Feykir


Feykir - 02.06.2021, Qupperneq 13

Feykir - 02.06.2021, Qupperneq 13
Ólafur Bjarni Haraldsson er að eigin sögn bóndasonur af Langholtinu sem álpaðist á sjó. Ólafur er sonur Hadda og Ragnheiðar í Brautarholti, lærður smiður og stýrimaður og starfar sem sjómaður á Málmey SK1 og sveitar- stjórnarfulltrúi í Sveitarfélaginu Skagafirði fyrir Byggðalistann. Í dag er Ólafur búsettur á Hofsósi með sambýliskonu sinni Wioletu Zelek. Feykir hafði samband við Ólaf og spurði hann hvernig það færi saman að vera sjómaður og sveitastjórnarfulltrúi. „Það fer nú bara frekar vel saman. Ég renndi blint í sjóinn með það þegar ég sóttist eftir að leiða Byggðalistann í síðustu sveitarstjórnarkosningum. Ég vissi að byggðarráðsfundir væru vikulega og sveitar- stjórnarfundir mánaðarlega og því alveg ljóst að ég gæti sjálfsagt aldrei náð öllum fundum sökum fjarveru. En það lá líka fyrir að maður kæmi í manns stað og í rauninni ekki aðalatriðið hver það er sem kemur okkar sjónarmiðum á framfæri á fundum. Samstarfs- fólk mitt í sveitarstjórn og Ólafur Bjarni Haraldsson sjómaður og sveitastjórnarfulltrúi Sveitarstjórnarstigið er hugsað til þess að þjóna nærsamfélaginu Ólafur Bjarni. MYND AÐSEND byggðarráði hefur svo verið liðlegt við að skipuleggja fundi þannig það henti sem flestum en meðal annars voru reglulegir fundir byggðarráðs færðir á miðvikudaga sem er yfirleitt löndunardagur hjá Málmey þannig sjómenn geta vel tekið þátt í sveitarstjórnarstörfum,“ segir Ólafur. Ólafur er nokkuð sáttur með það hvernig kjörtímabilið hefur gengið hingað til en hann og Byggðalistinn hafa lagt mikla áherslu á húsnæðismál leik- og grunnskóla sveitarfélagsins. „Ég er nokkuð sáttur með það hvernig til hefur tekist enn sem komið er. Upphaf kjörtíma- bilsins var aðeins strembið, það voru umdeild mál í gangi sem við hefðum vilja afgreiða öðruvísi og höfðum kannski ekki erindi sem erfiði við afgreiðslur þeirra. En við höfum reynt að nálgast hlutina málefnalega, og almennt hefur okkur tekist vel til við að hafa áhrif á hin ýmsu mál. Það má því segja að markmiðin náist VIÐTAL Sæþór Már Hinriksson Gleðilegan sjómannadag! Óskum sjómönnum og fjölskyldum þeirra innilega til hamingu með sjómannadaginn. Góða skemmtun á sjómannadaginn. því eitt af öðru, þó vissulega séu einhver eftir. Við settum sem dæmi mikinn fókus á húsnæðismál leik- og grunn- skóla sveitarfélagsins og þar vil ég meina að hlutirnir séu að þokast í rétta átt þó það geri það ekki með neinum látum.“ Þegar blaðamaður Feykis spurði Ólaf hver áform hans og Byggðalistans væru fyrir sveitarstjórnakosningarnar næsta vor sagði Ólafur: „Þó það sé kannski ótíma- bært að ræða það mikið núna, þá finnst mér ansi líklegt að Byggðalistinn muni bjóða fram öflugan lista fyrir næstu sveitarstjórnarkosningar. Ég sjálfur mun örugglega taka þátt í því á einhvern hátt. Þegar Byggðalistinn var að fæðast fyrir síðustu kosningar, þá lögðum við upp með að reyna að fá fólk á lista frá sem flestum svæðum sveitarfé- lagsins og úr sem ólíkustu hópum. Sveitarstjórnarstigið er jú hugsað til þess að þjóna nærsamfélaginu og því afar mikilvægt að hafa tengingu við allt nærsamfélagið. Þar held ég að okkur hafi tekist nokkuð vel til, þó alltaf megi gera betur. Okkur langar að stækka hópinn og fá enn betri tengingu við sem fjölbreytt- ustu hópa samfélagsins. Ætli sumarið verði ekki notað til að kortleggja hvar við þurfum að bæta okkur og reyna svo að fá með okkur í lið fleira öflugt fólk til að móta stefnur og setja okkur ný markmið,“ segir Ólafur að lokum. 22/2021 13

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.