Feykir - 12.08.2021, Blaðsíða 10
Hvernig nemandi varstu? Ég
held að það hafi farið voða
lítið fyrir mér, svona rólegur
meðalnemandi myndi ég segja.
Hvað er eftirminnilegast frá
fermingardeginum? Fram að
fermingardeginum mínum þá
hafði ekki verið til geilsaspilari
á heimilinu, ég hlustaði því bara
á vinyl og kasettur sem þótti
heldur hallærislegt á þeim tíma.
Ég var því himinlifandi að fá
loks geislaspilara og diskurinn
Drullumall með Botnleðju átti
heiðurinn af því að hljóma
fyrstur á heimilinu. Ég af-
fermdist síðan nokkrum árum
seinna og reyndi að skila gömlu
græjunum og túbusjónvarpinu
en einhverra hluta vegna gekk
það ekki.
Hvað ætlaðir þú að verða
þegar þú yrðir stór? Þegar ég
bjó í Njarðvíkunum lá beinast
við að vilja verða flugfreyja.
Seinna tók ég þó stefnuna á
heilaskurðlækningar sem gekk
þó ekki eftir einhverra hluta
vegna.
Hvert var uppáhalds leikfangið
þitt þegar þú varst krakki?
Barbí en svo var alltaf gaman
að drullumalla, það var fátt
eins skemmtilegt og að henda í
nokkrar drullukökur.
Besti ilmurinn? Af blómagarði
rétt eftir rigningu.
Hvar og hvenær sástu núver-
andi maka þinn fyrst? Uppi á
golfvelli í desember 1999. Við
höfum þó hvorugt spilað golf en
þarna var ég farþegi í bíl sem
festi sig og Gunni kom til bjargar.
Hvað varstu að hlusta á
( RABB-A-BABB ) oli@feykir.is
NAFN: Guðbjörg Óskarsdóttir.
ÁRGANGUR: 1983.
FJÖLSKYLDUHAGIR: Gift Gunnari Páli Ólafssyni og saman eigum við
þrjá stráka, Óskar Loga, Óðin Frey og Ómar Þorra.
BÚSETA: Sauðárkrókur.
HVERRA MANNA ERTU OG HVAR UPP ALIN: Faðir minn hét Óskar Stefán
Óskarsson og var slökkviðliðsstjóri á Sauðárkróki, móðir mín heitir
Olga Alexandersdóttir. Fyrstu níu árin bjó ég í Innri-Njarðvík en hef
búið á Sauðárkróki frá þeim tíma.
STARF / NÁM: Sérfræðingur á Fyrirtækjasviði hjá Byggðastofnun.
HVAÐ ER Á DÖFINNI? Halda áfram að fresta skipulögðum utanlands-
ferðum, koma mér aftur í vinnugírinn eftir sumarfrí og skipuleggja
vetrarstarfið í barnastarfinu í fótboltanum.
Guðbjörg Óskars
þegar þú fékkst bílprófið?
Heimaskrifaðir geilsadiskar
vinkonu minnar sem fengu
nöfn eins og Pottþétt vinkona
eða Pjúra píkupopp innihéldu
öll bestu lög þess tíma. Britney
Spears átti þau mörg en þar
voru líka lög eins og Mysterous
girl, Smooth criminal og fleiri
sem maður þarf nú að fara að
rifja upp.
Hvernig slakarðu á? Með
kaldan í pottinum og hljóðbók á
fóninum.
Hverju missirðu helst ekki af
í sjónvarpinu? Ég horfi mjög
takmarkað á sjónvarpið en
umbreytist í júróvisjon-bullu
einu sinni á ári.
Besta bíómyndin? Þar er sama
sagan, ég horfi ekki heldur mikið
á bíómyndir, hef einfaldlega ekki
næga þolinmæði í það.
