Feykir


Feykir - 12.08.2021, Blaðsíða 4

Feykir - 12.08.2021, Blaðsíða 4
Á heimasíðu Landsnets var sagt frá því seinni partinn í júlí að Landsnet og Etix Borealis, sem rekur gagnaver á Blönduósi, hafi undirritað viljayfirlýsingu um aukinn flutning á raforku til gagnaversins. Aukningin fer fram í áföngum, þar sem í fyrsta áfanga verður nýtt svokallað snjallnet (smartgrid) til að auka flutninginn og tryggja rekstrar- öryggi flutningskerfisins. Í fréttinni er haft eftir Birni Brynjúlfssyni, forstjóra Etix Everywhere Borealis að það sé ánægjulegt að geta nýtt snjallnet til að bæta nýtingu flutnings- kerfisins og þannig auka rýmd gagnaversins og sjálfbærni þess. „Ísland er góður staður fyrir aðila sem leita eftir öruggum og umhverfisvænum gagnavers- lausnum. Við teljum okkur vera að mæta þessum kröfum með gagnaverinu á Blönduósi, en reksturinn hefur gengið vonum framar frá opnun árið 2018. Við hlökkum til að geta mætt vaxandi eftirspurn eftir um- hverfisvænum gagnaverslausn- um með þessari aukningu.“ Fram kemur að snjallnet er samheiti yfir tækninýjungar sem nýta fjarskipta-, stýri- og upp- lýsingatækni til að tryggja sem öruggasta afhendingu rafmagns og hámarka jafnframt nýtingu raforkukerfisins. „Með snjall- tækni er notaður háþróaður tækni-búnaður til að bregðast við breytingum í orkuflutning- um með sjálfvirkum hætti með gagnvirkum stýringum og há- þróuðum varnarkerfum. Þetta gerir kerfið betur í stakk búið að takast á við breytingar og sveigjanlega notkun eða fram- leiðslu. Með notkun snjall- tækninnar er mögulegt að nýta mun betur mannvirki raf- orkukerfisins sem kemur not- endum til góða í lægri flutn- ingsgjöldum til lengri tíma. Í þessu verkefni tekur Landsnet nýtt skref í nýtingu þessarar tækni sem mun verða í fremstu röð meðal raforkuflutnings- fyrirtækja í heiminum,“ segir jafnframt í fréttinni. /ÓAB Landsnet og Gagnaverið á Blönduósi Skrifað undir viljayfirlýsingu um aukinn flutning raforku Frá undirritun samningsins. MYND: LANDSNET.IS Sigfús Arnar Benediktsson, tónlistarmaður á Sauðárkróki ætlar að segja okkur frá uppáhalds hljóðfærinu sínu að þessu sinni. Fúsi Ben, eins og hann er jafnan kallaður, er að hans eigin sögn mikið að fikta við músík og upptökur. Hann rekur Stúdíó Benmen á Sauðárkróki og hefur mikið sést undanfarin ár í skagfirsku tónlistarlífi. Hann hefur m.a. verið gítarleikari í hljómsveitinni Bróðir Svartúlfs sem sigraði Músíktilraunir árið 2009, Fúsaleg Helgi og trommuleikari í Contalgen Funeral svo fátt eitt sé nefnt. Hvaða hljóðfæri heldur þú mest upp á af þeim sem þú átt? Ég held mikið upp á Fender Stratocaster sem hefur fylgt mér lengi en ætli ég verði ekki að segja Hammond M-111 orgel sem ég eignaðist fyrir ekki svo löngu, árgerð 1961. Sigfús Arnar Benediktsson | Hammond M-111 orgel Þarf vonandi aldrei að selja Hammondinn ( HLJÓÐFÆRIÐ MITT ) Umsjón: Sæþór Már Ert þú fyrsti eigandinn að hljóðfærinu? Hvar keyptiru það? Ef ekki hver/hverjir áttu það á undan þér? Nei, það hafa einhverjir átt það á undan mér. Ég keypti það á Dalvík af strák sem heitir Hans Friðrik. Ég er ekki klár á því hverjir áttu það á undan honum en heyrði sögusagnir um að Karl Sighvatsson (Trúbrot, Þursaflokkurinn, Flowers, Dátar og fl. hafi spilað á það eitthvað. Maður spyr sig. Hefur hljóðfærið hljómað á einhverjum plötum eða lögum? Það má vel vera að það hafi verið notað í mörgum þekktum lögum án þess að maður viti Hammondinn góði. MYNDIR AF FACEBOOK það. En sjálfur hef ég notað það talsvert í upptökum síðan ég eignaðist það. Það fékk t.d. að hljóma duglega í tónlistinni sem ég tók upp fyrir leikritið Á frívaktinni sem Leikfélag Sauðárkróks setti upp núna í vor. [Blaðamaður vill stinga því inn að Hammondinn hljómar einnig í laginu Dúddírarirey með Danssveit Dósa, spilaður af Eysteini Ívari] Hefur þetta hljóðfæri eitthvað fram yfir svipuð hljóðfæri að þínu mati? Nei, í sjálfu sér ekki, nema það að það er rosalega vel með farið og búið að yfirfara það allt og laga það sem þarf að laga og endurnýja lampa og slíkt. Gætir þú hugsað þér að selja það einhvern tíma? Nei, von- andi mun það aldrei gerast. Hefur þú séð á eftir einhverju hljóðfæri sem þú værir til í að eiga í dag? Nei það er best að vera ekkert að pæla í því.. Fúsi Ben mundar Fenderinn. Edda Brynleifsdóttir hefur verið ráðin í fasta stöðu aðstoðarleikskólastjóra á leikskólanum Barnabæ á Blönduósi. Edda útskrif- aðist sem leikskólakennari árið 2005, starfaði sem deildarstjóri, sérkennslu- stjóri og aðstoðarleik- skólastjóri á Seljaborg í Reykjavík ásamt því að starfa einnig á Laufásborg í Reykjavík. Hún hóf störf sem deildarstjóri á Leikskól- anum Barnabæ árið 2008 en hefur einnig starfað sem sérkennslustjóri og aðstoðarleikskólastjóri á Barnabæ. Edda fór í leyfi í tvö ár frá 2016-2018 þegar hún hóf sjálfstæðan atvinnurekstur á Blönduósi. Einnig hefur Edda lokið námi í ferðamálafræði, Mætti kvenna, hagnýtu námi til stofnunar fyrir- tækis og reksturs og Skrifstofuskólanum. „Það er ánæjulegt að ráða inn til skólans reyndan kennara sem aðstoðarskólastjóra, sem er með góðan og fjölbreyttan bakgrunn sem nýtist vel í því fjölbreytta starfi sem aðstoðarleikstjóri er,“ segir á vef Blönduósbæjar. /SMH Leikskólinn Barnabær á Blönduósi Edda ráðin aðstoðar- leikskólastjóri Edda Brynleifsdóttir. MYND AF NETINU 4 30/2021

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.