Feykir


Feykir - 13.10.2021, Qupperneq 2

Feykir - 13.10.2021, Qupperneq 2
Eins og lesendur geta séð í aðalefnis Feykis þessa vikuna er endalaust hægt að gera sér mat úr mesta ófriðartíma Ís- landssögunnar, Sturlungaöldinni. Hún er yfirfull af valdabaráttu, svikum, auðsöfnun, misskiptingu og gríðarlegu ofbeldi. Menn eru drepnir hægri vinstri, ýmist felldir í bardögum, brenndir inni eða háls- höggnir, aflimaðir, blindaðir og geltir svo eitthvað sé nefnt. Skúli Sæland sagnfræðingur segir á Vísindavefnum að um 1220 hafi farið að gæta töluverðrar valdasamþjöppunar og valdagrunnur helstu valdaætta landsins hafi verið orðinn nokkuð traustur. Þessar helstu valdaættir voru Haukdælir, sem voru staðsettir í Árnes- þingi, Oddaverjar í Rangárþingi, Ásbirningar í Skagafirði, Vatns- firðingar við Ísafjarðardjúp, Svínfellingar á Austurlandi og svo Sturlungar sem kenndir eru við Sturlu Þórðarson í Hvammi í Dölum en synir hans, Þórður, Sighvatur og Snorri, mynduðu síðan áhrifa- svæði á Stað á Ölduhrygg um Snæfellsnes, Grund í Eyjafirði og Borg á Mýrum. Synir þeirra voru áhrifamiklir í Sturlungasögunni, sérstaklega Sturla og Þórður kakali Sighvatssynir. Frændur þeirra, Ásbirningar, röktu ættir sínar til Öndótts sem keypti land af landnámsmanninum Sleitu-Birni og bjó í Viðvík. Afkomandi Öndótts var Ásbjörn Arnórsson, sem ættin var kennd við. Á heimasíðu Kakalaskála segir að um árið 1118 höfðu synir Ásbjörns; Böðvar, Arnór og Þorsteinn, héraðsvöld í Skagafirði. „Þeir áttu og fóru með goðorð í Skagafirði og eitt í Húnavatnssýslu að auki. Ásbirningar héldu völdum í Skagafirði óslitið fram til 1246 er þeim var steypt af valdastóli í Haugsnesbardaga.“ Ekki má gleyma þætti Gissurar Þorvaldssonar, oft nefndur Gissur jarl, af ætt Haukdæla. „Hann tók ungur við Haukdælagoðorði, varð helsti foringi Sunnlendinga og gerði bandalag við Kolbein unga, leiðtoga Ásbirninga í Skagafirði, gegn Sturlungum. Unnu þeir sigur á liði Sturlunga í Örlygsstaðabardaga 1238 og urðu við það valdamestu höfðingjar landsins, ekki síst eftir að Gissur lét drepa Snorra Sturluson 1241 að kröfu Hákonar Noregskonungs,“ segir á Wikipedia. Eins og segir í inngangi gat ofbeldið gengið ansi langt á Sturlungaöld og ekki er það minna í Íslendingasögunum. Þar eru menn jafnvel gerðir höfðinu styttri bara vegna þess hversu vel þeir „lágu“ við höggi en hin fleyga setning að einhver „liggi vel við höggi“ kemur úr Flateyjarbókarhluta Fóstbræðrasögu. Í stuttu máli kemur Þorgeir Hávarsson að Hvassafelli og sér sauðamann er stóð þar í túninu og studdist fram á staf sinn og talaði við aðra menn. „Stafurinn var lágur en maðurinn móður og var hann nokkuð bjúgur, steyldur á hæli og lengdi hálsinn. En er Þorgeir sá það reiddi hann upp öxina og lét detta á hálsinn. Öxin beit vel og fauk af höfuðið og kom víðsfjarri niður. Þorgeir reið síðan í brott en þeim féllust öllum hendur er í túninu höfðu verið,“ segir í sögunni. Þegar hann er svo spurður hví hann hafi gert þetta segir hann: „Eigi hafði hann nokkurar sakar til móts við mig en hitt var satt að eg mátti eigi við bindast er hann stóð svo vel til höggsins.“ Magnað hvernig hægt er að gera þessar ofbeldissögur svona áhugaverðar þar sem engu er líkara en Talibanar norðursins séu á ferðinni. Góðar stundir. Páll Friðriksson, ritstjóri LEIÐARI Talibanar Íslandssögunnar Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum AFLATÖLUR | Dagana 3. – 9. október á Norðurlandi vestra Drangey SK 2 með rúm 152 tonn SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG Fjölnir GK 157 Lína 58.561 Hafrún HU 12 Dragnót 11.546 Hjalti HU 313 Handfæri 739 Hrund HU 15 Handfæri 171 Hulda GK 17 Lína 21.315 Kristinn HU 812 Landbeitt lína 25.390 Jóhanna Gíslad. GK 557 Lína 80.287 Páll Jónsson GK 7 Lína 77.794 Sighvatur GK 57 Lína 78.486 Sigrún GK 97 Landbeitt lína 1.687 Viktoría HU 10 Handfæri 915 Alls á Skagaströnd 375.831 HVAMMSTANGI Margrét SU 4 Handfæri 214 Alls á Hvammstanga 214 SAUÐÁRKRÓKUR Drangey SK 2 Botnvarpa 152.099 Hafey SK 10 Handfæri 133 Hafborg SK 54 Þorskfisknet 1.787 Lilja SH 16 Landbeitt lína 5.677 Lilja SH 16 Lína 10.098 Málmey SK 1 Botnvarpa 117.968 Onni HU 36 Dragnót 3.484 Rán SH 307 Landbeitt lína 9.729 