Feykir - 09.06.2021, Qupperneq 4
Forðum þú ungur áttir
ærunnar stöðu hreina.
Með henni lifa máttir,
merktir ei bletti neina.
Stóðstu þá fjarri föllum,
forðaðist vegi pretta.
Saklaus í siðum öllum
sýndir þar breytni rétta.
Gott var þá góðu að hlýða,
gekkstu með sól í hjarta.
Fannst ekki fyrir kvíða,
framtíð þér áttir bjarta.
Tókst ekki táli neinu,
tjáðir þig vel í önnum.
Fús vildir hafa á hreinu
hugsjón á grunni sönnum.
En heimurinn engum hlífir,
hann er í slæmu fari.
Sig móti öllu ýfir,
einkum þó hreinu svari.
Rekur fólk víða í villu,
vargstönn í flesta heggur.
Sparar ei sporin illu,
spillir og eyðileggur!
Þannig varst þú svo tekinn
það var á villumiðum,
hristur til skaða og skekinn,
skemmdur á flestum sviðum.
Settur í þrauta þvingur,
þreyttur á göngu brattans,
léstu svo litla fingur
lenda í höndum skrattans!
Síðan, já, síðan fékkstu
setningarfræði nýja.
Öfugt að öllu gekkstu,
annað þig fór að knýja.
Sagður þó sértu slyngur,
sál þína margt nú skaðar.
Þú átt ei þína fingur,
þeir eru annars staðar!
AÐSENT | Rúnar
Kristjánsson skrifar
Farnir
fingur
Eftir sumardaginn
fyrsta var lítið hlýrra á
morgnana en áður hafði
verið, hrímuð jörð og
kuldi í lofti. Það kallaði á
eftirfarandi viðbrögð:
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Páll Friðriksson, palli@feykir.is & 861 9842
Blaðamenn:
Óli Arnar Brynjarsson, oli@feykir.is | Sæþór Már Hinriksson, bladamadur@feykir.is
Sigríður Garðarsdóttir, siggag@nyprent.is | Klara Björk Stefánsdóttir, klara@nyprent.is
Prófarkalestur: Fríða Eyjólfsdóttir
Auglýsingastjóri: Sigríður Garðarsdóttir, siggag@nyprent.is
Áskriftarverð: 615 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 755 kr. m.vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171.
Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum
4 23/2021
Feykir rekur nú inn nefið á
Hvammstanga og forvitnast
um bók-hald Helgu
Hreiðarsdóttur, hjúkrunar-
fræðings og ljósmóður. Þegar
Helga er spurð út í hvaða
bækur hún sé með á
náttborðinu segist hún ekki
geta talist afkastamikill
lestrarhestur þó hún sé alltaf
með minnst eina bók á
náttborðinu og lesi fyrir
svefninn. „Misjafnt hvað ég
kemst yfir mikið áður en
svefninn sigrar, stundum bara
ein blaðsíða. Núna eru þrjár
bækur á náttborðinu,“ segir
hún.
„Ein er nýjasta árbók
Ferðafélags Íslands sem að
þessu sinni er skrifuð af Ólafi
Erni Haraldssyni og fjallar um
gönguleiðirnar Laugaveginn og
Fimmvörðuháls. Það er alltaf
tilhlökkunarefni að fá árbókina
í hendurnar. Svo er þarna bók
sem nefnist Íslenskar ljósmæður
og er í þrem bindum. Ég var svo
heppin að finna þessar bækur á
Nytjamarkaðnum hér á
Hvammstanga. Þessar bækur
eru mikill fjársjóður, þær lýsa
lífi og starfi ljósmæðra á árum
áður, ótrúlegum hrakningum á
ferðum þeirra til fæðandi
kvenna og mikilli fórnfýsi
þessara hugrökku ljósmæðra.
Séra Sveinn Víkingur tók
saman þessar merku sögur. Ég
( BÓK-HALDIÐ ) oli@feykir.is
„Þvílík hamingja að eignast þessa bók!“
Helga Hreiðarsdóttir | hjúkrunarfræðingur á Hvammstanga
Helga Hreiðarsdóttir. MYND AÐSEND
get endalaust gluggað í þessar
bækur. Þriðja bókin heitir
Húsið okkar brennur, frábær
bók sem segir baráttusögu
Gretu Thunberg og fjölskyldu
hennar. Einlæg lýsing á því
hvernig þessi unga sænska
stúlka yfirsteig mikla erfiðleika
til að berjast gegn stærstu ógn
sem nokkurn tímann hefur
steðjað að mannkyninu.“
Hver er uppáhaldsbókin af þeim
sem þú hefur lesið gegnum
tíðina? „Erfitt er að tiltaka
einhverja eina uppáhaldsbók,
ætli það væri þá ekki helst bók
sem ber nafnið Bókaþjófurinn.
Þetta er einstaklega góð bók,
mögnuð saga sem gerist í
Þýskalandi stríðsáranna. Hún
er skrifuð af ungum áströlskum
höfundi sem á rætur sínar í
Þýskalandi, Markus Zusak.
