Morgunblaðið - 06.04.2022, Blaðsíða 20
20 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 2022
FAXAFEN 14, 108 REYKJAVÍK
WWW.Z.IS
50 ÁRA Gísli er Grundfirð-
ingur í húð og hár, býr í
Reykjavík en er að flytja í Mos-
fellsbæinn. Hann er rafeinda-
virki að mennt frá Tækniskól-
anum og er sölustjóri hjá
Fálkanum Ísmar. Gísli er odd-
fellow og er í stúku nr. 27, Sæ-
mundi fróða. „Áhugamál mín
eru alls konar útivera eins og
veiði og skíði.“
FJÖLSKYLDA Börn Gísla
eru Viktor Leó, f. 2000, og
Alexandra Sól, f. 2006. For-
eldrar Gísla eru Svandís
Jeremíasdóttir, f. 1942, d. 2021,
húsmóðir, og Gísli Árnason, f.
1930, d. 1992, vélstjóri. Þau
voru búsett á Grundarfirði.
Gísli Svanur Gíslason
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Þú getur lagt frábærar hugmyndir
þínar í púkk með öðrum snillingi og verið
tvöfalt hættulegur. Láttu berast með
straumnum.
20. apríl - 20. maí +
Naut Vertu spar á loforð og gefðu þau þá
því aðeins að þú getir staðið við þau. Sinntu
starfi þínu af kostgæfni og einkamálunum
utan þess.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Sjálfsstjórn þín mun vekja virð-
ingu annarra. Gerðu draum þinn að veru-
leika og leitaðu á vit ævintýranna.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Það er allt í lagi að taka smáá-
hættu, þegar aðstæður eru hagstæðar.
Hvað sem hver segir þá ferðu með þína
peninga eins og þér sýnist.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Það reynir á stjórnunarhæfileika þína
og þá ríður á miklu að þú bregðist rétt við.
Það verður lítið úr framtíðardraumunum, ef
ekkert er gert til þess að þeir rætist.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Gerðu það sem þú þarft að gera í
dag en leggðu áherslu á friðsælt andrúms-
loft því þá gengur allt betur. Heilbrigð skoð-
anaskipti eru af hinu góða.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Hraðinn í þínu daglega lífi eykst dag frá
degi. Þú þarft að reyna að hefja þig upp fyr-
ir hversdagsleikann svo líf og starf verði
skemmtilegt.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Sumum finnst þeir þurfa að
fegra hlutina en það á ekki við um þig. Sönn
hamingja felst í því að halda áfram á þeirri
leið sem þú hefur valið þér.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Reyndu að forðast rifrildi við
fjölskyldumeðlimi. Láttu aðra samt ekki
komast upp með það að svara þér meira
eða minna út í hött.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Nú er ekki rétti tíminn til þess að
taka einhverja áhættu. Sýndu fólki að þú
kunnir að meta það sem gert er fyrir þig og
gakktu glaður að hverju verki.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Viljirðu búa við áframhaldandi
velgengni máttu í engu slaka á. Sinntu þeim
málum, sem þú hefur látið sitja á hakanum.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Hvort sem þú skreytir, endurnýjar
eða betrumbætir á heimili þínu mun það
bera árangur. Njóttu lífsins og líttu á björtu
hliðar þess.
Norræna hússins í Reykjavík frá
2017. Bogi fékk Edduverðlaunin
sem Sjónvarpsmaður ársins 2014.
ekki sá viðburður í fjölmenni að
hann sé ekki myndaður. Hin
breytingin er að fjölmiðlar eru
ekki lengur hliðverðir, eins og að
Mogginn komi út á morgnana og
það séu aðalfréttatímar í útvarpi
og sjónvarpi. Núna er þetta orðin
símiðlun.“ Þótt Bogi standi nú á
sjötugu þá er hann ekki að láta af
störfum. „Ég er nýbúinn að gera
verktakasamning við RÚV til eins
árs, til að byrja með, þannig að ég
held áfram að lesa fréttir.“
Bogi var formaður starfsmanna-
félags Sjónvarpsins 1982-1984,
varaformaður fréttanefndar EBU
(Sambands útvarps-sjónvarps-
stöðva í Evrópu) og formaður
ritstjórnarnefndar EBU. Bogi var
formaður Norræna félagsins í
Reykjavík frá 2010 til 2014 og for-
maður Norræna félagsins á Ís-
landi frá árinu 2015 til 2019. Hann
er formaður stjórnar Stofnunar
dr. Sigurbjörns Einarssonar og
hefur verið frá 2009. Hann hefur
verið varaformaður stjórnar
B
ogi Ágústsson fæddist
6. apríl 1952 í Reykja-
vík. „Fjölskyldan bjó
á Nesvegi þegar ég
fæddist, við vorum
síðan mjög stutt á Kleifarvegi og
fluttum þaðan í Sörlaskjól og síð-
an hef ég búið í Vesturbænum og
á Seltjarnarnesi. Það má segja að
ég sé Vesturbæingur langt fram í
ættir, en Bjarni Kristjánsson,
langalangafi minn, var útvegs-
bóndi í Hlíðarhúsum, sem voru við
Vesturgötu.“
Bogi gekk í Melaskóla og Haga-
skóla, lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík árið
1972 og stundaði nám í sagnfræði
við Háskóla Íslands frá 1972-1977.
