Morgunblaðið - 06.04.2022, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 06.04.2022, Qupperneq 23
ÍÞRÓTTIR 23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 2022 _ Kieran Tierney, vinstri bakvörður enska knattspyrnuliðsins Arsenal og skoska landsliðsins, þarf að gangast undir skurðaðgerð á vinstra hné sínu og er tímabili hans því að öllum lík- indum lokið. Hann var skoðaður af sér- fræðingi í gær sem komst í samráði við Tierney og læknateymi Arsenal að þeirri niðurstöðu að hann þyrfti á skurðaðgerð að halda. Aðgerðin verð- ur framkvæmd í Lundúnum á næstu dögum. _ Karlalið Fjölnis í handknattleik lenti í miklum hremmingum að loknum leik þess gegn Herði í næstsíðustu umferð B-deildarinnar, Grill 66-deildarinnar, síðastliðið sunnudagskvöld. Vegna erf- iðra aðstæðna komst það ekki heim til Reykjavíkur fyrr en um 18 klukkutím- um eftir að lagt var af stað úr Skut- ulsfirði. Viktor Lekve, aðstoðarþjálfari Fjölnis, sagði frá því í samtali við Handbolta.is að rútan sem ferjaði hóp- inn hefði sloppið yfir Steingrímsfjarð- arheiði í vonskuveðri en að þegar kom- ið var á Þröskulda um miðnætti hafi verið orðið ófært og rútan fest í kjöl- farið. Björgunarsveitir gátu ekki losað rútuna og því sat hún föst þar til um klukkan níu á mánudagsmorgninum. Með hjálp snjóruðningstækja tókst þá loks að losa rútuna. Fljótlega eftir það fór rútan hins vegar aftur út af veginum og tók um klukku- stund að koma henni aftur á veginn. Þegar rútan var komin í Bröttubrekku bilaði bremsukerfi hennar og því þurfti að bíða í tvær klukkustundir eftir nýrri rútu, sem kom hópnum loks á leið- arenda. _ Dale Stephens, miðjumaður enska knattspyrnuliðsins Burnley, hefur misst bílpróf sitt í eitt ár og verið gert að greiða 3.334 punda sekt eftir að hann keyrði undir áhrifum áfengis. Stephens, sem er 32 ára gamall, játaði brot sitt fyrir rétti í Stockport á mánu- dag. Var hann stöðvaður af lögreglu þann 14. mars síðastliðinn og látinn blása í áfengismæli þar sem hann mældist yfir löglegum mörkum. Burn- ley hefur tilkynnt að Stephens verði einnig refsað innan herbúða félagsins. Hann hefur aðeins leikið tvo deild- arleiki og einn bikarleik fyrir Burnley á tímabilinu. _ Tiger Woods verður á meðal kepp- enda á Masters-mótinu í golfi sem hefst á Augusta-vellinum í Georgíu í Bandaríkjunum á fimmtudaginn kem- ur. Þetta er fyrsta risamótið sem Tiger keppir á síðan hann lenti í alvarlegu bílslysi í febrúar á síðasta ári en hann gaf það sterklega í skyn eftir slysið að keppn- iskylfurnar væru komn- ar á hilluna. Tiger, sem er 46 ára gamall, hefur fimm sinnum fagnað sigri á Masters- mótinu sem er eitt af risamótum tíma- bilsins. Kylfingurinn sat fyrir svörum á blaðamanna- fundi í gær og játaði því að hann teldi sig geta unnið mótið í ár og þar með í sjötta sinn á ferl- inum. Eitt ogannað Bandaríska körfuknattleikskonan Aliyah Mazyck verður að öllum lík- indum ekki í leikbanni þegar lið hennar Fjölnir heimsækir Njarðvík í öðrum leik liðanna í undan- úrslitum Íslandsmótsins. „Það lítur út fyrir að hún sé ekki í banni vegna ákvæðis í 13. grein en þar kemur fram að eldri brot fyrnast eftir að úrslitakeppnin byrjar,“ sagði Halldór Karl Þórsson, þjálfari Fjölnis, í samtali við mbl.is