohen.
Ragnar Karl mundar gítarinn.
MYND AÐSEND
Þú átt þess kost að fara hvert
sem er í heiminum og skella
þér á tónleika. Hvert færirðu,
á hvaða tónleika og hvern
tækirðu með þér? Færi á
tónleika með Paul McCartney í
Barcelona með Skúla Þórðar-
syni, Geir Karlssyni og eigin-
konum. Þessa ferð var búið að
skipuleggja, kaupa miða og átti
að verða að veruleika fyrir tæpu
ári síðan en Covid eyðilagði þau
áform.
Hvaða músík var helst blastað
í bílnum þegar þú varst ný-
kominn með bílpróf? Bubbi átti
sviðið á þeim tíma sem ég fékk
bílprófið. Einnig var ég þá búinn
að uppgvöta David Bowie og
hlustaði mikið á hann.
Hvaða tónlistarmaður hefur
þig dreymt um að vera?
Þeir eru nú fjölmargir. Paul
McCartney og David Bowie
koma fyrst upp í hugann af
erlendum tónlistarmönnum en
hér innanlands eru það Bubbi,
Magnús Eiríks, KK svo ein-
hverjir séu nefndir.
Hver er að þínu mati besta
plata sem gefin hefur verið
út eða sú sem skiptir þig
mestu máli? Verð að nefna
Ísbjarnarblús með Bubba. Það
var mikil breyting á hlustun
á tónlist hjá mér og mínum
vinahópi í framhaldi af útgáfu
plötunnar á sínum tíma.
12 22/2021