Morgunblaðið - 06.04.2022, Page 11

Morgunblaðið - 06.04.2022, Page 11
11 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 2022 Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, sagði í gær að hann óttaðist að fleiri grimmd- arverk Rússa í Úkraínu ættu eftir að koma í ljós. Stoltenberg sagði að gert væri ráð fyrir að Rússar vildu senda þann her- styrk sem nú hefur yfirgefið Úkraínu í norðri og norðaustri og nýta til sóknar í Donbass-héruðunum og til að búa til landbrú milli Rússlands og Krímskagans. Sagði hann að kom- andi vikur myndu skipta gríðarmiklu máli. Utanríkisráðherrar bandalagsríkj- anna munu funda í Brussel í dag, og sagði Stoltenberg að hann gerði ráð fyrir að þar yrði rætt um hvernig bandalagsríkin gætu veitt Úkra- ínumönnum meiri aðstoð til að hjálpa þeim að standa af sér yfirvofandi áhlaup Rússa í austri, m.a. Javelin- eldflaugar og önnur áþekk vopn sem reynst hafa mjög vel gegn rúss- neskum skriðdrekum. Sagði Stolten- berg að því meiri styrk sem hægt væri að veita Úkraínuher, því betri niðurstöðu væri að vænta úr friðar- viðræðum við Rússa. Mark Hertling, fyrrverandi undir- hershöfðingi í Bandaríkjaher, sagði hins vegar á Twitter-síðu sinni, að þeir hermenn sem flúið hefðu frá Kænugarði væru í engu ástandi til að halda áfram hernaði á næstunni. Þeir hefðu fyrst verið í Hvíta-Rússlandi í nokkra mánuði og svo tekið þátt í hörðum bardögum. Margir þeirra hefðu framið stríðsglæpi og allt þetta tæki sinn toll, bæði líkamlega og and- lega. „Þessir hermenn eru að mínu mati búnir,“ sagði Hertling. Hann bætti við að í innrásinni hefði komið í ljós hversu hrikalegt ástand væri á búnaði og birgðum rússneska hersins, sem og hversu illa þjálfaðir hermennirnir væru. „Þú sendir ekki svona hersveitir aftur í slaginn og býst við annarri niðurstöðu.“ AFP/Sergey Bobok Úkraínustríðið Rússar hafa misst þó nokkra skriðdreka í átökunum. NATO ræðir að- stoð við Úkraínu - Rússneski herinn í slæmu ástandi Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Volodimír Selenskí, forseti Úkraínu, krafðist þess í ávarpi sínu fyrir ör- yggisráði Sameinuðu þjóðanna í gær að Rússar yrðu dregnir til ábyrgðar fyrir þá glæpi sem þeir hafa framið í innrásinni í land sitt. Selenskí spurði jafnframt hver tilgangur öryggis- ráðsins væri ef það gæti ekki tryggt öryggi, og skoraði á það að fjarlægja Rússa úr ráðinu sem árásarríki sem hefði brotið gegn stofnsáttmála SÞ. Selenskí sagði að ekki gengi upp að Rússar gætu beitt neitunarvaldi á ályktanir um eigin gjörðir og spurði viðstadda hvort þeir væru reiðubúnir að gefa Sameinuðu þjóðirnar upp á bátinn. „Dömur og herrar, eruð þið reiðubúin að loka Sameinuðu þjóð- unum? Og binda endi á tíma alþjóða- laga? Ef svar ykkar er nei þurfið þið að grípa tafarlaust til aðgerða,“ sagði Selenskí í ávarpi sínu. Selenskí lýsti þeim stríðsglæpum sem Rússar hafa framið í Bútsja og öðrum þorpum Úkraínu. Sagði hann að fólk hefði verið myrt í eigin íbúð- um, að skriðdrekar hefðu keyrt vilj- andi yfir fólk sem sat í bílum sínum. „Ábyrgðin verður að vera óumflýj- anleg.“ Þetta var í fyrsta sinn sem Sel- enskí ávarpar öryggisráðið eftir að innrás Rússa hófst. Var ávarpi hans fylgt eftir með myndbandi, þar sem sjá mátti fórnarlömb Rússa liggja í blóði sínu. Vasilí Nebensía, fulltrúi Rússa í öryggisráðinu, endurtók ásakanir stjórnvalda í Kreml um að Úkraínu- menn hefðu sviðsett voðaverkin í Bútsja. Gervihnattamyndir frá bandaríska gervihnattafyrirtækinu Maxar Technologies sýna hins vegar að lík hafi legið á götum bæjarins allt frá 11. mars síðastliðnum, þegar Rússar höfðu yfirráð yfir bænum. Lýsti AFP-fréttastofan því yfir að myndirnar ásamt þeim ljósmyndum sem fréttastofan hefði tekið í Bútsja afsönnuðu fullyrðingar Rússa um að líkin hefðu birst þar eftir að rúss- neski herinn flúði frá bænum. Vilja banna kolainnflutning Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusam- bandsins, kynnti í gær tillögur að hertum refsiaðgerðum sambandsins gegn Rússum vegna stríðsglæpa þeirra í Bútsja. Fela tillögurnar í sér algjört bann á innflutning kola frá Rússlandi, sem og hafnbann á rúss- nesk skip frá öllum höfnum aðildar- ríkjanna. Fleiri rússneskar vörur verða sniðgengnar samkvæmt tillög- unum, þar á meðal vodki. Þá er einnig lagt til að banna alfar- ið viðskipti fjögurra rússneskra banka innan sambandsins, en bank- arnir fjórir telja samanlagt um 25% af rússneska bankageiranum. Á meðal bankanna fjögurra er VTB, sem er