Morgunblaðið - 06.04.2022, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 06.04.2022, Qupperneq 25
MENNING 25 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 2022 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ EMPIRE VARIET Y SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI 75% E ftir því sem ég kemst næst eru næstum nákvæmlega fimm ár síðan leiksýning byggð á nýju íslensku handriti rataði á Stóra svið Þjóðleik- hússins án þess að vera stórsjó af söngleikjakyni, leikgerð skáldsögu, eða þá hvort tveggja. Verkin sem sýnd voru með mánaðarmillibili vorið 2017, svo ágæt sem þau þó voru fyrir sinn hatt, eru þó hvorugt gott dæmi um „rækt við íslenska leik- ritun“ sem við krefjumst jú af Þjóð- leikhúsi okkar, öðrum leikhúsum fremur. Annað lausbeislað samsköp- unarverk með bútum úr öðrum verk- um (Álfahöllin), hitt fimmtíu ára gamalt ósýnt verk úr safni látins leikritunarjöfurs (Húsið). Ég hef ekki tíma eða þægilegt upplýsinga- aðgengi til að leita uppi nýjasta dæmið um nýsamið íslenskt leikrit á Stóra sviðinu, en það er allavega eldra en þetta. Hvað veldur má svo deila um, og sjálfsagt að listrænir leiðtogar húss- ins og fulltrúar leikskáldastéttar- innar bendi ásakandi hvorir á aðra og skiptist jafnvel á skoðunum. Von- andi eru þeir samt sammála um að þetta getur ekki verið eðlilegt ástand. Vonandi er nýjasta verk Tyrfings Tyrfingssonar til merkis um að þetta standi til bóta, ekki síst í ljósi þess að það hefði ekki þurft neina ofurmannlega hugkvæmni til að koma því fyrir í Kassanum eins og öllum hinum. Á sama hátt og bæði Auglýsing ársins og Helgi Þór rofnar hefðu farið létt með að fylla út í rými í fullri stærð, en Nýja sviðið, Kassi þeirra í Borgarleikhúsinu, látið duga. Sjálfur segir Tyrfingur í viðtali við Morgunblaðið í aðdraganda frum- sýngar Skammarævintýranna að þegar hann lærði sína leikritunariðn þótti glíman við þrönga rýmið merki- legri. Fyrir þau sem fylgst hafa með Tyrfingi springa út sem leikskáld á undanförnum árum kemur ekkert á óvart að óstýrilátt ímyndunarafl hans njóti sín í víðernunum. Og svo hitt: ef honum er sagt að eitthvað sé fínt er hann skálda líklegastur til að halda í þveröfuga átt. Það vottar heldur ekki fyrir nein- um hátíðleika eða rembingi í Sjö ævintýrum um skömm. Það er frek- ar að afþreyingarlágkúra streymis- veitnanna svífi yfir vötnum lengi vel. Sem betur fer. Lögreglukonan Agla, sem brotið hefur brýr að baki sér, brýst inn á viðtalsherbergi geðlækn- is og heimtar lyf sem slævi hana og svæfi svo hún nái stjórn á óstýrilát- um huga sínum og koma megi í veg fyrir að hún drepi sambýliskonu sína. Læknirinn á sér drauma um að brjóta blað í sínum fræðum með byltingarkenndri meðferð og tekst að fresta lyfjainntökunni meðan hann grefst fyrir um rætur vanlíð- anar hennar með aðferðinni, sem felst í að rifja upp fortíðina í formi, eða undir yfirskini, „ævintýra“. Tónninn í þessum inngangssenum er anarkískur, meinfyndinn og undirbyggður af alls kyns dægur- menningarklisjum um heimskar og/ eða tilfinningalega heftar löggur, drykkfellda og útbrunna geðlækna og, þegar við komumst aðeins lengra inn í ævintýrið um Öglu, samfélags- miðlaverur með sjálfhverfu á loka- stigi og tilfinningalega fjarlæga for- eldra, að ógleymdum kanamellunum. Undir og innan um fáránleikann er síðan áfallasaga Öglu, kunnugleg harmsaga um arfinn sem vanræksla, svik og neysla skila milli kynslóða. Ef þetta væri sálfræðilegt raunsæis- drama væri þetta leikritið um Eddu, dóttur kanamellunnar og móður Öglu, sem ung þurfti að brynja sig gegn tilfinningum og horfir ráðalaus á dóttur sína ganga glötunarbraut- ina. En Sjö ævintýri um skömm er ekki sálfræðilegt raunsæisdrama. Í síðari hlutanum reynir verkið að nálgast þá hefð, en missir um leið nokkuð flugið og tak sitt á allavega þessum áhorfanda. Senurnar lengj- ast og það kemur í ljós að samspil Öglu og geðlæknisins sem heldur fyrri hlutanum á teinunum