Feykir - 09.06.2021, Blaðsíða 9
Prjónagleðin verður haldin á
Blönduósi í fimmta sinn dagana
11. - 13. júní nk. og er búist við
mikilli prjónahátíð. Boðið
verður upp á fjölbreytt
námskeið sem tengjast
prjónaskap, garni og ull, fjöl-
breytta fyrirlestra, spennandi
prjónatengda viðburði og svo
hefur Garntorgið mikið
aðdráttarafl fyrir prjónafólk.
Einnig er haldin hönnuna og
prjónasamkeppni í tengslum
við hátíðina.
„Við eigum von á að fjöldi
prjónafólks af öllu landinu
heimsæki svæðið þessa helgi og
líta skráningar á námskeið og
sala armbanda vel út,“ segir
Svanhildur Pálsdóttir, við-
burða- og markaðsstjóri
Textílmiðstöðvar Íslands.
Mikil ánægja ríkir hjá
skipuleggjendum yfir því að
hægt sé að halda Prjónagleðina
að þessu sinni þar sem hún var
felld niður í fyrra en þetta er í
fimmta skipti sem hún er
haldin á Blönduósi, sú fyrsta
árið 2016. Búið er að setja
saman og auglýsa spennandi
dagskrá sem samanstendur af
prjóna-, þæfingar-, og hekl-
námskeiðum, fyrirlestrum,
prjónatengdum viðburðum og
fleiru áhugaverðu og segir
Svanhildur að ætlunin sé að
skapa prjónafólki skemmti-
legan vettvang til þess að njóta
samveru og fræðslu.
Eru einhverjar nýjungar frá
fyrri hátíðum? -Já, við verðum
með fleiri prjónatengda
viðburði að þessu sinni, meiri
afþreyingu tengda prjóni. Það
verður prjónamessa í
Blönduóskirkju, prjónaganga
með leiðsögn út í Hrútey,
vinnustofa fyrir endurnýtingu
á gömlu prjónlesi og svo ætla
Spunasystur að sunnan að taka
á móti gestum og leyfa fólki að
taka í rokka og halasnældur.
Hvernig hefur undirbúningi
verið háttað fyrir þessa hátíð?
Ég hef verið í hlutastafi í vetur
við undirbúning hátíðarinnar,
en Textílmiðstöð Íslands fékk
styrk frá Uppbyggingarsjóði
SSNV til þess að ráða í það starf.
Undirbúningur okkar felst m.a.
í því að útvega kennara og
skipuleggja námskeið,
fyrirlestra og viðburði. Finna
aðila til þess að selja vörur á
Garntorginu og samræma þetta
allt saman. Svo eru auðvitað
kynningar- og markaðsmálin
stór hluti af undirbúningnum.
En þetta er mjög skemmtilegt
starf og ég mjög heppin að fá að
undirbúa þennan flotta
viðburð, vasast um leið í mínu
helsta áhugamáli og tala við fólk
um prjónaskap daginn út og
inn. Svo má heldur ekki gleyma
hönnunar- og prjónasamkeppni
Prjónagleðinnar sem er
órjúfanlegur hluti af hátíðinni.
Að þessu sinni var verkefnið að
hanna vesti og nota áferð í
náttúru Íslands sem innblástur.
Þátttakan var frábær og í
keppnina bárust um 25 verk
sem dómnefnd mun yfirfara og
velja þrjú til að verðlauna.
Helsti styrktaraðili keppninnar
er Ístex en einnig gefa nokkur
fyrirtæki á Norðurlandi vestra
vegleg verðlaun.
Hvað er það sem fólk sækist
mest eftir á svona hátíð?
-Samveru, félagsskap og að
kaupa garn held ég. Að upplifa,
læra og sjá eitthvað nýtt í góðum
félagsskap þeirra sem hafa
áhuga á því sama og maður
sjálfur. Prjónasamfélagið á
Íslandi er mjög stórt og
vinsældir prjóns hafa aukist
gríðarlega síðustu ár og ekki síst
núna í Covid. Góður aðgangur
að fjölbreyttum uppskriftum,
ótrúlega fallegu garni og
leiðbeiningum um alla
mögulega hluti á netinu hafa
mikið að segja varðandi þetta
prjónagóðæri sem ríkir núna,
einnig er félagsskapurinn og
stuðningurinn sem verður til í
Feisbókarhópum prjónafólks
og á Instagram mikilvæg
hvatning fyrir mjög marga. En
við þurfum líka að hittast í
alvörunni og það eru mjög
margir farnir að þrá það mjög
að sitja með góðan kaffibolla,
prjóna og spjalla og það er
einmitt eitt af því sem við ætlum
að gera á Prjónagleðinni.
Hvað er Garntorgið og af
hverju hefur það svona mikið
aðdráttarafl fyrir prjónafólk?