næststærsta útlánastofnun Rússlands. Aðgerðirnar verða ræddar í dag á fundi utanríkisráðherra sambands- ins, en þær þurfa samþykki allra að- ildarríkjanna 27 til að ganga fram. „Rússland er að heyja grimmilegt og samviskulaust stríð, sem beinist einnig gegn almennum borgurum í Úkraínu. Við verðum að halda uppi hinum ýtrasta þrýstingi á þessum mikilvæga punkti,“ sagði von der Leyen þegar hún kynnti tillögurnar. Rúmlega 150 sendir heim Auk fyrirhugaðs kolabanns hafa ríki Evrópusambandsins einnig tekið höndum saman við að vísa rússnesk- um sendiráðsstarfsmönnum á brott úr löndum sínum vegna gruns um njósnastarfsemi. Bæði Frakkar og Þjóðverjar gripu til slíks ráðs í fyrra- dag, auk þess sem stjórnvöld í Lithá- en sendu rússneska sendiherrann heim. Danir, Ítalir, Spánverjar og Slóvenar bættust í þeirra hóp í gær, auk þess sem Evrópusambandið sjálft vísaði rússneskum erindrekum á brott frá skrifstofum sínum í Brussel. Hafa nú nærri 200 rússneskir sendiráðsstarfsmenn verið reknir heim á síðustu tveimur sólarhring- um. Rússnesk stjórnvöld sögðu í gær að brottvísanirnar væru „skammsýn aðgerð“ sem myndu flækja tilraunir til að binda endi á átökin, en fastlega er gert ráð fyrir að Rússar muni svara brottvísununum í sömu mynt. Enn ekki bann á jarðgas Tillögur sambandsins ganga þó skemur en Úkraínumenn og fleiri vilja, þar sem þær snerta ekki á inn- flutningi jarðgass frá Rússlandi, helstu tekjulind Rússa. Von der Leyen áætlaði þó að tekjutap Rússa vegna kolabannsins myndi nema um fjórum milljörðum bandaríkjadala á ári, eða sem nemur um 516 milljörð- um íslenskra króna. Ríki sem treysta mjög á rússneskt jarðgas til orkuframleiðslu hafa streist gegn banni á innflutning þess, en þar á meðal eru Þýskaland, Aust- urríki og Ítalía. Þýsk stjórnvöld lýstu því yfir á mánudaginn að enn væri ekki hægt að banna innflutning jarð- gass, en að slíkar aðgerðir væru enn á borðinu síðar meir. Sagði von der Leyen að þegar væri hafið að teikna upp aðgerðir gegn innflutningi á olíu. Afstaðan að breytast? Teikn eru þó á lofti um að afstaða almennings í þeim aðildarríkjum sem streist hafa gegn banni á jarð- gas- og olíuinnflutning frá Rússlandi sé að breytast í kjölfar voðaverkanna í Bútsja. Ambrose Evans-Pritchard, viðskiptaritstjóri Daily Telegraph, segir að sú afstaða þýði að algjört innflutningsbann á rússneska orku- gjafa sé skammt undan. Þannig lýsti Luigi di Maio, utan- ríkisráðherra Ítalíu, því yfir um helgina að Ítalir myndu ekki lengur beita neitunarvaldi á tillögur um al- gjört bann á innflutningi jarðgass, þrátt fyrir að Ítalía treysti nánast jafnmikið á rússneska orkugjafa og Þjóðverjar. Yfirlýsing Di Maio þótti ekki síst merkileg í ljósi þess að hann er fulltrúi Fimmstjörnuhreyfingar- innar, sem hingað til hefur ekki viljað styggja Rússa um of. Þýsk stjórnvöld segja hins vegar að tafarlaust bann við innflutningi jarðgass gæti orsakað djúpa kreppu um alla Evrópu. Þýskir hagfræðing- ar hafa hins vegar áætlað að slíkt bann myndi einungis kalla á um 1-3% samdrátt í hagkerfi Þýskalands, og því væri vel þolanlegt fyrir Þjóðverja að færa slíkar fórnir. Olaf Scholz Þýskalandskanslari sagði það mat hins vegar vera „óábyrgt“. Kannanir benda til að tveir þriðju hlutar þýskra kjósenda vilji setja innflutningsbann á alla rússneska orkugjafa, og Frank Walter-Stein- meier, forseti Þýskalands, baðst fyrr í vikunni afsökunar á að hafa haft rangt fyrir sér um Pútín, en Stein- meier var utanríkisráðherra þegar Þjóðverjar sömdu við Rússa um smíði Nord Stream 2. Rússum verði vísað úr ráðinu - Selenskí ávarpaði öryggisráð Sameinuðu þjóðanna í fyrsta sinn frá upphafi innrásar - Senda rúss- neska sendiráðsstarfsmenn heim - Framkvæmdastjórn ESB leggur fram tillögur að hertum aðgerðum Ljósmynd/Óskar Hallgrímsson Hryllingur Ljósmyndarinn Óskar Hallgrímsson heimsótti Bútsja í gær. Hann segir að aðkoman hafi verið hryllileg, ekki síst í húsum sem rússneskir hermenn höfðust við í. Á götum voru skriðdrekar og gæludýr sem skilin voru eftir. SKVÍSAÐU ÞIG UPP FYRIR SUMARIÐ STÆRÐIR 1428 A-sniðs toppur fleiri litir í boði 2.99O kr Kjóll með vösum 6.99O kr Kjóll með vösum 6.99O kr Ný sending af túnikum og kjólum Fallegar vörur í stærðum 42-58 Pantaðu í netverslun www.curvy.is eða komdu við í verslun Curvy við Grensásveg Verslunin CURVY | Fellsmúla 26 við Grensásveg, 108 RVK | Sími 581-1552 | www.curvy.is Túnika 6.990 kr Stríð í Evrópu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.