Morgunblaðið - 13.04.2022, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 13.04.2022, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 2022 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Gísli Freyr Valdórsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Eftir næðing undanfarna daga er að sjá breytingar í veðri á landinu. Vindur úr S- og SA með hlýnandi veðri fer um landið vestanvert yfir bænadagana. Lægðir, með roki og rigningu, koma úr suðvestri og reikna má með vætu sunnan- og vestanlands fram á páskadag. Einnig á Vestfjörðum þar sem snjó frá því um helgina tekur upp. „Svo milt verður næstu daga að reikna má með leysingu á hálendinu upp í 800-1.000 metra hæð,“ segir Einar Sveinbjörnsson veður- fræðingur í samtali við Morgun- blaðið. Norðanlands verður milt veður næstu daga. Einar gerir ráð fyrir að norðan- og austanlands fari hitastig í byggð í 8-10 stig og einna hlýjast verði á laugardag. Skýjað verður að mestu þessa daga, en á páskadag eru horfur á að sést geti til sólar norðan- og austanlands. Nyrðra kólnar og frystir aðfaranótt annars í páskum gangi spá eftir. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Sigurður Bogi Umferð Allir vegir í byggð á landinu eru nú greiðfærir og vorbirta í lofti. Lægðir og hlýindi - Rok og rigning - Leysingar á há- lendinu - Blíða nyrðra á laugardaginn Jarðskjálftahrina hófst á Reykja- nesskaga um klukkan 21:20 í gær- kvöldi. Samkvæmt upplýsingum frá Veð- urstofu Íslands hefur skjálfti að stærð 3,9 mælst í kvöld auk tveggja skjálfta yfir 3 að stærð. Þá hefur verið töluverð smáskjálftavirkni. Veðurstofu hafa borist tilkynn- ingar um að skjálftinn hafi fundist í flestum sveitarfélögum á Reykja- nesskaga. Skálftahrinan varð um 7 kíló- metra norðaustur af Reykjanestá. Alls hafa um 200 skjálftar mælst frá því að hrinan hófst. Síðast mældist skjálfti af svipaðri stærðargráðu á þessu svæði í nóv- ember 2021 þegar skjálfti að stærð 3,5 varð þar. Skjálftahrina á Reykjanesskaga Ágúst Héðinsson hefur verið ráð- inn dagskrár- stjóri útvarps- sviðs Árvakurs sem rekur stöðv- arnar K100 og Retro FM895. Hann tekur við af Sigurði Gunn- arssyni sem hverfur til ann- arra starfa. Ágúst hefur und- anfarið stýrt markaðs- og kynningarmálum fyrirtækisins. „Um leið og við óskum Sigurði velfarnaðar á nýjum vettvangi og þökkum gott samstarf þá er ánægjulegt að geta nýtt sér þekk- ingu reynslumesta aðila landsins í rekstri og stýringu útvarps til að móta áfram ferskustu stöðvar landsins,“ segir Magnús E. Krist- jánsson útvarpsstjóri. Ágúst er viðskiptafræðingur og á að baki langa sögu í fjölmiðlum, sér í lagi útvarpi, og gerði um tíma Bylgjuna að langvinsælustu stöð landsins. Hann var lengi vel for- stöðumaður og framkvæmdastjóri miðla hjá 365 og Sýn. Nýr dagskrárstjóri K100 og Retro Ágúst Héðinsson Veronika Steinunn Magnúsdóttir veronika@mbl.is Freydís Kristófersdóttir áttaði sig á því í gær, á fyrsta vinnudegi sínum á Klömbrum Bistro á Kjarvals- stöðum, að í dag eru liðin 50 ár síð- an Kjarval féll frá. Var þá ákveðið að halda upp á daginn og að Mar- entza Poulsen, stofnandi Klambra Bistro, myndi bjóða upp á sérstaka brauðsneið sem Kjarval hefði haft mikið dálæti á. „Mér finnst mjög merkilegt að vera að vinna í húsi sem var byggt utan um málverk Kjarvals. Ég fór að glugga í sögu hans í morgun áður en ég fór í vinnuna,“ segir Freydís og þá hafi hún áttað sig á tímamótunum. Marentza Poulsen, smur- brauðsdottning með meiru, sagði í samtali við Morgunblaðið að þetta myndu þær ekki láta fram hjá sér fara. „Þegar ég byrjaði með staðinn fyrir mörg- um árum gerði ég eina smurbrauðs- sneið honum til heiðurs. Þá var ég búin að lesa um hvað hann borðaði helst og það voru flatkökur og hangikjöt,“ segir hún. Bjó hún þá til hangikjötsbrauðsneið, sem verður seld á Kjarvalsstöðum í dag og um páskana. „Hún er reyndar með ítölsku salati og með brenndum flat- kökum. Þessi hugmynd kom reynd- ar líka þegar ég var að byrja með þennan stað. Þetta er útrúllað eins og hrökkbrauð en síðan er þetta brennt eins og flatkökur sem hefðu verið steiktar á pönnu. Svo að það eru bara steiktar flatkökur sem eru á brauðinu,“ segir hún. Verður minning Kjarvals því heiðruð með þakklæti fyrir allt sem hann skildi eftir sig, að sögn Mar- entzu. „Þessi staður á að geta boðið upp á eitthvað sem tengist honum og við njótum þess að gera það,“ segir hún. Opið verður á Kjarvals- stöðum yfir helgidagana á pásk- unum en þó ekki á páskadag. Hvet- ur Marentza alla til að koma, njóta listarinnar og borða uppáhaldsmat Kjarvals. Morgunblaðið/Árni Sæberg 50 ár eru í dag liðin síðan Kjarval kvaddi þennan heim. Marentza Poulsen smurbrauðsdrottning galdraði fram heiðursbrauðsneið til heiðurs Kjarval. Heiðra Kjarval með heiðursbrauðsneið - Boðið upp á smurbrauð í anda uppáhaldsmatar Kjarvals, hangikjöts og flatköku Jóhannes Sveinsson Kjarval TÍU DAGAR Á COSTA DEL SOL ÚRVAL ÚTSÝN HLÍÐASMÁRI 19, 201 KÓPAVOGUR SÍMI 585-4000 INFO@UU.IS 20. - 30. APRÍL | 10 DAGAR HOTEL PALMASOL 4* VERÐ FRÁ69.900 KR TVÍBÝLI Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA OG 2 BÖRN VERÐ FRÁ 99.500 KR. Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA 20. - 30. APRÍL | 10 DAGAR ALUASUN COSTA PARK 4* VERÐ FRÁ99.500 KR FJÖLSKYLDUHERBERGI MEÐ HÁLFU FÆÐI Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA OG 2 BÖRN VERÐ FRÁ 111.500 KR. Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.