-Garntorgið, það er sölutorg
með garn og aðrar
lífsnauðsynlegar vörur fyrir
prjónafólk. Að þessu sinni
verða um tuttugu aðilar með
sölusvæði á Garntorginu sem
verður í Íþróttamiðstöðinni á
Blönduósi. Flestir prjónarar eru
með heita ástríðu fyrir garni og
ull og að hafa allt þetta úrval frá
ólíkum aðilum, handliturum,
smáframleiðendum og inn-
flytjendum undir sama þaki er
náttúrulega bara alveg geggjað.
Garn rennur ekki út á tíma, er
hvorki með síðasta söludag eða
neysludag þannig að okkur
prjónafólki er alveg óhætt að
eiga talsverðar birgðir af því,
eiginlega er það bara betra,
a.m.k. þegar maður kemst ekki í
prjónabúð hvenær sem er. Það
er ekki gott að vanta garn, það
get ég sagt þér. Á Garntorginu
verður sýning á verkunum í
hönnunarsamkeppni Prjóna-
gleðinnar, sem og sýning frá
Ístex, veitingasala og fleira
áhugavert. Ætli megi ekki segja
að Garntorgið verði hjarta
hátíðarinnar.
Hefur Covid-19 einhver áhrif
á aðsókn eða framkvæmd
hátíðarinnar? -Hvað fram-
kvæmd hátíðarinnar varðar
munum við að sjálfsögðu leggja
okkur fram um að hlíta öllum
reglum sem varða sóttvarnir og
fjöldatakmarkanir. En mér
finnst svolítið erfitt að ráða í
aðsóknina. Fólk hefur mikla
þörf fyrir að hittast og gera
eitthvað skemmtilegt eftir
langan og skrykkjóttan vetur en
er jafnframt með varann á sér
varðandi fjölmenni og
samkomur. Ég vona bara að
prjónagleðin og garnástríðan
drífi fólk af stað til að eiga
skemmtilega prjónadaga hérna
með okkur.
Eitthvað sem þú vilt koma á
framfæri? -Dagskrá hátíðar-
innar má finna á https://www.
textilmidstod.is/is/vefverslun/
dagskra-2021. En einnig langar
mig að undirstrika það að
Prjónagleðin er fyrir alla sem
hafa gaman af því að prjóna,
ekki fyrir einhverja útvalda
prjónasnillinga eða sér-
fræðinga. Til þess að viðburður
sem þessi festi sig í sessi þarf að
mæta á staðinn og taka þátt.
Það er svo ótrúlega dýrmætt
fyrir svæði eins og okkar hér á
Norðurlandi vestra að eiga
fjölbreytta og litríka flóru
viðburða sem krydda mannlífið
og gera samfélagið okkar
líflegra.
Fimmta Prjónagleðin haldin um helgina
Styttist í mikla prjónahátíð á Blönduósi
Svanhildur Pálsdóttir, viðburða- og
markaðsstjóri Textílmiðstöðvar Íslands.
AÐSENDAR MYNDIR.
Einnig ætlum við að bjóða upp
á morgunjóga, en sennilega er
nú best að láta prjónana hvíla
meðan á jóganu stendur.
Oft er talað um að hátíðir eða
viðburðir þurfi hátt í áratug
til að sanna sig eða festa sig í
sessi. Teljið þið ykkur vera
komin á þann stað eða er enn
verið að harka? -Ég myndi nú
segja að við værum enn í
harkinu, ekki síst af því að
hátíðin í fyrra féll niður og
aðstæður núna takmarka mjög
komur erlendra gesta og
kennara á hátíðina. En við
settum þess í stað fókusinn á
það að ná til allra prjónara á
Íslandi með öflugu
markaðsstarfi á samfélags-
miðlum og ég er að vona að það
muni bera árangur. Svo er það
auðvitað okkar að bjóða upp á
spennandi námskeið og
áhugaverða dagskrá þannig að
prjónafólki finnist það þess
virði að koma á Blönduós og
taka þátt í gleðinni með okkur.
Við fáum góðar undirtektir hjá
heimafólki þegar til þess er
leitað varðandi hátíðna, það er
afar mikilvægt sem og að
fyrirtækin á svæðinu nýti
tækifærin sem hún býður upp á
t.d. í ferðaþjónustu og með því
að hafa opið t.d. í verslunum og
afþreyingu.
Alltaf gaman að upplifa, læra og sjá eitthvað nýtt í góðum félagsskap. Á Garntorgi er hægt að fá litríkt garn og aðrar lífsnauðsynlegar vörur
fyrir prjónafólk.
Eftir langan og skrykkjóttan tíma er þörfin fyrir samveru orðin mikil og
það fær fólk að upplifa á prjónahátíð.
23/2021 9