Morgunblaðið - 13.04.2022, Side 18

Morgunblaðið - 13.04.2022, Side 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 2022 Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar .Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. .Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. .Smíðum gestahús – margar útfærslur. .Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. .Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Ýmislegt Prentun Merktirpennar Raðauglýsingar Auglýsing um skipulagsmál í Rangárþingi eystra Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru auglýstar eftirfarandi tillögur að deiliskipulagi í Rangárþingi eystra. Glæsistaðir – Deiliskipulagstillaga Um er að ræða 1,0 ha spildu þar sem verður heimilt að byggja íbúðarhús og bílskúr á einni hæð með risi. Hámarksbyggingarmagn er 300 m2 og hámarkshæð bygginga allt að 8,5m frá botnplötu. Sopi – Deiliskipulagsbreyting Um er að ræða breytingu á deiliskipulagi á Sopa í V-Landeyjum. Breytingin felst í því að bætt er við nýjum byggingarreit undir 100 m2 aðstöðuhús. Ofangreindar deiliskipulagstillögur er hægt að skoða á heimasíðu Rangárþings eystra, www.hvolsvollur.is og á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa frá 13. apríl nk. Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemd við tillögurnar, og er frestur til að skila inn athugasemdum til 25. maí nk. Athugasemdum skal skila skriflega á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa Rangárþings eystra, Austurvegi 4, 860 Hvolsvelli. F.h. Rangárþing Guðmundur Úlfar Gíslason Skipulags- og byggingarfulltrúi Félagsstarf eldri borgara Árskógar 4 Smíðastofa með leiðb. kl. 9-14. Bónusbíllinn, fer frá Árskógum 6-8 kl. 12.55. Pílukast kl. 13.Tónleikar með Agnes Löve á píanó og Ásdísi Þorsteinsdóttur á fiðlu kl. 14:15. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Heitt á könnunni. Allir velkomnir. Sími: 411-2600. Boðinn Harmonikkuspil og söngur kl. 13:30. Handavinnustofa opin frá kl. 12:30-15:00. Leshópur Boðans kl. 15:00. Sundlaugin er opin frá kl. 13:30-16:00. Dómkirkjan Miðvikudaginn 13. apríl kemur danskur stúlknakór og heldur tónleika í Dómkirkjunni klukkan 12.00. Frítt inn og allir velkomnir. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Qigong kl. 7:00-8:00. Kaffisopi og spjall kl. 8:30-11:00. Morgunleikfimi með Halldóru á RUV kl. 9:45- 10:00. Ljóðahópur Soffíu kl. 10:00-12:00. Línudans kl. 10:00-11:00. Hádegismatur kl. 11:30-12:30. Heimaleikfimi á RUV kl. 13:00-13:10. Síðdegiskaffi kl. 14:30-15:30. Lokað á morgun fimmtud., föstud. og mánud. opnum aftur þriðjudaginn 19. apríl. Garðabær 9.00 Pool í Jónshúsi 10.00 Gönguhópur frá Jónshúsi 10.30 Skák og Scrabble í Jónshúsi 11.00 Stóla-jóga í Kirkjuhvoli 12.30- 15.40 Bridds í Jónshúsi 13.00 Leirnámskeið í Smiðjunni 13.00 Gönguhópur frá Smiðju 15.00/15.40/16.20 Vatnsleikfimi í Sjál. 16.30 Zumba Gold í Kirkjuhvoli Gerðuberg Opin vinnustofa í Búkollulaut frá kl. 8:30, heitt á könnunni. Memm fjölskyldustund kl. 10:00-12:00 Döff, Félag heyrnar- lausra frá kl. 12:30. Félagsvist frá kl. 13:00. Allir Velkomnir Gjábakki Kl. 8.30 til 11.30 - opin handavinnustofa og verkstæði. Kl.10.00 til 11.15 - opinn Bocciatími. Kl. 13.00 til 15.30 - post- ulínsmálun. Kl. 13.00 til 15.00 - Félagsvist. Guðríðarkirkja. Félagsstarf eldriborgara miðvikudaginn 13.apríl kl: 12:00 Helgistund í kirkjunni fyrirbænir og söngur. Matur í saf- naðarheimilinu kr. 1000.