Feykir - 09.06.2021, Side 2
Þegar ég
var yngri
maður en
ég er í
dag fór ég
s n e m m a
að hafa
áhuga á
þjóðmálum, þeim málum sem eru í
gangi í þjóðfélaginu og í mínu
heimahéraði. Ég myndaði mér
skoðanir á ákveðnum hlutum,
varði þær síðan og studdi eins og
íþróttalið. Ef einhver hafði út á
þær skoðanir að setja hafði hann
einfaldlega bara rangt fyrir sér og
ég rétt. Síðan fór ég í
framhaldsskóla, kynntist nýju
fólki, prófaði nýja hluti og öðlaðist
víðari sýn á hlutina.
Ein mín stærsta og verðmætasta
reynsla í lífinu var þegar að ég
áttaði mig á því að það væru fleiri
hliðar á teningnum en sú sem ég sá.
Ég fór að kynna mér röksemdir
þeirra sem voru ósammála mér og
uppfærði skoðun mína samkvæmt
því, annað hvort féll ég meira frá
henni eða að henni fyrir vikið, en
eitt var víst, skoðunin sem slík
styrktist. Grunnurinn varð betri,
milliveggirnir og þakið, hún fór að
halda vatni. Það kom einnig fyrir að
ég áttaði mig á að skoðunin var
einfaldlega á sandi byggð og féll
hún því í næsta steypiregni.
Þetta var hugljómun sem ég
vona að fleiri hafi orðið fyrir, því ég
mæli sterklega með þessari
upplifun. Það er erfitt að reyna að
bæta samfélagið ef meginþorri íbúa
þess er búinn að ákveða að
samfélagið sé ömurlegt og ekkert
fær þeim haggað. Ég vona innilega
að við viljum öll bæta okkar
samfélag og ég held að lykillinn að
því sé að auka víðsýni, ekki horfa á
vandamál heldur lausnir og ganga í
takt, því að flestar hindranir eru
yfirstíganlegar í krafti fjöldans.
Fjöldinn þarf ekki að vera
sammála um allt saman, en svo
lengi sem hann er sammála um sett
markmið og til í að leita
sameiginlegra lausna frá öllum
hliðum, þá er vegurinn greiður.
Sæþór Már Hinriksson
blaðamaður
LEIÐARI
Víðsýni er öllum
til happs
AFLATÖLUR | Dagana 30. maí til 5. júní á Norðurlandi vestra
Arnar landaði tæpum 471 tonnum
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
Elfa HU 191 Handfæri 3.284
Fengur ÞH 207 Handfæri 2.581
Hjalti HU 313 Handfæri 3.016
Hrund HU 15 Handfæri 1.506
Húni HU 62 Handfæri 547
Ísak Örn HU 151 Handfæri 1.355
Jenny HU 40 Handfæri 1.840
Kambur HU 24 Handfæri 1.981
Kópur HU 118 Handfæri 512
Kristín HU 168 Handfæri 1.257
Loftur HU 717 Handfæri 2.445
Lukka EA 777 Handfæri 1.599
Svalur HU 124 Handfæri 1.406
Sæunn HU 30 Handfæri 1.594
Viktor Sig HU 66 Handfæri 1.935
Viktoría HU 10 Handfæri 1.656
Víðir EA 432 Handfæri 1.249 Alls á Skagaströnd 49.040
HOFSÓS
Skotta SK 138 Handfæri 1.136
Alls á Hofsósi 1.136
HVAMMSTANGI
Harpa HU 4 Dragnót 10.372
Alls á Hvammstanga 10.372
SAUÐÁRKRÓKUR
Arnar HU 1 Botnvarpa 470.574
Álborg SK 88 Handfæri 325
Drangey SK 2 Botnvarpa 210.128
Gammur II SK 120 Grásleppunet 2.255
Gjávík SK 20 Handfæri 1.633
Hafey SK 10 Handfæri 2.226
Kristín SK 77 Handfæri 2.011
Maró SK 33 Handfæri 1.437
Már SK 90 Handfæri 738
Málmey SK 1 Botnvarpa 148.217
Skvetta SK 7 Handfæri 1.121
Tara SK 25 Handfæri 1.270
Vinur SK 22 Handfæri 1.215 Alls á Sauðárkróki 843.150
SKAGASTRÖND
Alda HU 112 Handfæri 1.784
Arndís HU 42 Handfæri 2.448
Auður HU 94 Handfæri 3.107
Bergur Sterki HU 17 Handfæri 2.402
Bjartur í Vík HU 11 Handfæri 2.978
Blíðfari HU 52 Handfæri 3.254
Bragi Magg HU 70 Handfæri 1.450
Dagrún HU 121 Handfæri 1.854
Það var landað rúmum 843 tonnum í síðustu viku á Króknum og af þeim átti Arnar HU 1
meira en helming eða 470.574 kg. Togararnir Drangey SK 2 og Málmey SK 1 lönduðu einnig
í vikunni samanlagt 358.354 kg. Strandveiðibátarnir níu sem voru á veiðum í þessari viku
lönduðu tæpum 12 tonnum og var aflahæst Hafey SK 10 með 2.226 kg. Gammur II SK 120
landaði svo 2.255 kg af grásleppu en hann er sá eini sem er ennþá á grásleppuveiðum á
Norðurlandi vestra.
