Morgunblaðið - 06.04.2022, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 06.04.2022, Qupperneq 4
4 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 2022 Unnur Freyja Víðisdóttir unnurfreyja@mbl.is Konunglegi breski sjóherinn ákvað að leggja flugmóðurskipi sínu, Prins- inum af Wales, við bryggju í Reykja- vík sl. mánudag til þess að fylla á birgðir skipsins fyrir næstu varnaræfingu. Heimsóknin er þó einnig táknræn fyrir samstarf og vináttu landanna tveggja. Þetta sagði Shaun Rior- dan, verkfræð- ingur og yfirmað- ur vopnaviðhalds á Prinsinum, í samtali við Morgunblaðið um borð í skipinu í gær. „Sem aðilar að Atlantshafsbanda- laginu og Sameiginlegu viðbragðs- sveitinni [e. Joint Expeditionary Force, JEF] lítum við á Íslendinga sem vini okkar og bandamenn. Það er okkur mikil ánægja að koma með skipið hingað sem tákn um samstarf landanna tveggja og sterkt samband þeirra á milli.“ Spurður hvort viðvera breska sjó- hersins hér á landi tengist mögulega stríðsátökunum í Úkraínu segir Ri- ordan átökin hafa styrkt samstöðu Evrópuþjóða og sýnt fram á mikil- vægi varnarbandalaga, sérstaklega í Evrópu og í Norður-Atlantshafi. „Bandalög á borð við NATÓ og JEF eru verkfæri sem við getum notað til þess að sýna samstöðu okk- ar, að okkur verði ekki ógnað og að við munum halda áfram að sigla og starfa frjáls á norðurslóðum. Prins- inn er svo ávallt reiðubúin að bregð- ast við þegar NATÓ telur þörf á því.“ Sem fyrr sagði lagði herinn skipi sínu að bryggju hér á landi til að fylla á birgðir sínar fyrir næstu varnar- æfingu sína en hún mun fara fram í krefjandi vetraraðstæðum á norður- slóðum, að sögn Riordans. „Þar munum við halda áfram að þjálfa hersveitir okkar og prófa bún- aðinn um borð.“ Konunglegar móttökur í Prinsinum - Breska flugmóðurskipið Prinsinn af Wales tekur ekki þátt í heræfingunni Norður-Víkingi - Stoppaði á Íslandi til að fylla á birgðir - Heimsóknin einnig táknræn fyrir samstöðu og vináttu Ljósmynd/Kristinn Magnússon Herskip Breski sjóherinn lagði flugmóðurskipi sínu, Prinsinum af Wales, í Sundahöfn rétt fyrir hádegi í fyrradag, í þeim tilgangi að fylla á birgðir skipsins. Stjórnklefi Hér má sjá einn af fjölmörgum stjórnklefum flugmóðurskipsins. Þyrla Engar orrustuþotur voru á skipinu en þar voru tvær herþyrlur. Shaun Riordan LEITARAÐ STARFSMANNI Vinsamlegast hafið samband við kristjan@fastlind.is Lind fasteignasala óskar eftir starfsmanni á skrifstofu í 100% starf. Starfslýsing: Sendill, afgreiðsla og skjalavinnsla. Gunnhildur Sif Oddsdóttir gunnhildursif@mbl.is Eyþór Arnalds borgarfulltrúi Sjálf- stæðisflokksins segir það mjög já- kvætt að stjórn Orkuveitunnar hafi verið falið að fara yfir virkjana- möguleika á starfssvæði OR en tillaga þess efnis kom frá Ey- þóri á borgar- stjórnarfundi í gær. Segir í tillög- unni að Orkuveit- an sé einn stærsti raforkuframleið- andi landsins og búi yfir sjálfbærum grænum orkuauðlindum sem unnt sé að nýta betur. „Þarna getur Orkuveitan komið með græna orku og staðan er orðin bara sú að það vantar græna raforku á Íslandi og alls staðar þannig að það er mjög ánægjulegt að borgarstjórn beini þessu til orkuveitunnar,“ segir Eyþór í samtali við Morgunblaðið. Upphafið að framtíðinni Eyþór bendir á að ekkert hafi gerst í virkjanamálum í áratug og að nú sé orkuskortur í landinu. Auk þess þurfi orku fyrir orkuskipti og síðan sé orkuöryggi í Evrópu orðið mikið mál. „Mér finnst það jákvætt að þessu hafi ekki verið vísað frá og þetta er upphafið að því að þessu mál séu endurskoðuð. Þetta er upphafið að framtíðinni,“ bætir Eyþór við. Eyþór bendir á að með stjórnar- sáttmála núverandi ríkisstjórnar hafi markmiði um jarðefnaeldsneyt- islaust Ísland verið flýtt til ársins 2040. „Þegar Ísland er búið að segja að það ætli að skipta út jarðefnaelds- neyti þá náttúrulega þarf að koma eitthvað í staðinn,“ segir Eyþór. Staðan orðin allt önnur Eyþór segist viss um að það sé óbeisluð orka á starfssvæði Orku- veitunnar og bendir á að nú sé stað- an allt önnur en að hún hafi verið fyr- ir einhverjum árum og tæknin orðin betri. „Það er svo mikið að gerast í heim- inum að þetta er akkúrat tímapunkt- urinn til að fara af stað,“ segir Eyþór að lokum. Upphafið að því að virkj- anamál séu endurskoðuð - Viss um að það sé óbeisluð orka á starfssvæði Orkuveitu Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Orkuveitan Stjórn OR hefur verið falið að fara yfir virkjanamöguleika á starfssvæði fyrirtækisins eftir tillögu sjálfstæðismanna í borgarstjórn. Páll Magnússon, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðis- flokksins, verður oddviti H-listans, Fyrir Heimaey, fyr- ir komandi sveitarstjórnarkosningar í Vestmannaeyj- um. Íris Róbertsdóttir, núverandi oddviti og bæjar- stjóri í Eyjum, skipar þriðja sæti listans. Páll greinir frá því á Facebook að hann, Íris og kjörnefnd bæjar- málafélagsins hafi verið sammála um að best væri að oddviti listans og bæjarstjóraefni væri ekki einn og sami einstaklingurinn. Páll hefur undanfarið verið einn stjórnenda þáttarins Dagmála. Því er nú lokið. Páll Magnússon í framboð í Eyjum Páll Magnússon Eyþór Arnalds

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.