Morgunblaðið - 13.04.2022, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 13.04.2022, Qupperneq 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 2022 Erum með þúsundir vörunúmera inn á vefverslun okkar brynja.is Laugavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | verslun@brynja.is Vandaðir þýskir póstkassar, hengi- lásar, hjólalásar og lyklabox. MIKIÐ ÚRVAL Opið virk a dag a frá 9-18 lau frá 11-1 7 Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Það komu yfir 70 manns á kynning- arfund í Hörpu, bæði veitingaaðilar og áhugasamir fjárfestar. Það er mik- ill áhugi á við- skiptatækifærum í Leifsstöð,“ segir Gunnhildur Erla Vilbergsdóttir, deildarstjóri verslana og veit- inga hjá Isavia. Morgunblaðið greindi á dög- unum frá því að nú stendur yfir útboð á rekstri tveggja veitingastaða á besta stað í norðurbyggingu Leifsstöðvar. Mögu- legt er að sá sem hreppir hnossið geti einnig tekið að sér rekstur þriðja staðarins sem verður á öðrum stað í flugstöðinni. Í kynningargögnum Isavia má sjá að fleiri útboð verða á verslunarrýmum í Leifsstöð á þessu ári. Raunar er það svo að um algjöra endurnýjun verður að ræða á næstu misserum. „Það eru allir samningar að klárast hjá okkur nema um veit- ingastaðinn Hjá Höllu, hann er ekki hluti af þessu,“ segir Gunnhildur. Á næstunni verður boðinn út rekst- ur gleraugnaverslunar í Leifsstöð, rekstur verslunar fyrir gjafavöru og útivist, gjaldeyrisþjónustu auk veit- ingastaða. Þá verða svokölluð pop up- rými auglýst en þau eru leigð til eins árs í senn og eru ekki útboðsskyld. Samningstíminn lengdur Gunnhildur segir að þrjú stór veit- ingatækifæri verði boðin út nú og á næstu tveimur árum. „Við skiptum þessum veitingarýmum upp í þrjú pakkatilboð. Það er gert í samráði við markaðinn. Þegar við fórum að undir- búa útboðið sem nú stendur yfir kom skýrt fram að þeim sem höfðu áhuga fannst mikilvægt að veitingastaðirnir væru settir saman í pakka. Þeir sáu fram á mikla hagræðingu af því að geta rekið staðina saman og við hlust- uðum á þessi sjónarmið.“ Hún segir að auk staðanna sem nú eru boðnir út, sem eru skandinav- ískur staður og café/bistro, verði boðnir saman út þrír staðir sem skil- greindir eru sem kaffi/brauð. Stað- irnir þrír verða á mismunandi stöðum í flugstöðinni en sá sem rekur þá geti notið hagræðis og rekið þá sem eina einingu. Að síðustu verða boðnir út tveir matarmarkaðir. „Þeir munu þá leysa af hólmi það sem í dag er Mat- hús í norðurbyggingunni,“ segir Gunnhildur. Hún segir að af þessum þremur stóru pökkum geti sami rekstraraðili aðeins fengið tvo. Þar með verði fjölbreytni í úrvali tryggð og samkeppni fái þrifist. Til stóð að samningar um fyrstu tvo veitingastaðina yrðu gerðir til fimm ára með möguleika á framleng- ingu til tveggja ára. Á dögunum var áhugasömum bjóðendum tilkynnt að þeim áformum hefði verið breytt og samið yrði til sex ára með möguleika á tveggja ára framlengingu. „Þarna vorum við að mæta áhyggjum mögu- legra bjóðenda. Þeim finnst fimm ár vera stuttur tími fyrir samning sem krefst mikillar fjárbindingar. Það er há fjárfesting á bak við svona veit- ingastaði. Það þarf að setja upp mikla starfsemi og ráða tugi starfsmanna í vinnu.“ Engum er hent út Mikla athygli vakti þegar Morgun- blaðið greindi frá því að veitingastöð- unum Joe and the Juice og Loksins bar yrði lokað í flugstöðinni um næstu áramót. Gunnhildur segir að Isavia sé skylt að bjóða veitinga- rýmin reglulega út. „Það er ekki ver- ið að henda neinum út og allar leik- reglur og lög voru þekkt strax í upphafi. Það að samningur sé að klár- ast þarf ekki endilega að þýða að við- komandi sé að fara héðan út, það hafa allir jöfn tækifæri til að taka þátt í út- boðunum.“ Bjóða út nær allt veitingarýmið - Mikil endurnýjun á verslunar- og veitingarýmum í Leifsstöð á næstu misserum - Isavia býður út útivistarverslun og gjaldeyrisþjónustu - Samningur um veitingastaði verði til sex ára í stað fimm Tölvuteikning/Isavia Breytingar Svona lítur hluti veitingarýmisins í Leifsstöð út á tölvumynd í kynningu Isavia. Miklar breytingar verða gerðar á næstu misserum. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Fjölmennt Isavia hélt opinn kynningarfund í Hörpu vegna útboðs á rekstri tveggja veitingastaða í Leifsstöð á dögunum. Um 70 manns sóttu fundinn. Gunnhildur Erla Vilbergsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.