Á Skagaströnd voru 25 bátar á standveiðum í síðustu viku og náðu þeir að landa rúmum 49
tonnum og var Elfa HU 191 aflahæst með 3.284 kg en fast á eftir henni kemur Blíðfari HU 52 með
3.254 kg. Einn standveiðibátur landaði á Hofsósi, Skotta SK 138, 1.136 kg og einnig landaði einn
bátur á Hvammstanga, Harpa HU 4, en hún var á dragnótarveiðum og var með 10.372 kg. Alls
var landað 903.698 kg á Norðurlandi vestra. /SG
Sameiningartillagan felld á Skagaströnd og í Skagabyggð
Úrslitin mikil vonbrigði hjá oddvitum
Skagabyggðar og Húnavatnshrepps
Síðastliðinn laugardag var kosið
um sameiningartillögu fjögurra
sveitarfélaga í Austur-Húna-
vatnssýslu; Blönduósbæjar,
Húnavatnshrepps, Skagabyggðar
og Skagastrandar. Tillagan var
felld á Skagaströnd, þar sem
69,2% íbúa sögðu nei við
sameiningu, og í Skagabyggð
sögðu 54,7% íbúa nei. 89,4%
íbúa Blönduósbæjar sögðu já við
sameiningu og í Húnavatns-
hreppi sögðu 56,6 % íbúa já.
„Sveitarstjórnirnar fjórar
hafa lýst því yfir að þær muni
ekki nýta heimild í 2. mgr. í 120.
gr. sveitarstjórnarlaga, komi til
þess að sameiningartillaga verði
samþykkt af íbúum í hluta
sveitarfélaganna, nema að
undangengnu samráði við íbúa.
Í því felst að hafni íbúar einhvers
sveitarfélaganna tillögu um
sameiningu í kosningum, munu
aðrar sveitarstjórnir ekki taka
ákvörðun um sameiningu
þeirra sveitarfélaga án þess að
hafnar verði nýjar sam-
einingarviðræður og kosið að
nýju,“ segir á vef sam-
eininganefndar.
„Að sjálfsögðu voru þetta
mikil vonbrigði, að þessum
sveitarfélögum sem hafa haft
mikið samstarf um langt skeið,
skyldi ekki öllum lánast að
samþykkja sameiningu. Ef til
vill var það of mikil bjartsýni að
vonast til að þetta gengi en það
kom mér á óvart að Skagabyggð
skyldi fella og hversu stórt
hlutfall kaus gegn sameiningu á
Skagaströnd, fyrst sveitar-
stjórnin þar ákvað að taka þátt í
þessari vinnu á annað borð,“
segir Jón Gíslason, formaður
sameiningarnefndar og oddviti
Húnavatnshrepps.
Hann segir samstarfs-
nefndina vera nú um það bil að
ljúka störfum þar sem þessu
verkefni er lokið en
sveitarfélögin sem samþykktu
tillöguna hafa ekki rætt
framhaldið.
„Það er ljóst að meirihluti
íbúa í Húnavatnshreppi og á
Blönduósi tók afdráttarlausa
afstöðu með þessari sam-
einingu. Hvað verður í
framhaldinu verður tíminn að
leiða í ljós.
Ég vil þakka þeim félögum í
RR ráðgjöf Róberti Ragnarssyni
og Jóni Hróa Finnssyni kærlega
fyrir gott samstarf og fag-
mannlega vinnu í þessu
sameiningarferli og óska þeim
góðs gengis í sínum störfum í
framtíðinni. Einnig vil ég þakka
öllum nefndarmönnum fyrir
samstarfið með von um að við
getum öll notið sumarsins sem
er nú loksins komið.“
Best að vera ekki með
svartsýnisraus
„Viðbrögð mín eru fyrst og
fremst vonbrigði með niður-
stöður hér í Skagabyggð og á
Skagaströnd og komu þær mér
á óvart. Ég taldi að íbúar væru á
þeirri skoðun að gott væri að
sameinast öllum hinum
sveitarfélögunum í A-Hún.
Mikil vinna er að baki hjá
samstarfsnefnd og því eru það
vissulega vonbrigði að þetta sé
niðurstaðan,“ segir Dagný Rósa
Úlfarsdóttir, oddviti Skaga-
byggðar og bætir við að
sveitarstjórn muni í framhaldi
funda um niðurstöður en ekki
liggur fyrir hvernig framhald
gæti orðið.
„Það er mikilvægt að íbúar
sveitarfélaga fái að segja sína
skoðun í framtíðaráformum
þess og niðurstaðan hjá okkur
er sú að fólki hugnast betur að
vera án fjöldans, hvernig sem
það á eftir að ganga. Best að vera
ekki með svartsýnisraus hvað
það varðar á þessari stundu
heldur horfa fram á veginn og
vinna úr niðurstöðum,“ segir
Dagný Rósa. /SMH, PF
2 23/2021