Margar fleiri bækur gæti ég
nefnt, t.d. Draumalandið eftir
Andra Snæ Magnason,
Mátturinn í núinu eftir Eckhart
Tolle og lítil bók sem ber heitið
Það er sérstakur staður í helvíti
fyrir konur sem hjálpa ekki hver
annari eftir sænsku höfundana
Lizu Marklund og Lottu
Snickare. Heiti þeirrar bókar er
setning sem höfð er eftir
Madeleine Albright, fyrstu
konunni sem varð utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, þegar
hún hélt fyrirlestur í
Stokkhólmi 2004. Snilldarbók.“
Helga segist lesa alls konar
bækur en hafi lítið gaman af
glæpasögum og les hvorki
Arnald né Yrsu. „Hins vegar
finnst mér sögulegar skáld-
sögur oft mjög skemmtilegar.
Margar ljóðabækur eru líka í
uppáhaldi,“ segir hún.
Hvaða bækur voru í uppáhaldi
hjá þér þegar þú varst barn?
„Þegar ég var krakki las ég allt
sem ég komst í, til dæmis Fimm
fræknu eftir Enid Blyton, Anna
í Grænuhlíð og Tengdadóttirin
eftir Guðrúnu frá Lundi, allt í
bland. Á unglingsárunum man
ég eftir að hafa lesið þá frægu
bók Kapítólu fram á rauða
morgun, með vasaljós og
sængina breidda yfir haus.“
Er einhver ein bók sem hefur
sérstakt gildi fyrir þig? „Þegar
ég var unglingur las ég bókina
Ég lifi eftir Martin Grey og hún
hafði gríðarleg áhrif á mig.
Þetta er sjálfsævisaga höfundar
og gerist að miklu leyti í
gettóinu í Varsjá í Póllandi í
seinni heimsstyrjöldinni. Lýsir
miklum hörmungum og
áföllum í lífi höfundarins. Man
eftir að hafa grátið ósköpin öll í
koddann minn. Löngu síðar
áskotnaðist mér þessi bók og
las hana aftur og það var ekkert
síður áhrifamikið.“
Hvaða rithöfundar eða skáld fá
hjartað til að slá örar? „Jón
Kalman Stefánsson, Hallgrímur
Helgason, Vigdís Grímsdóttir,
Elísabet Jökulsdóttir og margir
fleiri og svo vona ég að Ásdís
Halla Bragadóttir eigi eftir að
skrifa fleiri bækur.“
Áttu þér uppáhalds bókabúð?
„Á ég ekki bara að segja
Nytjamarkaðurinn á Hvamms-
tanga?“
Hversu margar bækur heldurðu
að þú eignist árlega? „Ég
eignast ekki margar bækur á
ári, kannski svona 4 – 5 sem ég
les auðvitað allar.“
Ertu fastagestur á einhverju
bókasafni „Nei, það get ég ekki
sagt“.“
Hefur þú heimsótt staði sér-
staklega vegna þess að þeir
tengjast bókum sem þú hefur
lesið? „Já, til dæmis gekk ég
ásamt fleira fólki að rústum
bæjarins Sjöundár á
Rauðasandi. Þá hafði ég nýlega
lesið bókina Svartfugl eftir
Gunnar Gunnarsson. Þarna er
sögusvið Sjöundármorðanna
sem voru einhver umtöluðustu
morðmál Íslandssögunnar og
bókin segir mikla sögu af
örlögum ógæfufólks, ástum og
harmi.“
Hver er eftirminnilegasta bókin
sem þú hefur fengið að gjöf?
„Þetta er erfið spurning.
Kannski er bara eftir-
minnilegast þegar mamma gaf
mér bókina Love Story þegar ég
var 14 ára. Þá var ég nýbúin að
sjá myndina og gat
endurupplifað hana við lestur
bókarinnar sem ég las
margsinnis. Ekki skemmdi
fyrir að í bókinni voru nokkrar
myndir af aðalleikurunum í
kvikmyndinni, þeim Ali
MacGraw og Ryan O´Neal.
Þvílík hamingja að eignast
þessa bók!“
Hvað er best með bóklestri?
„Góður koddi og mjúk sæng.“
Ef þú ættir að gefa einhverjum
sem þér þykir vænt um bók,
hvaða bók yrði þá fyrir valinu?
„Líklega myndi ég velja bókina
Einsamræður eftir Birtu
Þórhallsdóttur. Falleg bók og
fer vel í vasa, vel skrifuð og
skemmtileg. Ef gjöfin væri
ætluð barni myndi ég velja
bókina Miðbæjarrottan sem er
eftir Auði Þórhallsdóttur. Sú
bók er ekki síður skemmtileg
og fallega myndskreytt af
höfundi. Þessar hæfileikaríku
skáldkonur eru systur, ættaðar
af Vatnsnesinu og ég er svo
heppin að eiga þær fyrir
frænkur,“ segir Helga að
lokum.