Bogi starfaði sem kennari við
Álftamýrarskóla frá 1975-1977 og
var fréttamaður hjá Fréttastofu
Sjónvarpsins frá 1977-1984. Hann
flutti til Kaupmannahafnar árið
1984 og starfaði sem fréttamaður
þar og flutti fréttir frá Norður-
löndunum fyrir Ríkisútvarpið til
ársins 1986. Árið 1987 varð hann
aðstoðarframkvæmdastjóri Ríkis-
útvarpsins. Um nokkurra mánaða
skeið árið 1988 var hann blaða-
fulltrúi Flugleiða, nú Icelandair.
Sama ár varð hann fréttastjóri
Ríkissjónvarps og gegndi starfinu
til ársins 2003. Bogi varð þá for-
stöðumaður fréttasviðs Ríkis-
útvarpsins, en lét af því starfi við
skipulagsbreytingar 2007. Síðan
hefur hann starfað sem frétta- og
dagskrárgerðarmaður.
Bogi hefur meðal annars verið
umsjónarmaður þáttanna „Viðtals-
ins“ og „Fréttaaukans“. Hann var
umsjónarmaður umræðuþáttarins
„Hringborðsins“ á RÚV ásamt
Þórhildi Þorleifsdóttur og Styrmi
Gunnarssyni. Bogi hefur verið
einn af fréttalesurum Ríkis-
sjónvarpsins frá árinu 1979.
Margt hefur breyst á þessum
tíma í fjölmiðlaumhverfinu.
„Tvennt skiptir aðalmáli og það er
sú eðlisbreyting að þátttaka al-
mennings í fréttaöflun er orðin
miklu meiri,“ segir Bogi. „Nú
gengur hver einasti maður með
myndatökuvél á sér, og það gerist
Hann hefur einnig setið í stjórn
Félags Sameinuðu þjóðanna á
Íslandi.
Bogi var sæmdur riddarakrossi
Hinnar íslensku fálkaorðu 2019
fyrir störf á vettvangi fjölmiðlunar
og norrænnar samvinnu og er nú í
orðunefnd.
„Vinnan hefur verið eitt aðal-
áhugamál mitt. Svo er fótbolti
annað aðaláhugamál mitt, ég er
mikill stuðningsmaður KR og hef
verið í sjálfboðaliðastarfi í KR-
útvarpinu frá stofnun 1999. Ég hef
mjög gaman af því að lesa, les
talsvert af sagnfræði og hef lesið
dálítið af íslenskum skáldskap og
það er aðallega konan mín sem
heldur honum að mér og hefur
verið minn ritstjóri þar. Ég hlusta
líka mikið á tónlist, klassík,
óperur og raunar á allt nema
kántrí og rapp.“
Fjölskylda
Bogi kvæntist 30.8. 1975 Jónínu
Maríu Kristjánsdóttur, f. 4. janúar
Bogi Ágústsson frétta- og dagskrárgerðarmaður – 70 ára
Stórfjölskyldan Samankomin í Stokkhólmi jólin 2018. Síðan þá hafa þrjú barnabörn bæst við.
Á skjáum landsmanna í 45 ár
Á RÚV Annar nýhættur en hinn held-
ur áfram, Broddi Broddason og Bogi.
Til hamingju með daginn
Akureyri Alexander Ýmir Daníelsson
fæddist 11. ágúst 2021 kl. 15.36 á
Akureyri. Hann vó 2.570 g og var 45,5
cm langur. Foreldrar hans eru Lovísa
Ösp Konráðsdóttir og Daníel Freyr
Jónsson.
Nýr borgari