Feykir


Feykir - 27.10.2021, Side 4

Feykir - 27.10.2021, Side 4
Liggurðu á frétt? Hafðu samband í síma 455 7176 eða sendu Feyki póst á feykir@feykir.is 1. OG 2. NÓVEMBER Sigurður Albertsson, alm. skurðlæknir 5. NÓVEMBER Orri Ingþórsson, kvensjúkdómalæknir 8. OG 9. NÓVEMBER Haraldur Hauksson, alm./æðaskurðlæknir 22. NÓVEMBER Sigurður Albertsson, alm. skurðlæknir Tímapantanir í síma 432 4236 Sérfræðikomur í nóvember 2021 www.hsn.is Reykjavík 19. október 2021 Að keyra framhjá Mikla- bæjarkirkju er sorgleg sjón. Mjög óþrifalegt og alls ekki ykkur til sóma. Búið er að rífa gamla húsið og byggja nýtt en gamli bílskúrinn stendur eins og minning um eitthvað sem á alls ekki við á þessum stað..... einn bílskúr, heyrúllur, njóli, ósnyrt tré og niðurníddar girðingar. Man ég á árunum rétt fyrir 1980 að mikið var rætt um hvort að gömlu húsin sem tilheyrðu Borgarhóli (hinumegin við veginn) væru tilhlýðileg á þessum stað svona nálægt kirkjunni.... þóttu þau óþrifaleg. Ég held að það fólk sem vildi hafa þrifalegt í kringum Miklabæjarkirkju á þeim tíma myndi snúa sér við í gröfunum ef þau litu á óþrifnaðinn sem líðst þar í dag. Miklabæjarkirkja og kirkjugarðurinn er ykkur til sóma en næsta nágrenni ALLS EKKI. Þar sem að kirkjan er á kirkjujörð hlýtur að vera hægt að kippa þessu í liðinn, því að alltaf versnar umgengnin í nágrenni kirkjunnar með hverju árinu. Þið hljótið að sjá það sjálf. Nú veit ég að þegar nýja húsið var byggt fyrir prestinn á Miklabæ var þar gert ráð fyrir bílskúr svo að ég sting upp á: AÐSENT | Birna Sigurðardóttir skrifar Mynd tekin í apríl 2019. „Þó nokkuð verri umgengni 2021 þegar ég fór þar um,“ segir greinarhöfundur. MYND AÐSEND Til þeirra sem hugsa eiga um Mikla- bæjarkirkju og umhverfi hennar • Gamli bílskúrinn verði rifinn, heyrúllur og annað drasl fjarlægt í nágrenni við kirkjuna. • Girðingin sem var umhverfis gamla presthúsið verði endurnýjuð og lóðin öll gerð að bílastæði fyrir kirkjuna. • Tré verði snyrt eða fjarlægð eins og þurfa þykir. Með von um að gamla sóknarkirkjan mín og umhverfi hennar fari frá því að vera með því óþrifalegra á landinu í það fegursta. Birna Sigurðardóttir P.s. Bréfið var einnig sent á prófast, prest, sóknarnefnd alla og Biskupsstofu. Háskólinn á Hólum 22 nemendur brautskráðust að hausti Á heimasíðu Háskólans á Hólum segir frá því að föstudaginn 8. október síðastliðinn var brautskráningarathöfn háskólans að hausti í Hóladómkirkju en alls braut- skráðust 22 nemendur að þessu sinni. Frá Ferðamáladeild brautskráðust átta einstaklingar, einn með diplóma í ferða- málum, fimm með diplómu í viðburða- stjórnun og tveir með BA gráðu í stjórnun ferðaþjónustu og móttöku gesta. Frá Fisk- eldis- og fiskalíffræðideild brautskráðust 13 einstaklingar, 12 með diplómu í fiskeldi og einn með MS gráðu í sjávar- og vatnalíffræði. Frá Hestafræðideild brautskráðist einn ein- staklingur með diplóma í reiðmennsku og reiðkennslu. Í fréttinni segir að athöfnin hafi verið gleðistund enda höfðu nemendur lagt stund á nám við mjög óhefðbundnar aðstæður sökum Covid-faraldursins. Að athöfn lok- inni bauð háskólinn nýbrautskráðum Hóla- mönnum, aðstandendum og starfsfólki til veislu í Kaffi Hólar. Alls brautskáðust 66 einstaklingar með 67 gráður frá háskólanum á skólaárinu, 28 einstaklingar af fræðasviðum ferðamála, 17 af fræðasviðum fiskeldis- og fiskalíffræði, sjávar og vatnalíffræði og 22 af fræðasviði hestafræða. /ÓAB Brautskráningarnemar haustið 2021. MYND: HÓLAR.IS 4 41/2021

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.