í gær en Mazyck fékk tvær tæknivillur í fyrsta leik einvígisins á mánudag, í annað sinn á tímabilinu. Spilar líklega í Njarðvík Morgunblaðið/Árni Sæberg 28 Aliyah Mazyck hefur skorað 28 stig að meðaltali í leik í vetur. Körfuknattleiksdeild KR hefur ákveðið að rifta samningi sínum við Bandaríkjamanninn Isaiah Mand- erson. Manderson náði sér ekki al- mennilega á strik með KR á leiktíð- inni og gerði hann 12 stig að meðaltali í leik og tók 5,2 fráköst. Hinn 27 ára gamli Manderson kom til KR-inga í febrúar og lék að- eins fimm leiki með liðinu. KR mæt- ir deildarmeisturum Njarðvíkur í átta liða úrslitum Íslandsmótsins en KR endaði í áttunda sæti deild- arikeppninnar. Fyrsti leikur lið- anna fer fram í Njarðvík í kvöld. Ljósmynd/Þórir Tryggvason 12 Framherjinn Isaiah Manderson náði sér ekki á strik í Vesturbænum. Yfirgefur Vesturbæinn KÖRFUBOLTINN Bjarni Helgason Jóhann Ingi Hafþórsson Kári Jónsson og Pablo Cesar Ber- tone voru atkvæðamestir Valsmanna þegar liðið vann fimm stiga sigur gegn Stjörnunni í fyrsta leik liðanna í 8-liða úrslitum Íslandsmóts karla í körfuknattleik í Origo-höllinni á Hlíðarenda í gær. Kári skoraði 21 stig og tók fjögur fráköst og Bertone skoraði 21 stig og gaf fimm stoðsendingar fyrir Val sem vann 90:85-sigur. Valsmenn náðu yfirhöndinni í leiknum strax í fyrsta leikhluta en Stjarnan komst yfir, 63:62, þegar skammt var eftir af öðrum leikhluta. Valsmenn voru hins vegar sterkari það sem eftir lifði leiks og fögnuðu naumum sigri. David Gabrovsek skoraði 25 stig fyrir Stjörnuna og Robert Turner 23 stig, ásamt því að gefa 8 stoðsend- ingar. „Fyrsti sigur Valsmanna á heima- velli í úrslitakeppninni í 30 ár var verðskuldaður. Finnur Freyr Stefánsson setti leikinn vel upp, náði að loka á marga leikmenn Stjörnunnar og hinum megin skiptust sóknarmenn Vals á að taka ábyrgð. Stjarnan þarf að laga margt í leik tvö til að koma sér aftur inn í einvíg- ið,“ skrifaði Jóhann Ingi Hafþórsson í umfjöllun sinni um leikinn á mbl.is. Valur leiðir því 1:0 í einvíginu en liðin mætast næst í Mathöll Garð- arbæjarhöllinni í Garðabæ 8. apríl. _ Þá átti Sigtryggur Arnar Björnsson stórleik fyrir Tindastól þegar liðið vann afar sannfærandi sigur gegn Keflavík í Síkinu á Sauð- árkróki. Leiknum lauk með 103:80-sigri Tindastóls en Sigtryggur Arnar skoraði 25 stig, tók fimm fráköst og gaf þrjár stoðsendingar fyrir Sauð- krækinga. Tindastóll byrjaði leikinn betur, leiddi með sex stigum eftir fyrsta leikhluta, og þeir létu forystuna aldrei af hendi eftir það. Taiwo Badmus skoraði 24 stig og tók fimm fráköst fyrir Tindastól en Valur Orri Valsson var stigahæstur í liði Keflavíkur með 17 stig. Bæði lið voru lengi í gang og það var Keflvíkingum eflaust til happs enda stungu Stólarnir svo gott sem af um leið og skotin fóru að detta hjá þeim. Það var í raun vandræðalegt að fylgjast með frammistöðu margra lykilmanna Keflavíkur og þar ber hæst að nefna Mustapha Heron sem var hreinasta hörmung allan leikinn. Keflvíkingar voru fljótir að hengja haus um leið og hlutirnir voru ekki að detta með þeim og það var engin stemning eða kraftur í liðinu. Liðin mætast að nýju 8. apríl í Blue-höllinni í Keflavík og þurfa Keflvíkingar að ná upp einhverri stemningu í