Feykir - 13.10.2021, Síða 1
Um liðna helgi var alþjóðlega brúðu-
listahátíðin Hip festival haldin á
Hvammstanga og var Forsetafrúin Eliza
Reid heiðursgestur á hátíðinni ásamt
Eddu dóttur sinni, en Eliza er verndari
menningarverðlauna Eyrarrósarinnar
sem Handbendi atvinnubrúðuleikhús á
Hvammstanga er núverandi handhafi
af. Að sögn Gunnars Rögnvaldssonar,
sem fylgdi Elizu í heimsókninni, voru
fjölmargir viðburðir á dagskránni sem
sannarlega eru á heimsmælikvarða.
Leiksýningar, vinnustofur, fyrirlestr-
ar og kvikmyndasýningar voru þar á
meðal og drógu að sér fagfólk og gesti
hvaðanæva að. Eliza snæddi kvöldverð
á Sjávarborg á fimmtudagskvöldið
með skipuleggjendum hátíðarinnar
sem Greta Clough, eigandi Handbend-
is, hefur borið hitann og þungann af.
Á föstudeginum heimsóttu þær
mæðgur einnig dvalarheimilið,
grunnskólann, Selasetrið og Versl-
unarminjasafnið auk þess að taka þátt
í vinnustofu í skuggamyndagerð hjá
Handbendi og heimsóknin endaði
síðan á leiksýningu í Félagsheimilinu.
„Ég lagði leið mína á Hvammstanga í
gær [föstudaginn 8. október] til að
njóta hátíðarinnar, en ferðina nýtti ég
um leið til að heimsækja sjúkrahúsið á
Hvammstanga og dagvistun eldri
borgara þar. Þá skoðaði ég glæsilega
nýja viðbyggingu við grunn- og
tónlistarskólann, heimsótti Selasetur
Íslands og kom við í Gallerí Bardúsa,
þar sem er bæði verslunarminjasafn
og sala á handverki eftir íbúa í
Húnaþingi. Ég naut þess að hitta fólk
og kynnast betur samfélaginu á
Hvammstanga. Fleiri myndir og
upplýsingar má sjá á Instagram hjá
mér, undir „Hvammstangi“. Hér með
sendi ég þakkir til allra sem tóku svona
vel á móti mér, ekki síst til Gunnars
Rögnvaldssonar forstöðumanns safna,
sem fylgdi mér gegnum daginn,“
skrifar Eliza á Facebooksíðu sína en
þar má sjá fleiri myndir og frásögn
Elizu, https://www.facebook.com/
elizajeanreid. /PF
39
TBL
13. október 2021
41. árgangur : Stofnað 1981
Frétta- og dægurmálablað
á Norðurlandi vestra
BLS. 10
BLS. 4
BLS. 6–8
Forvitnileg og spennandi dagskrá
um Sturlunga í Kakalaskála
Siðblindir höfðingjar
dregnir fram í
dagsljósið
Sara Ólafsdóttir á Hvammstanga
svarar Rabb-a-babbi
Bæði sælkeri og
nautnaseggur
Forsetafrúin á brúðulistahátíð í Húnaþingi vestra
Bjóðum alhliða lagnahreinsun á sérútbúnum bíl
Losum stíflur úr salernum, niðurföllum, frárennslislögnum, regnvatns- og skólplögnum.
Hreinsum trjárætur úr lögnum. Myndum lagnir sé þess óskað og og afhendum verkkaupa
á minnislykil. Sjáum um tæmingar á rotþróm. Bíll okkar er einnig útbúinn til hreinsunar
á sandföngum, fitu- og olíugildrum.
Holræsa- og stífluþjónusta
Leitið nánari upplýsinga í síma 452 2958.
Sími 452 2958 • Oddagata 18 • 545 Skagaströnd • terra.is • nordvesturland@terra.is
31
TBL
19. ágúst 2020
40. árgangur : Stofnað 1981
Frétta- og dægurmálablað
á Norðurlandi vestra
BLS . 6–7
BLS. 4
Olíutankarnir á Króknum
teknir niður
Nýttir sem meltu-
geymar á Vestfjörðum
BLS. 10
Hrafnhildur Viðars hefur
opnað sérhæfða naglasnyrti-
stofu á Sauðárkróki
Game of Nails
Hera Birgisdóttir læknir segir
frá degi í lífi brottflutts
Saknar íslenska
viðhorfsins
„þetta reddast“
j l li l i t íl
Losum stíflur úr salernum, niðurföllum, frárennslislögnum, regnvatns- og skólplögnum.
Hreinsum trjárætur úr lögnum. yndum lagnir sé þess óskað og og afhendum verkkaupa
á minnislykil. Sjáum um tæmingar á rotþróm. Bíll okkar er einnig útbúinn til hreinsunar
á sandföngum, fitu- og olíugildrum.
lr - tífl j t
Leitið nánari upplýsinga í sí a 452 2958.
