Morgunblaðið - 13.04.2022, Side 8
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 2022
Í yfirlýsingu sem Baráttulisti Sól-
veigar Önnu Jónsdóttur í Efl-
ingu sendi frá sér í gær segir að
hann hafi lýst því yfir í kosninga-
baráttunni að hann mundi „gera
nauðsynlegar breytingar á rekstri
skrifstofu Eflingar“
og að við það verði
staðið. Óhjá-
kvæmilegt sé að
segja öllum upp. Því
fer þó fjarri að Sól-
veig Anna hafi vilj-
að upplýsa fyrir
kosningar hvað
stæði til enda ekki
víst að hún hefði þá sigrað. Hún
neitaði beinlínis að tjá sig um
hvernig hún hygðist taka á málum
á skrifstofunni næði hún kjöri.
- - -
Uppsagnirnar nú koma hins veg-
ar ekki alveg á óvart því að
Sólveig Anna hafði ekki sparað
stóru orðin í umræðum um starfs-
menn félagsins. Hún taldi fríðindi
starfsmanna úr hófi mikil og að-
búnað þeirra á vinnustaðnum
sömuleiðis óhóflegan. Þá sagði hún
aðspurð eftir að hún var kjörin að
hún skildi að fólk sem hefði gagn-
rýnt hana hefði áhyggjur af að hún
kæmi aftur til starfa. Og hún bætti
því við að hún gæti ekki ímyndað
sér að þeir sem hefðu gagnrýnt
hana harkalega hefðu „sérstakan
áhuga á að starfa áfram á sama
vinnustað og ég“.
- - -
Nú er komið í ljós að Sólveig
Anna ákvað að bíða ekki eftir
að starfsmennirnir sjálfir gerðu
það upp við sig hvort þeir vildu
vinna með henni, hún sagði þeim
einfaldlega öllum upp.
- - -
Þær átyllur að uppsagnirnar séu
til að samræma launakjör eru
svo auðvitað fráleitar. Og spurn-
ingin hlýtur að vakna: Hvað ætlar
Efling að segja ef fyrirtækin í land-
inu ákveða að fara sömu leið? Mun
félagið ekki örugglega sýna því
fullan skilning?
Sólveig Anna
Jónsdóttir
Hreinsanir Eflingar
STAKSTEINAR
Farþegaskipið AIDAsol er væntanlegt til
Reykjavíkur í dag, miðvikudag. Áætlað er að
það leggist að Skarfabakka í Sundahöfn klukk-
an 11:30. AIDAsol er rúmlega 71 þúsund
brúttótonn að stærð og tekur 2.194 farþega.
Þetta er annað skemmtiferðaskipið sem
kemur á þessari vertíð farþegaskipa, en Bo-
realis kom hingað um miðjan mars. AIDAsol
heldur síðan til Akureyrar og er væntanlegt
þangað á laugardaginn klukkan 08:00.
Farþegaskipunum fer smám saman fjölgandi
frá og með maímánuði og vertíðin nær hámarki
í júlí og ágúst. Í dag eru bókuð 83 farþegaskip
til Reykjavíkur og skipakomur eru skráðar
200. Það mun síðan skýrast þegar líður á sum-
arið hvort öll skipin muni skila sér til landsins.
Með þessum skipum geta komið tæplega 215
þúsund farþegar. „Bókunarhlutfall í skipin í
sumar verður í kringum 80%. Þannig að sum-
arið í ár, gæti orðið svipað og árið 2019, ef all-
ar bókanir standast og ekkert óvænt kemur
upp á,“ segir Erna Kristjánsdóttir, markaðs-
stjóri Faxaflóahafna.
Hinn 30. apríl nk. er væntanlegt til Reykja-
víkur farþegaskipið Le Commandant Charcot.
Það mun vera fyrsta farþegaskipið sem siglir
til Reykjavíkur og er knúið náttúrulegu gasi
(LNG). Þá er það sérstaklega styrkt til sigl-
inga á norðurslóðum, til dæmis í hafís við
Grænland. sisi@mbl.is
Vel bókað í farþegaskip í sumar
aida.de
Væntanlegt Farþegaskipið AIDAsol kemur til
Reykjavíkur á morgun og leggst að Skarfabakka.
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Listdansskóli Íslands fagnar 70 ára
afmæli á þessu ári en skólinn var
stofnaður í Þjóðleikhúsinu haustið
1952. Tímamótanna verður minnst
með sérstakri hátíðarsýningu í
Borgarleikhúsinu kl. 20 í kvöld.
Á sýningunni verða ýmsir há-
punktar frá sýningum í gegnum tíð-
ina, verk sem skólinn setti upp á eig-
in sýningum auk verka sem
nemendur tóku þátt í með Íslenska
dansflokknum og Sinfóníuhljómsveit
Íslands. Fyrrverandi nemendur
mæta sem gestadansarar og í lok
sýningar verður horft aðeins til
framtíðar, eins og það er orðað í til-
kynningu frá skólanum.
Verkið „Ég bið að heilsa“ eftir
Karl O. Runólfsson, byggt á ljóði
Jónasar Hallgrímssonar, var flutt á
allra fyrstu nemendasýningu skól-
ans árið 1953 og verður hljóð-
upptaka af því flutt að hluta í upp-
hafi sýningarinnar í kvöld.
Ljósmynd/Listdansskóli Íslands
Listdans Rennsli var í gær fyrir 70 ára afmælissýningu Listdansskóla
Íslands, sem verður í Borgarleikhúsinu í kvöld. Öllu er þar tjaldað til.
Listdansskólinn
fagnar 70 árum
- Hátíðarsýning í Borgarleikhúsinu