sitt lið ef þeir ætla ekki að láta sópa sér út úr úrslitakeppn- inni. Fyrsti sigur Vals í 30 ár Morgunblaðið/Árni Sæberg 21 Kári Jónsson skoraði 21 stig fyrir Val í gærkvöldi. Stjörnumaðurinn David Gabrovsek, sem skoraði 25 stig, sækir að Kára í leiknum í gærkvöldi. - Tindastóll vann sannfærandi sigur gegn Keflavík í Síkinu á Sauðárkróki Ómar Ingi Magnússon átti sannkall- aðan stórleik fyrir Magdeburg og skoraði tíu mörk þegar liðið vann nauman 36:35-sigur gegn Sporting Lissabon frá Portúgal í síðari leik lið- anna í 16-liða úrslitum Evrópudeild- arinnar í handknattleik í Þýskalandi í gær. Fyrri leik liðanna lauk með 29:29-jafntefli og því þurfti Magde- burg að vinna leikinn til þess að kom- ast áfram því ef leikurinn hefði endað jafn hefði Sporting farið áfram á fleiri mörkum skoruðum á útivelli. Staðan var jöfn, 35:35, þegar fimmtán sek- úndur voru til leiksloka en þá skoraði Lukas Mertens sigurmark Magde- burgar sem vann einvígið samanlagt 65:64. Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði tvö mörk fyrir Magdeburg sem er komið áfram í 8-liða úrslitin þar sem liðið mætir Nantes frá Frakklandi. _ Þá átti Viktor Gísli Hallgrímsson mjög góðan leik í marki GOG og varði 13 skot þegar liðið tryggði sér sæti í 8-liða úrslitunum með sigri gegn Bidasoa. Leiknum lauk með 33:31- sigri GOG sem vann einvígið sam- anlagt 63:59 en GOG mætir Nexe frá Króatíu. _ Þá skoraði Bjarki Már Elísson átta mörk fyrir Lemgo og var marka- hæsti leikmaður liðsins þegar það gerði 28:28-jafntefli gegn Wisla Plock í Póllandi. Fyrri leik liðanna lauk með 31:28-sigri Wisla Plock sem vann ein- vígið 59:56 og Lemgo er því úr leik. _ Aðalsteinn Eyjólfsson og læri- sveinar hans í svissneska liðinu Ka- detten eru einnig komnir áfram í 8- liða úrslitin þrátt fyrir 28:34-tap gegn Sävehof í Svíþjóð. Fyrri leik liðanna lauk með 32:26-sigri Kadetten í Sviss sem fer áfram í 8-liða úrslit- in á fleiri mörkum skoruðum á útivelli en Kadetten mætir Wisla Plock. Þrjú Íslendingalið í 8-liða úrslitum Ljósmynd/Szilvia Micheller 10 Ómar Ingi fór á kostum í gær. SA og Fjölnir mættust í fyrsta leik úrslitakeppninnar í íshokkí kvenna í gærkvöldi þar sem heimakonur í SA höfðu að lokum nauman 2:1- endurkomusigur í hörkuleik. Sigrún Árnadóttir kom Fjölni í forystu í fyrsta leikhluta þegar hún náði frábæru skoti fram hjá Birtu Þorbjörnsdóttur í marki SA, sem hafnaði í samskeytunum. Staðan var því 0:1 fyrir Fjölni eftir fyrsta leik- hlutann og þannig stóðu leikar enn að loknum öðrum leikhluta. SA var þá búið að þjarma að marki Fjölnis og í upphafi lokaleik- hlutans jafnaði hin margreynda Anna Sonja Ágústsdóttir loks metin fyrir heimakonur eftir gott samspil. Leikurinn opnaðist töluvert í kjöl- farið enda ætluðu bæði lið sér sig- urinn. Þremur mínútum fyrir leiks- lok hristi María Guðrún Eiríksdóttir af sér varnarmann Fjölnis og sendi pökkinn fram hjá Aurelie Donnini í marki Fjölnis við mikinn fögnuð heimamanna og tryggði SA sig- urinn. Þar við sat og deildarmeist- arar SA leiða því 1:0 í einvíginu. Morgunblaðið/Þórir Tryggvason Akureyri Hilma Bergsdóttir lagði upp annað af mörkum SA gegn Fjölni. María tryggði sigur í fyrsta leik

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.