Hvaða íþróttamanni hefurðu
mestar mætur á? Sonum mín-
um, hefði aldrei trúað því að
ég myndi hafa gaman að því að
horfa á fótbolta þar til börnin
mín fóru að stunda þá íþrótt.
Hvað gerir þú betur en allir
aðrir á þínu heimili? Ætli ég sé
ekki best í að finna hluti, jahh
nema mína eigin hluti, finn þá
yfirleitt ekki.
Hvert er snilldarverkið þitt í
eldhúsinu? Ég held að fáum
hafi tekist jafn oft og snilldarlega
og mér að brenna mig. Hef til að
mynda brennt á mér tærnar við
að sjóða pylsur og andlitið við
að útbúa brauð.
Hættulegasta helgarnammið?
Er til eitthvað sem heitir helgar-
nammi? Súkkulaði á í það
minnsta við alla daga.
Hvernig er eggið best? Egg eru
alltaf góð nema hrá, jahh nema
súkkulaðiegg, þau eru best
óelduð.
Hvað fer mest í taugarnar á þér
í fari þínu? Hvað ég treð alltaf
á mig verkefnum, er oftast með
aðeins of mörg járn í eldinum.
Hvað fer mest í taugarnar á
þér í fari annarra? Óheiðarleiki
og fólk sem tekur ekki þátt
í samfélaginu, sérstaklega í
minni samfélögum eins og hér
á Sauðárkróki, við þurfum öll að
láta eitthvað af okkur leiða.
Uppáhalds málsháttur eða til-
vitnun? Ekki trúa öllu sem þú
hugsar
Hver er elsta minningin sem
þú átt? Þegar við pabbi fórum
saman í útilegu og veiðiferð
stuttu eftir að systir mín fæddist.
Þar veiddi ég fyrsta fiskinn
minn og við áttum gæðastundir
saman.
Þú vaknar einn morgun í
líkama frægrar manneskju og
þarft að dúsa þar einn dag.
Hver værirðu til í að vera og
hvað myndirðu gera? Ætli ég
myndi ekki breytast í Putin eða
Kim Jong-un og eyða deginum
í að endurskrifa lög og reglur…
Hver er uppáhalds bókin þín
og/eða rithöfundur? Ragnar
Jónasson, Viveca Sten, Camilla
Låckberg og B.A. Paris eru efst
á lista núna. Ég hlusta mikið
á hljóðbækur og mér þykir
voða gott að hlusta á Þórunni
Ernu Clausen og Þorvald Davíð
þannig að ég elti þau stundum í
því sem þau lesa.
Orð eða frasi sem þú notar of
mikið? Ekkert sérstakt en ég
mætti minnka blótsyrðin.
Hvaða þremur persónum vild-
irðu bjóða í draumakvöld-
verð? Stelpukvöld með Rachel,
Monicu og Phoebe (allar í
karakter) hljómar vel.
Ef þú gætir farið til baka í
tímann, hvert færirðu? Það
er auðvitað hellingur sem
maður myndi vilja breyta með
tímaflakki en ég held að það sé
betra að horfa fram á við og læra
af reynslunni
Hver væri titillinn á ævisögu
þinni? „Hvað var ég aftur að fara
að gera?”
Framlenging:
Ef þú gætir hoppað upp í flugvél
og réðir hvert hún færi, hvar
myndirðu lenda? Í einhverju
litlu sveitaþorpi á Ítalíu.
Bucket list spurningin: Nefndu
eitthvað þrennt sem þér finnst
þú mega til að gera áður en
þú gefur upp öndina: Ferðast
til allra heimsálfanna, læra nýtt
tungumál og fara í fallhífarstökk.
MYND: Fjölskyldan í Eyjum. Frá vinstri:
Guðbjörg Óskarsdóttir, Óðinn Freyr
Gunnarsson, Óskar Logi Gunnarsson, Gunnar Páll Ólafsson, Ómar Þorri
Gunnarsson.
10 30/2021