Feykir


Feykir - 13.10.2021, Qupperneq 6

Feykir - 13.10.2021, Qupperneq 6
Forvitnileg og spennandi dagskrá um Sturlunga í Kakalaskála Siðblindir höfðingjar dregnir fram í dagsljósið Sigurður Hansen hefur verið ötull við að koma Sturlunga- sögunni til skila með sýning- um og uppákomum í Kakala- skála á Kringlumýri en sá staður er staðsettur á sögusviði Haugsnesbardaga sem fram fór 19. apríl 1246. Þar var um mannskæðasta bardaga að ræða sem háður hefur verið á Íslandi fyrr og síðar þar sem Sturlungar, aðallega Eyfirðing- ar, undir forystu Þórðar kakala Sighvatssonar og Ásbirningar úr Skagafirði, sem Brandur Kolbeinsson stýrði, börðust upp á líf og dauða. Í svari Skúla Sæland, sagn- fræðings á Vísindavefnum um hvað Sturlungaöld hafi snúist, segir að Kolbeinn hafi haft á sjötta hundrað manna í sínu liði en Þórður kakali nærri fimm hundruð og voru það því yfir þúsund manns sem þarna Næstkomandi laugardag verður haldin heilmikil dagskrá um Sturlunga í Skagafirði á vegum Kakalaskála Sigurðar Hansen á Kringlumýri. Þar munu m.a. koma fram tveir miklir Sturlungasöguritarar, þeir Einar Kárason, sem m.a. fékk Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir aðra Sturlungabókina sína, Ofsa, árið 2008, og Óttar Guðmundsson, sem velti fyrir sér geðrænum vandamálum á þrettándu öld og skoðaði róstusamt líf Sturlunga í bók sem kom út fyrir síðustu jól. Margir fleiri og afdrifaríkir atburðir gerðust í Skagafirði og má nefna Örlygsstaðabardaga 21. ágúst 1238 og Flugumýrar- brennu 22. október 1253, sem einmitt er viðfangsefni Einars Kárasonar í Ofsa. „Þeir Einar Kárason og Óttar Guðmundsson ætla að koma og fjalla um sitthvað um Sturlungu í Skagafirði. Það er meiningin að þetta standi frá klukkan eitt til fjögur á laugardaginn, 16. október,“ segir Sigurður Hansen. „Einar ætlar að fjalla um Sturlungu í Skagafirði og Óttar Guðmunds- son ætlar að tala um Guðmund biskup, Guðmund góða, kannski í tilefni af því að 800 ár eru frá því hann hraktist frá Hólum og út í Málmey. Hann líklega fjallar um það ásamt einhverju fleiru og ég vona að þarna verði talsvert miklar umræður um þetta. Síðan ætl- ar Jóhanna Þórhallsdóttir að syngja Heyr himnasmiður og Stefán R. Gíslason ætlar að sjá okkur fyrir einhverju efni og svo verða kaffiveitingar í hléi. Þetta er nú svona beinagrindin að þessu,“ segir Sigurður sem vonast til þess að fólk láti sjá sig í Kakalaskála. „Ég býst við að þarna verði skemmtilegar um- ræður.“ EINAR KÁRASON Margslungin saga „Ég hef fylgst með þessu uppbyggingarstarfi hjá Sigga Hansen síðustu árin og hef komið til hans í Kakalaskálann og verið með sögustundir a.m.k. tvisvar. Svo fékk ég aðeins að vera með í því þegar hann setti upp sýninguna,“ segir Einar Kárason, rithöf- undur, og á þá við þá sýningu sem uppi stendur í Kakala- skálanum og lýsir nokkrum af- drifaríkum augnablikum Sturl- ungaaldar. „Okkur er vel til vina, hann er geysilega fróður um Sturlungu og verið mér til gagns, af því að ég hef verið að skrifa bækur um þetta efni,“ segir hann en fjórar bækur hefur Einar skrifað þar sem sögusviðið er sótt í Sturl- ungasöguna; Óvinafagnaður, Ofsi, Skáld og Skálmöld. Einar segir að nú síðsumars hafi hann hitt Óttar Guð- mundsson, geðlækni, sem skrifaði bókina Sturlunga geðlæknisins og fjallar um karaktera Sturlungu út frá læknisfræðinni, og þá hafi hugmyndin að þessum atburði í Kakalaskála kviknað. „Við hittumst nú síðsumars á Siglufirði en hann var með UMFJÖLLUN OG VIÐTÖL Páll Friðriksson Sigurður Hansen við opnun sýningarinnar Á söguslóð Þórðar kakala í Kakalaskála í Kringlumýri í Skagafirði 18. ágúst 2019. Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, hlustar af athygli á sagnameistarann. MYND: PF börðust og tíundi hver féll, eða yfir eitt hundrað manns. Skúli fer ýtarlega yfir Sturl- ungaöldina sem hann segir í raun einungis hafa spannað 42- 44 ára tímabil á miðri 13. öld og hafi verið einn ofbeldisfyllsti tími Íslandssögunnar. „Sturl- ungaöldin einkenndist af liðs- safnaði valdamikilla höfðingja sem herjuðu hverjir á aðra með vígaferlum og gripdeildum. Sturlungaöldin dregur nafn sitt af Sturlungunum sem voru valdamesta ættin á Íslandi á þessu tímabili. Við lok Sturl- ungaaldarinnar komst landið undir erlend yfirráð og við það lauk þjóðveldistímanum sem hófst við landnámið. Almennt er miðað við árið 1220 sem upphafsár Sturlunga- aldarinnar því þá fer fyrst að gæta tilrauna Hákonar gamla Noregskonungs til að leggja Ísland undir norsku krúnuna. Honum tókst svo ætlunarverk sitt á árunum 1262-64 og þar með lauk Sturlungaöldinni,“ skrifar Skúli. Ásbirningar voru ein helsta valdaætt landsins á 12. öld og fram eftir Sturlungaöld og var ríki þeirra í Skagafirði og síðar austanverðu Húnaþingi. Á Wikipediu er vitnað í Magnús Jónsson sem skrifaði um Ásbirninga 1939 og Sögufélag Skagfirðinga gaf út. Þar segir að í fáein ár eftir Örlygsstaðabardaga megi segja að þeir hafi verið einna valdamesta ætt landsins. „Ættin var komin í beinan karllegg af landnámsmanninum Öndótti, er bjó í Neðra-Ási í Hjaltadal, en kennd við ættföðurinn Ásbjörn Arnórsson, sem uppi var á 11. öld. Sonarsonur hans, goðorðsmaðurinn Kolbeinn Arnórsson (d. 1166) átti tvo syni, Arnór og Tuma. Sonur Arnórs var Kolbeinn kaldaljós, bóndi á Reynistað, en á meðal barna Tuma voru Kolbeinn Tumason skáld, er átti í hörðum deilum við Guðmund Arason biskup og féll í Víðinesbardaga 1208, Arnór Tumason goðorðsmaður á Víðimýri og Halldóra Tumadóttir, kona Sighvats Sturlusonar á Grund í Eyjafirði. Sonur Arnórs, Kolbeinn ungi, sem bjó á Víðimýri, er líklega þekktastur Ásbirninga. Hann tók mjög ungur við leiðtogahlutverkinu og var einn af valdamestu mönnum landsins til dauðadags. Þá tók Brandur Kolbeinsson á Reynistað, sonur Kolbeins kaldaljóss, við sem leiðtogi Ásbirninga en við fall hans í Haugsnesbardaga ári síðar má segja að veldi þeirra hafi liðið undir lok.“ Ásbirningar 6 39/2021

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.