Morgunblaðið - 06.04.2022, Síða 9

Morgunblaðið - 06.04.2022, Síða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 2022 110 Tr fy Dóra Ósk Halldórsdóttir doraosk@mbl.is „Ég er alveg sammála starfshópnum með það að framkvæmdin á yfir- færslu leghálsskimana frá Krabba- meinsfélaginu til Heilsugæslunnar hefði mátt fara betur fram síðasta ár- ið. Það skýrist að hluta til vegna auk- ins álags á Heilsu- gæsluna í kjölfar kórónuveiru- faraldursins. Einnig virðist starfsmannahald hjá Krabbameins- félaginu hafa farið úr skorðum þegar störf fólks hjá fé- laginu voru lögð niður vegna þess- ara breytinga. Þar hefði mátt gæta meiri nærgætni. Þetta starfsfólk hafði sinnt starfi sínu af alúð um áraraðir,“ segir Jóhann Ágúst Sigurðsson, heilsugæslulæknir og prófessor emeritus. Hann skilaði séráliti í starfshópi sem skipaður var um málið af Læknafélagi Íslands um framkvæmd yfirfærslu leghálsskim- ana frá frjálsum félagssamtökum til hins opinbera. Gott að hafa óháð eftirlit Reynir Tómas Geirsson, fv. yfir- læknir á kvennadeild Landspítalans, prófessor og formaður starfshópsins, greindi frá niðurstöðum nefndarinnar á blaðamannafundi í síðustu viku og lagði þar áherslu á að læra af þessum mistökum og undirbúa betur jafn viðamikil verkefni í framtíðinni. Jó- hann Ágúst segir að hann sé fylgjandi yfirfærslunni sem slíkri, þótt gagn- rýna megi framkvæmdina á síðasta ári. „Ég er ánægður með að skim- anirnar heyri nú undir embætti land- læknis, sem tekur þar með virkan þátt í almenningsfræðslunni og er jafnframt eftirlitsaðili. Framkvæmdin sé svo núna hjá heilsugæslunni. Mik- ilvægt er að hafa í huga að markmið árangursríkrar skimunar miðast við frjálst val um þátttöku, sem byggist á faglegum upplýsingum um kosti og galla skimana.“ Þarf að skoða heildarmyndina Jóhann Ágúst segir nefndina hafa verið mjög samstiga með marga þætti og almennt sé enginn ágreiningur um mikilvægi leghálsskimana. „Nú er mikið verið að ræða um rist- ilkrabbamein og skimun og ég sé að Ásgeir Theódórs, sérfræðingur í meltingarsjúkdómum, var í viðtali hjá ykkur nýlega þar sem hann talaði um að 50-60 manns væru að deyja úr rist- ilkrabba árlega á Íslandi. Nú gæti al- menningur haldið að skimun kæmi í veg fyrir þessi dauðsföll, en því er ekki að heilsa. Það væri hægt að bjarga hugsanlega þremur og í mesta lagi sex einstaklingum samkvæmt ís- lenskum rannsóknum af þessum 50- 60 sem deyja úr ristilkrabba með því að skima 20 þúsund manns á aldr- inum 65-74 ára annað hvert ár í tíu ár. Það verður einnig að hafa í huga að heildardánartíðnin minnkar ekki þrátt fyrir skimunina. Fólk gerir sér ekki grein fyrir umfanginu og í raun hve lítill árangurinn er þegar litið er á heildarmyndina.“ Jóhann segir að þegar litið er á sögu skimana á Íslandi sé annar þátt- ur sem skipti máli sem lúti að rekstri skimana af einkaaðilum eða heilsu- gæslunni. „Við ræddum um hvort það væri við hæfi í nútímasamfélagi að áhugamannasamtök, sem hugsanlega hefðu ávinning af skimunum, væru í forsvari varðandi ákvarðanir um það hverju ætti að skima fyrir, hversu oft og á hvaða aldursskeiði,“ segir hann og bætir við það hafi verið sín skoðun síðustu áratugi að það eigi ekki að vera í höndum einkaaðila að móta þannig forvarnir og lýðheilsu landans vegna hugsanlegra hagsmuna- árekstra. Þessi skoðun hafi nú fengið brautargengi með þessu nýja fyrir- komulagi. „Það er búinn að vera lang- ur aðdragandi að þessari yfirfærslu, eða undanfarin tuttugu ár, en á síð- ustu fjórum árum fóru hlutirnir að ganga hraðar fyrir sig,“ segir Jóhann og bendir á skýrslu velferðarráðu- neytisins frá árinu 2017, þar sem sett var fram þriggja ára áætlun um að setja af stað þverfaglegt skimunarráð á vegum landlæknis, gæta samræmis í skimun við evrópskrar viðmið- unarreglur, virkari þátttöku heilsu- gæslu og að teknar verði upp mæl- ingar á HPV-vírusnum og endurskipulögð leit að legháls- krabbameini í ljósi þeirra og að lok- um að fræðsluefni sé ætíð aðgengi- legt almenningi. „Þessi yfirfærsla á sér lengri aðdraganda og þáverandi heilbrigðisráðherra, Svandís Svav- arsdóttir, tók bara af skarið og fylgdi eftir niðurstöðum fagfólks um skipu- lag málaflokkins í framtíðinni.“ Álag mikið vegna Covid Jóhann segir að rekja megi mikið af hnökrum framkvæmdarinnar á síðasta ári til kórónuveirufaraldurs- ins og mikils álags á heilsugæslunni af þeim sökum, enda hafi Íslendingar staðið þar frammi fyrir stærstu lýðheilsuaðgerð síðari tíma. „Það er mikilvægt að það komi fram að vandamálið var lítið í lýð- heilsusamhengi og aldrei á því stigi að það ógnaði lífi eða heilsu kvenna.“ Hann segir málaflokkinn núna í góð- um farvegi hjá heilsugæslunni og þótt vissulega hafi mátt undirbúa verk- efnið betur, ekki síst í ljósi álagsins á heilbrigðisstofnanir vegna kórónu- veirufaraldursins, þá megi nú vel við una. Telur varhugavert að hagsmuna- samtök móti lýðheilsustefnuna - Skimanir komnar í gott horf - Kórónuveirufaraldurinn hafði áhrif - Yfirfærslan staðið til lengi Jóhann Ágúst Sigurðsson. Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Landlæknir Núna heyra skimanir fyrir leghálskrabbameini undir embætti landlæknis, en framkvæmdin er hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.