er mikil- vægara en blasti við þar, í ofgnótt lita og dýrðlegs glóruleysis. Leik- lausnirnar undir lokin verða ansi hreint klisjulegar, og jafnvægið milli háðs og einlægni sem mér hefur þótt eitt af helstu vopnum Tyrfings rask- ast nokkuð. Meðan allt leikur í lyndi eru ævintýrin bráðskemmtileg og ekki síður bitastæð afurð. Framan af er reyndar eins og verið sé að leggja upp með nokkuð hreinræktaðan farsa, en hann afvegaleiðist sem bet- ur fer fljótlega. Allur blær úrvinnslunnar er skemmtilega hrár og kæruleysis- legur. Það birtist í leikmynd Barkar Jónssonar, sem virkar ódýr og vísvit- andi ósmekkleg, og ekki bara í kits- uðu sæluríki kanamellanna í Flórída. Það endurspeglast heldur betur í búningum Þórunnar Elísabetar Sveinsdóttur, ekki síst í hroðalegum, og hroðalega fyndnum, nektar- klæðunum sem áhorfendur þurfa að sætta sig við að hafa fyrir augunum hvað eftir annað. Og það setur svip sinn á leikstílinn í vinnu Stefáns Jónssonar með leikhópnum. Það er nettur sápuóperublær á framgöngu leikhópsins og fer oftast vel á því, þótt síðari hlutinn gjaldi nokkuð fyr- ir að þá er varla innistæða fyrir al- vöruinnlifun. Það þyrfti líka að tala alvarlega við hópinn um framsögn og raddbeitingu. Maður vill helst ekki missa af snjallyrðunum sem Tyrf- ingur er óspar á. Ilmur Kristjánsdóttir nýtur sín vel í þessum stílheimi og bindur sýn- inguna saman í hlutverki Öglu og Hilmir Snær Guðnason fer á kostum sem hinn ónefndi geðlæknir. Þá er ókindin Malla amma aldeilis í örugg- um höndum Ólafíu Hrannar Jóns- dóttur og Kristín Þóra Haraldsdóttir lætur engum staðalmyndasteini óvelt við að búa til hina veruleika- firrtu unnustu Öglu. Foreldrar Öglu eru túlkuð af Steinunni Ólínu Þor- steinsdóttur og Eggert Þorleifssyni sem hafa oft fengið bitastæðari verk- efni en skila sínu með sóma, og eru fyrirsjáanlega morðfyndin í fyrstu ævintýrasenunni þar sem gróteskan ríkir ein. Í fylgdarliði ömmu Möllu eru Kristbjörg Kjeld, Elva Ósk Ólafsdóttir, Edda Arnljótsdóttir og Vincent Kári van der Valk og er prýði að þeim öllum. Edda og Vin- cent eru síðan sérlega fyndin í litlum hlutverkum lögregluþjóna sem eiga að tjónka við Öglu en ferst það ekki nema hæfilega vel úr hendi. Það er aldrei auðvelt að ráða í það hvert Tyrfingur Tyrfingsson er nákvæmlega að fara með verkum sínum. Til þess eru ólíkindin of mikil, hvatinn til að ögra, hneyksla og afvegaleiða of ríkur þáttur. Það er erfitt að trúa því að hin ódýru og dálítið einfeldningslegu leikslok í Sjö ævintýrum um skömm séu í fúlustu alvöru það sem hann vildi sagt hafa. Hitt er alveg ljóst, og alltaf jafn gam- an að vera vitni að: eins og allir góðir skaparar horfir Tyrfingur með vel- þóknun á fólkið sem hann hefur kom- ið í heiminn, sama hversu brotið, gallað og mögulega óþolandi það kemur okkur hinum fyrir sjónir. Frá þeim sjónarhóli eru Sjö ævintýri um skömm meðferð sem gæti gert hverjum gesti gott. Löggulíf Ljósmynd/Jorri Átök „Ilmur Kristjánsdóttir nýtur sín vel í þessum stílheimi og bindur sýninguna saman í hlutverki Öglu og Hilmir Snær Guðnason fer á kostum sem hinn ónefndi geðlæknir,“ segir í rýni um Sjö ævintýri um skömm. Þjóðleikhúsið Sjö ævintýri um skömm bbbmn Eftir Tyrfing Tyrfingsson. Leikstjórn: Stefán Jónsson. Leikmynd: Börkur Jónsson. Búningar: Þórunn Elísabet Sveinsdóttir. Tónlist: Gísli Galdur Þor- geirsson. Lýsing: Halldór Örn Óskars- son. Sviðshreyfingar: Sveinbjörg Þór- hallsdóttir. Hljóðhönnun: Kristján Sigmundur Einarsson og Gísli Galdur Þorgeirsson. Leikendur: Edda Arnljóts- dóttir, Eggert Þorleifsson, Elva Ósk Ólafsdóttir, Hilmir Snær Guðnason, Ilmur Kristjánsdóttir, Kristbjörg Kjeld, Kristín Þóra Haraldsdóttir, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Steinunn Ólína Þorsteins- dóttir og Vincent Kári van der Valk. Frumsýning á Stóra sviði Þjóðleikhúss- ins föstudaginn 1. apríl. 2022. ÞORGEIR TRYGGVASON LEIKLIST

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.