Morgunblaðið - 13.04.2022, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 13.04.2022, Qupperneq 13
13 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 2022 Hafnarfjörður Siglt inn til hafnar eftir stutta veiðiferð góðra vina. Í bakgrunni blasir við miðbær Hafnarfjarðar í allri sinni dýrð. Sumarið er handan við hornið. Eggert Jóhannesson Það hefur verið tal- inn einn af grunn- þáttum heilbrigðrar samkeppni á litlum markaði eins og Ísland er að tryggja eðlilega samkeppni í sölu á vöru og þjónustu, enda nauð- synlegt þar sem Ísland er eitt dýrasta land í Evrópu og tryggja þarf heilbrigða samkeppni til að halda verðlagi í skefjum og tryggja gæði þjónust- unnar. Á annað ár hefur samruni Ferða- skrifstofu Íslands og Heimsferða, eft- ir að Arion banki tók yfir rekstur Heimsferða, verið til umfjöllunar hjá Samkeppnisstofnun og starfsmenn hennar fengið fjölda gagna um eðli ís- lensks ferðamarkaðar, stærð, fjölda farþega, árstíðadreifingu o.s.frv. Frá upphafi hefur legið fyrir að þessi samruni er algjörlega á skjön við eðlilega samkeppni á markaði. Það myndi þýða að einn aðili á markaði yrði með 65% markaðshlutdeild og myndi tryggja sér yfirburðastöðu. Hinn aðilinn er Vita, sem er auðvitað með ótakmarkaða rekstrartryggingu frá Icelandair þar sem óljóst er hver greiðir fyrir sætin á hvern áfangastað. Slíkt hefur aldrei verið leyft á þeim mörkuðum sem við berum okkur sam- an við, þar má nefna öll löndin í Skandinavíu, Holland, Belgíu, Þýska- land o.s.frv. Til að bæta gráu ofan á svart hefur Samkeppnisstofnun látið óátalinn fjölda brota á samkeppnislögum á annað ár, en samkeppnislög eru al- gjörlega skýr hvað varðar óeðlilega viðskiptahætti og brot á lögunum. Þar ber helst að nefna: · Samráð um framboð keppinauta · Samræmingu verðlags keppinauta · Sameiginleg innkaup keppinauta · Takmörkun og stýringu á fram- boði milli keppinauta Í öllum ofangreinum tilfellum hafa fjölmörg brot verið framin síðustu misseri í blóra við lög og þær reglur sem öðrum aðilum er gert að vinna eftir í greininni. Nú þegar er búið að samþætta rekstur fyr- irtækjanna þrátt fyrir að úrskurður Sam- keppnisstofnunar liggi ekki fyrir. Samkeppnisstofnun hefur verið bent á þessi brot ítrekað, en hún hefur látið þau óátalin, þrátt fyrir alvarlegan refsiramma laganna. Það má með sama hætti leggja drög að því að BYKO og Húsa- smiðjan mættu samein- ast, að Sjóvá og VÍS mættu samein- ast, og fjölda annarra dæma mætti tilgreina. Meðan í gildi eru lög um rekstur ferðaskrifstofa og á hvaða grunni þær skuli starfa hlýtur að þurfa að fara að lögum, og ekki hægt að þrýsta í gegn óeðlilegri sameiningu, þrátt fyrir mikla pressu frá kerfinu og fjár- málastofnunum á Samkeppnis- stofnun. Undirritaður stofnaði Heimsferðir fyrir 30 árum og rak við góðan orðstír í 28 ár þar til Arion banka hugnaðist að taka yfir reksturinn. Aldrei á því tímabili hefði komið til greina, né staðið til boða, að mynda fyrirtæki á íslenskum markaði sem stjórnaði 65% af markaðinum. Undirritaður skorar á Pál Gunnar Pálsson, forstjóra Samkeppniseft- irlitsins, að taka ákvörðun í anda lag- anna og tryggja sjálfstæði Sam- keppnisstofnunar, og láta ekki þrýsting frá öðrum aðilum ráða nið- urstöðu eins og því miður er þekkt í íslensku samfélagi. Eftir Andra Má Ingólfsson » Samkeppnisstofnun leyfir ítrekuð sam- keppnisbrot á ferða- markaði og ólöglegt samráð Ferðaskrifstofu Íslands og Heimsferða. Andri Már Ingólfsson Höfundur er forstjóri og eigandi Ferðaskrifstofunnar Aventura, og stofnandi og fyrrverandi eigandi Heimferða. Fákeppni á ferðamarkaði Ísland er land samsteypuríkisstjórna enda hafa kjósendur aldrei veitt stjórn- málaflokki umboð sem dugar til að mynda meirihlutastjórn eins flokks. Samsteypu- stjórnir tveggja eða fleiri flokka hafa því verið meginreglan. Ein forsenda þess að sam- starf tveggja eða fleiri stjórn- málaflokka sé árangursríkt er að traust og trúnaður ríki á milli for- ystumanna flokkanna en fleira þarf til. Trúnaður og traust þarf einnig að ríkja á milli þingmanna stjórnar- flokkanna. Ríkja þarf skilningur á ólíkum skoðunum og þar með um- burðarlyndi fyrir því að stjórnar- þingmenn haldi á lofti hugmynda- fræði sem þeir berjast fyrir. Það hefur verið misjafnlega erfitt og flókið að mynda meirihlutastjórn eftir þingkosningar. Þetta átti sér- staklega við eftir kosningar í október 2016 og 2017. Eftir fyrri kosning- arnar var mynduð skammlíf stjórn, sem sprakk með eftirminnilegum hætti, en eftir síðari kosningarnar tók við samsteypa Vinstri grænna, Fram- sóknarflokks og Sjálfstæðisflokks. Það var langt í frá auðvelt að ná sam- an þremur