Sími 452 2958 • Oddagata 18 • 545 Skagaströnd • terra.is • nordvesturland terra.is
Við þjónustum bílinn þinn!
Hesteyri 2 Sauðárkróki Sími 455 4570
Verkstæðið okkar annast viðgerðir fyrir einstaklinga
og fyrirtæki. Menntaðir og hæfir tölvuviðgerða-
menn með áralanga reynslu.
Meirapróf - Vinnuvélanámskeið
Ökunám - Endurmenntun
Birgir Örn Hreinsson
Ökukennari
S: 892-1790
bigh@simnet.isHÁEYRI 1 SAUÐÁRKRÓKI SÍMI 455 4400
www.facebook.com/velavalehf
www.facebook.com/velavalehf
& 453 88 88 velaval@velaval.is
Nýprent ehf. Borgarflöt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is
Borgaröt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is
Borgaröt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is
Borgaröt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is
Borgaröt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is
Stórprent í toppgæðum
Við prentum strigamyndir, auglýsingaskilti og
plaggöt í hinum ýmsu stærðum og gerðum
Veðrið hefur leikið við landsmenn
undanfarna daga með hita upp á
20 stig og jafnvel meira og að
sjálfsögðu stillu norðanlands sem
er ávísun á næturdögg. Á mánu-
dagsmorgun mátti sjá hvernig
áfallið baðaði umhverfið a.m.k. í
og við Sauðárkrók. Á Borgarsand-
inum höfðu maurköngulær
spunnið breiðu af fallegum vefjum
svokölluðum vetrarkvíða sem
Ingólfur Sveinsson, sá er tók
meðfylgjandi mynd, segir
sjaldgæfa sjón.
Matthías Alfreðsson, skordýrafræð-
ingur hjá NÍ segir vetrarkvíða vera
náttúrufyrirbrigði sem voðköngulær
eru þekktar fyrir að spinna og leggist
eins og silki yfir gróður. Blökkuló
(Erigone arctica) er dæmi um tegund
sem skilur eftir sig slíka þræði.
Á vef Náttúrufræðistofnunar Ís-
lands kemur fram að maurkönguló sé
tiltölulega sjaldgæf en fundin í öllum
landshlutum, e.t.v. algengari um
norðanvert landið en á landinu
sunnanverðu, á miðhálendinu í
Fróðárdal við Hvítárvatn.
Maurkönguló finnst í runnum og
trjám, einnig í klettum og skriðum,
ekki eins hænd að vatni og frænka
hennar sveipköngulóin (Larinioides
cornutus). Vefurinn er hjóllaga,
tengdur milli greina inni í runnum eða
utan í þeim eða á milli steina. Hér á
landi hafa maurköngulær fundist
kynþroska í júlí og ágúst.
Almennt
Maurkönguló er lítt áberandi þar sem
lítið er af henni og hún dylst vel í
kjörlendi sínu. Auk þess er vefurinn
fíngerður og óáberandi, varla nema um
hálfur metri í þvermál ef aðstæður
leyfa.
Maurkönguló er mjög lík sveip-
könguló, þó heldur minni, og er
stundum vissara að aðgæta kynfæri til
að aðgreina þessar frænkur með vissu.
Oftast er afturbolur þó dekkri á
maurkönguló og ekki ljós rönd aftur
eftir honum miðjum. Miðbakið er að
mestu dökkt en ljóst þverbelti sker
dökka flekkinn í tvo hluta rétt framan
miðju á kvendýrum. Þetta getur þó
verið breytilegt. Neðan á afturbol eru
tveir svigalaga ljósir blettir eins og á
sveipkönguló, og fætur eru sömuleiðis
rauðleitir eða rauðgulir með dökkum
beltum.
Í heiminum eru þekktar um 44.000
tegundir köngulóa, á Íslandi 91 tegund
auk slæðinga. /PF
Köngulóin sveipar melgresið silki
Áfall næturinnar í sólargeislum árdagsins
Þessa skemmtilegu mynd tók Ingólfur Sveinsson sl. mánudagsmorgun af maurkönguló sem hafði strengt vef milli melgresisstráa. Sagði hann vefina hafa
verið fjölmarga á svæðinu og sagði slíka breiðu vefja sem baðaðir eru næturdögginni kallaða vetrarkvíða. Sáust þeir vel í morgunsárinu áður en döggin hvarf
með hækkandi sól. MYND: INGÓLFUR SVEINSSON
Kvikmyndastjarnan og Króksar-
inn Auðunn Blöndal í viðtali
„Það er víst byrjað að
ræða framha d...“
Naut þess að h tt fólk og kynnast
samfélaginu á Hvammstanga
Eliza Reid var heiðursgestur brúðulistahátíðarinnar á Hvammstanga sem fram fór um sl. helgi. Nýtti hún ferðina til annarra heimsókna en hér er hún ásamt
Aisha Abed Alhamad Alalou og Guðrúnu Helgu Marteinsdóttur. MYND: GUNNAR RÖGNVALDSSON