Alls á Sauðárkróki 300.975 SKAGASTRÖND Bergur Sterki HU 17 Handfæri 259 Blíðfari HU 52 Handfæri 228 Dúddi Gísla GK 48 Landbeitt lína 5.045 Dúddi Gísla GK 48 Lína 12.995 Fengsæll HU 56 Handfæri 413 Á Króknum var landað tæpu 301 tonni af átta bátum/togurum í alls tólf löndunum í síðustu viku og var það Drangey SK 2 sem var aflahæst með rúm 152 tonn. Þá var landað rúmum 376 tonnum á Skaga- strönd af sextán bátum í alls 23 löndunum. Aflahæst var Jóhanna Gísladóttir GK 55 sem var á línuveiðum með rúm 80 tonn. Enginn landaði á Hofsósi en einn bátur landaði á Hvammstanga, Margrét SU 4, með 214 kg. Heildarafli á Norðurlandi vestra dagana 3.-9. október var 677.020 kg. /SG Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur Ritstjóri & ábyrgðarmaður: Páll Friðriksson, palli@feykir.is & 861 9842 Blaðamenn: Óli Arnar Brynjarsson, oli@feykir.is Sigríður Garðarsdóttir, siggag@nyprent.is | Klara Björk Stefánsdóttir, klara@nyprent.is Prófarkalestur: Fríða Eyjólfsdóttir Auglýsingastjóri: Sigríður Garðarsdóttir, siggag@nyprent.is Áskriftarverð: 615 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 755 kr. m.vsk. Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf. Skagaströnd Mikil ásókn í íbúðarhúsnæði Á vef RÚV segir frá því að hús- næðisskortur standi íbúaþróun og atvinnuuppbyggingu á Skagaströnd fyrir þrifum en þar sé mikil ásókn í íbúðarhúsnæði en ekkert laust. Í nýlega birtri húsnæðisáætlun kemur meðal annars fram að þar þurfi að byggja 2-4 íbúðir á ári fram til ársins 2026 til að uppfylla þörf fyrir nýtt íbúðarhúsnæði og koma á nauðsynlegu jafnvægi. Rúv.is hefur eftir Alexöndru Jóhannesdóttur, sveitarstjóra, að ungir Skagstrendingar sæki í auknum mæli í að flytja heim og þá vanti fólk á staðinn til að sinna auknum atvinnutæki- færum. „Ég held að það sé sama staða hér og á mörgum öðrum stöðum, að það stendur okkur fyrir þrifum að geta ekki veitt fólki fullnægjandi húsnæðiskost. Við getum tæplega aukið mikið við atvinnuþróun á svæðinu ef við erum ekki með húsnæði fyrir fólk til þessa að geta fjölgað þessum störfum.“ Eins og víðar í dreifbýli er söluverð á íbúðarhúsnæði lægra en byggingarkostnaður sem dregur úr áhuga verktaka á að byggja íbúðir. Til að liðka fyrir felldi sveitarfélagið niður gatna- gerðargjöld á 14 lóðum við tilbúnar götur og stendur það tilboð út kjörtímabil núverandi sveitarstjórnar. Þá eru viðræður við leigufélagið Bríeti um bygg- ingu leiguhúsnæðis. Alexandra segir áhugaleysi bankanna á að veita húsnæðislán til fólks í dreifbýli vera eitt þeirra atriða sem draga úr möguleikum á nýbyggingum. „Það er svosem það sem hefur verið erfiðast fyrir fólk. Það nær ekki að fjár- magna ef það vill fara í einhverjar framkvæmdir. Og það er mál- efni sem er ekki nýtt af nálinni og eitthvað sem þarf að halda áfram að þrýsta á að taki ein- hverjum breytingum. Eða það séu einhver önnur úrræði fyrir fólk sem vill fara í uppbyggingu á landsbyggðinni. En það er ekki greiður aðgangur að fjármagni, það er alveg ljóst,“ segir hún í samtali við Rúv.is. /ÓAB Þingflokkur Miðflokks dregst saman Harma útgöngu Birgis Þórarinssonar Stjórn Miðflokksins harmar þá ákvörðun Birgis Þórarinssonar að yfirgefa þingflokk Miðflokksins nú strax að loknum kosningum og áður en þing hefur verið sett. Þetta kemur fram í yfirlýsingu stjórnar flokksins. Eins og fram hefur komið í fréttum ákvað Birgir Þórarinsson að ganga til liðs við Sjálfstæðis- flokkinn áður en nokkur þingmaður hafði fengið kjörbréf í hendurnar og rekur hann ástæðuna allt aftur til Klausturmálsins svokallaða. „Brotthvarf þingmannsins er fyrst og fremst áfall fyrir þann góða og öfluga hóp sem borið hefur Birgi á örmum sér sem oddvita flokksins í Suðurkjördæmi og unnið mikið og óeigingjarnt starf í kosninga- baráttunni. Í því samhengi er ákvörðun þing- mannsins mikil vonbrigði,“ segir í yfirlýsingunni um leið og flokksmönnum er þakkað fyrir mikla og ósérhlífna vinnu í aðdraganda kosninga. „Breytt skipan þingflokksins dregur ekki úr getu hans til að fylgja eftir þeim grunngildum og hugsjónum sem sameina okkur sem flokk,“ segir þar ennfremur. /PF Frá höfninni á Skagaströnd. MYND: ÓAB 2 39/2021

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.