- Farið verður yfir hvert við förum í vor- ferðalag. KL: 14:00 sameinumst við í bíla og heimsækjum höfuðstöðvar Landhelgisgæslunar, Reykjavíkurflugvelli. Gullsmári 13 Myndlist kl.09:00. Postulínsmálun kl.13:00. Kvenna- bridge kl.13:00. Hraunbæ 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi milli 9:00-11:00. Ganga með Evu kl 10:00-11:00 allir velkomnir. Útskurður með leiðbeinanda kl 9:00-12:00 500kr skiptið. Hraunsel Billjard kl. 8 -16. Stóla yoga kl. 10:00. Línudans kl. 11. Bingó kl. 13. Handverk kl. 13. Gaflarakórinn kl. 16 Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá 8:30-10:30. Handavinna – opin vinnustofa 13:00-16:00. Bridge kl. 13:00. Styttri ganga kl. 13:30. Hádegismatur kl. 11:30 – 12:30, panta þarf fyrir hádegi deginum áður. Korpúlfar Borgum Gönguhópar frá Borgum og inni í Egilshöll.Tveir styrkleikaflokkar svo að allir finna göngu við sitt hæfi kl. 10:00. Keila í Egilshöll kl.10:00. Leiklistahópur Korpúlfa bjóða upp á leiklestur á gamanleikritinu: Maður í mislitum sokkum eftir Arnmund S. Backman, í leikstjórn Sigurðar Skúlasonsar, kl. 13:00. Allir hjartanlega velkomnir og enginn aðgangseyrir. Qigong kl. 16:30. Gleðilega páska. Samfélagshúsið Vitatorgi Heitt á könnunni - Postulínsmálun í handverksstofu kl. 09:00-12:00. Bókband í smiðju kl.09:00-12:30. Myndlist í handverksstofu kl.13:00-16:00. Bókband í smiðju kl.13:00- 16:30. Hinn sívinsæli dansleikur með Vitatorgsbandinu er svo á sínum stað frá kl. 14:00-15:00 og síðdegiskaffið. Allar nánari upplýsingar í síma 411 9450. Allir hjartanlega velkomnir til okkar :) Seltjarnarnes Kaffikrókur frá kl. 9.00. Botsía Skólabraut kl. 10.00. Kyrrðarstund í kirkjunni kl. 12.00. Starfsfólk félagsstarfsins óskar ykkur gleðilegra páska. Almenn dagskrá hefst aftur þriðjudaginn 19. apríl. Seltjarnarnes Kaffikrókur á Skólabraut frá kl. 9.00. Botsía í salnum á Skólabraut kl. 10.00. Kyrrðarstund í kirkjunni kl. 12.00. Námskeið eru í samráði við leiðbeinendur. Starfsfólk félagsstarfsins óskar ykkur öllum geðilegra páska. Fastir dagsrkárliðir byrja aftur miðvikudaginn 20. apríl. intellecta.is alltaf - allstaðar mbl.is Nú "&&$# þú það sem þú !ei%a# að ' FINNA.is ✝ Kristjana Sig- ríður Gunn- arsdóttir fæddist á Ísafirði 15. júní 1939. Hún lést á Víðihlíð í Grinda- vík 31. mars 2022. Foreldrar henn- ar voru Gunnar Sigurðsson skipa- smiður frá Bæjum á Snæfjallaströnd, f. 1907, d. 1996, og Steinunn Sigurborg Jak- obsdóttir frá Sæbóli í Aðalvík, f. 1905, d. 1986. Systkini Kristjönu Sigríðar voru Sigríður Erla, f. 1927, d. 1928, Gunnar Snorri, f. 1929, d. 1988, eftirlifandi maki Erla Ólafsdóttir, Sigþrúður, f. 1930, gift Jóni Rafni Oddssyni, bæði látin, María Rebekka, f. 1933, d. 2012. Sigurður, f. 1937, kvæntur Erlu Lúðvíksdóttur, og Steinunn Sigurborg, f. 1943, d. 2002, eftirlifandi maki Svein- björn Guðmundsson. Kristjana giftist Einari Þor- steinssyni 6. des. 1958, látinn 25. des. 2018, og eignuðust þau fjögur börn, þau eru: 1) Þor- steinn, f. 9.10. 1958. Giftist 11.9. 1993 Ingibjörgu Reynisdóttur, f. 8.5. 1963, börn þeirra eru: Einar Löve, f. 1.3. 1992, og Guðrún María, f. 1.11. 1994, þau slitu samvistum. Elvar Orri, f. 8.10. 2010, sambýliskona Þorsteins er Hallfríður Guðfinnsdóttir, f. 3.8. 1971. 2) Baldvin Einar, f. 20.12. 1960. Giftist Erlu Sjöfn Jóns- dóttur, f. 9.10. 1962, börn þeirra eru Kolbrún, f. 17.11. 1983, Rafnar Snær, f. 5.5. 1991, og Pálmar Orri, f. 29.7. 1993. Þau slitu samvistum. 3) Guðrún Agnes, f. 14.5. 1963, börn henn- ar eru: Einar Ingi, f. 4.10. 1983, faðir Sigmar Inga- son, f. 13.5. 1958, og Pétur Axel, f. 15.5. 1986, faðir Birgir Pétursson, f. 15.5. 1962. 4) Uni Þór, f. 11.3. 1982, dóttir hans er Andrea Mist, f. 3.6. 2015, móðir Íris Björk Krist- insdóttir, f. 16.11. 