gjörólíkum stjórn- armálaflokkum í ríkisstjórn. Í málamiðlun felst áskorun Þegar ljóst var að flokkarnir ætl- uðu að taka höndum saman árið 2017 skrifaði ég meðal annars: „Málamiðlun er forsenda þess að hægt sé að mynda ríkisstjórn tveggja eða fleiri flokka. Allir þurfa að gefa eitthvað eftir – sætta sig við að geta ekki uppfyllt öll loforð sem gefin hafa verið. Þeir flokkar sem taka höndum saman í ríkisstjórn þurfa að setja sitt mark á stefnuna og standa um leið vörð um grunnstef hugsjóna sinna, þrátt fyrir málamiðlanir […] Sann- gjarnar málamiðlanir eru forsenda þess að ólíkir stjórnmálaflokkar og pólitískir andstæðingar taki höndum saman, en það er til lítils að hefja samstarf ef trúnaður og traust er ekki fyrir hendi. Þegar og ef fulltrúar andstæðra póla í íslenskum stjórn- málum ákveða að ger- ast samverkamenn eru þeir að gefa fyrirheit um að takast sameig- inlega á við það ófyr- irséða – leysa verkefni og vandamál sem alltaf koma upp og allar rík- isstjórnir þurfa að glíma við, með mis- jöfnum árangri. Flokkssverðin eru slíðr- uð og vopnahlé samið um hríð.“ Ólíkt hentistefnu- flokki, sem tekur því tilboði sem berst, er það áskorun fyrir stjórn- málaflokk sem byggir á skýrri hug- myndafræði að taka þátt í sam- steypustjórn. Í nauðsynlegri málamiðlun þarf að halda trúverð- ugleika gagnvart kjósendum og sann- færa þá um að þrátt fyrir málamiðlun þokist baráttumálin áfram, kannski ekki jafnt hratt og æskilegt er en í rétta átt. Forystumenn samsteypu- stjórna verða, öðrum fremur, að kunna þá list að miðla málum um leið og þeir sýna stefnufestu. Fyrir kosningarnar 2017 áttu fáir von á því að Vinstri grænir, Fram- sókn eða Sjálfstæðismenn tækju höndum saman. Þó var það í raun eini raunhæfi kosturinn til að mynda starfshæfa ríkisstjórn. Margir voru sannfærðir um að ríkisstjórnin myndi ekki tjalda til margra nátta. Þeir höfðu rangt fyrir sér enda vanmátu þeir hversu gott traust og góður trún- aður náðist á milli forystumanna flokkanna þriggja. En það reyndi á þanþol flestra stjórnarþingmanna með einum eða öðrum hætti, ekki síst þess er hér skrifar. Eðlileg togstreita Niðurstaða kosninganna í sept- ember síðastliðnum gaf stjórnar- flokkunum tilefni til að endurnýja samstarfið enda með aukinn meiri- hluta. Líkt og fjórum árum áður voru ekki í boði aðrir raunhæfir kostir. Ég, eins og allir aðrir þingmenn Sjálf- stæðisflokksins, hef staðið heill að baki ríkisstjórninni án þess að afsala mér rétti til að gagnrýna, berjast fyr- ir breytingum á stjórnarfrumvörpum eða vinna að framgangi hugsjóna. Endurnýjun samstarfsins er reist á þeirri trú að samstarfið verði gott og „trúnaður ríki á milli manna innan ríkisstjórnar og þingmenn stjórn- arliðsins séu bærilega sáttir við hvernig mál gangi fram,“ svo vitnað sé til orða Davíðs Oddssonar for- sætisráðherra í stefnuræðu í október 1997. Þá var samsteypustjórn Sjálf- stæðisflokks og Framsóknarflokks á sínu öðru kjörtímabili. Trúnaður var forsenda samstarfsins en eins og Davíð benti á, sé eðli máls samkvæmt „togstreita á milli flokkanna um ein- stök mál“ en „slíkar glímur eru jafn- an háðar undir formerkjum þess að ná niðurstöðu sem báðir flokkar geti unað við, en forðast er að setja sam- starfsflokki óbilgjörn eða óaðgengi- leg skilyrði“. Liðsmenn samsteypu- stjórna þurfa ítrekað að nýta hæfileikann til að koma til móts við ólík sjónarmið án þess að missa sjón- ar á hugsjónum. Aðeins þannig getur sambýli ólíkra hugsjóna orðið far- sælt. Samstarf andstæðra póla í stjórn- málum hefur í flestu verið árangurs- ríkt. Aðeins liðsmenn ríkisstjórn- arinnar taka ákvörðun um hvort svo verði áfram. Engin ríkisstjórn kemst í gegnum kjörtímabil án þess að vind- ar blási á móti af og til. Í mótvindi reynir á ráðherra og stjórnarliða. Þá reynir á pólitískan karakter stjórn- málamanna – hvort þeir hafa burði til að standa heilir að baki ákvörðunum sem þeir tóku þátt í að taka eða hlaupa undan ábyrgð og reyna að varpa henni á aðra. Slíkir stjórn- málamenn verða yfirleitt ekki annað en léttavigt – marka aldrei spor í sög- una – verða í besta falli tilefni fyrir neðanmálsgrein í stjórnmálasögunni. Þeirra verður getið í sömu neðan- málsgrein sem greinir frá þeim sem hæst hrópa með stóryrðum, svívirð- ingum og dómum um menn og mál- efni. Eftir Óla Björn Kárason »Engin ríkisstjórn kemst í gegnum kjörtímabil án þess að vindar blási á móti. Í mótvindi reynir á póli- tískan karakter stjórn- málamanna. Óli Björn Kárason Höfundur er formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins. Sambýli ólíkra hugsjóna

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.