1989. Eru langömmubörnin orðin fjögur. Kristjana ólst upp á Ísafirði og áttu þau hjónin heima þar þangað til fjölskyldan flutti suð- ur 1976 og settist að í Garðabæ en nokkrum árum síðar fluttu þau til Grindavíkur þar sem hún bjó til dauðadags. Á sínum æskuárum var Sig- ríður í skátunum, var lengi í handbolta og varð Vestfjarða- meistari með liði sínu Vestra. Stundaði skíði og útiveru. Hún vann alltaf úti með heim- ilinu og svo var hún einstaklega góð sauma- og hannyrðakona og var öll kvöld og helgar að sauma og prjóna fyrir fólk peysuföt, þjóðbúninga, peysur og allt mögulegt. Sigríður var mikil félagsvera og naut hún sín einstaklega í félagsskap ann- arra, var í kvenfélaginu og söng með Sunnukórnum. Vann hún ýmis störf fyrir vestan, meðal annars á símstöðinni, Reikni- stofu Vestfjarða og í Lands- bankanum. Eftir að húm flutti suður vann hún hjá Bún- aðarbankanum og á skrifstofu hjá Ísal. Útförin fer fram frá Grinda- víkurkirkju í dag, 13. apríl 2022, klukkan 13. Elsku amma mín. Það er sárt að missa þig en það er huggun að vita að þú sért á betri stað. Það var sárt að sitja hjá þér þegar þú fórst yfir í sumarland- ið en það er huggun í því að hafa verið til staðar fyrir þig. Það er sárt að vera nú ömmu- og afa- laus en það er huggun að vita að nú hef ég fullt hús vernd- arengla. Það er sárt að hugsa til þess að það er ekki hægt að koma til þín í heimsókn en það er huggun að vita af þér og afa saman á ný, sem og að þú hefur sameinast systrum þínum. Þegar ég hugsa til þín, amma mín, þá hugsa ég um ylvolgar pönnukökur um helgar, nýbak- aða klatta, og brauð með marm- elaði eftir að hafa verið úti að leika. Ég hugsa um kexpakka og brauðmeti í ofninum, 2L sprite- flösku inni í búri, alvöru heim- ilismat á slaginu sex, og súkku- laðiegg í skál á sófaborðinu. Ég hugsa um ömmu sem aldr- ei sagði nei, sat klukkustundum saman og sinnti handavinnu, útbjó alls kyns meistaraverk um ævina, saumaði minn fyrsta upphlut, prjónaði peysur og trefla og allt sem maður bað um, og átti heilan lager af garni og efni. Ég hugsa um ömmu sem hafði alla tíð dreymt um að fara til Skotlands og ég hugsa hlý- lega til þeirrar minningar þegar við pabbi og Einar buðum þér í helgarferð til Edinborgar að láta drauminn rætast. Ég er þakklát fyrir þann tíma sem við fengum saman og mun varðveita þær minningar. Mér þykir ofboðslega vænt um þig amma mín og þín verður sárt saknað. Mig langar líka innilega að þakka starfsfólkinu í Miðgarði og Víðihlíð fyrir góða umönnun og þann kærleik sem þið sýnduð ömmu minni. Ég bið kærlega að heilsa hon- um afa Þín ömmustelpa, Guðrún María. Amma Sissa. Ég mun að eilífu vera þakk- látur, elsku amma Sissa, fyrir alla þína skilyrðislausu ást og stuðning, hvort sem það var að styðja mig og stappa í mig stál- inu í náminu, tómstundum eða ástríðum. Þú trúðir alltaf á mig og hjálpaðir mér að skilja gildi þess að taka frá tíma til að njóta lífsins og lenda í ævintýrum líka. Amma hafði alltaf bestu ráðin, ég hef lært svo mikið um raunverulegan tilgang lífsins af henni og ég mun að eilífu geyma í hjarta mínu allar fallegu stund- irnar sem ég átti með henni. Daníel Ohayon. Amma Sissa var góðlátasta manneskja sem ég hef kynnst. Hún sá alltaf það besta í mér og hvatti mig til að vilja verða betri. Stuðningurinn og kær- leikurinn sem hún sýndi mér tók aldrei enda og ég mun ævinlega vera henni þakklát fyrir það. Ég mun sakna hennar meira en orð fá lýst og mun að eilífu geyma minningu hennar og ástina til hennar í hjarta mínu. Keren Lilja Ohayon. Kristjana Sigríður Gunnarsdóttir Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstandendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formál- anum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.