Morgunblaðið - 13.04.2022, Page 20
20 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 2022
Sindrastóll
Hönnuður: Ásgeir Einarsson (1927-2001)
Sindrastóllinn er bólstraður
með íslenskri lambagæru.
Verð frá: 229.000 kr.
Sólóhúsgögn ehf. Gylfaf löt 16-18 112 Reykjavík 553-5200 solohusgogn. is
60 ÁRA Kristinn fæddist á Akranesi, ólst upp
á Selfossi og býr nú í Reykjavík. Hann er stúd-
ent frá MH og með BA-próf í ljósmyndun frá
Harrow College of Higher Education í London.
Kristinn var ljósmyndari á Morgunblaðinu
1992-2015. en vinnur nú sem ljósmyndari á
markaðs- og samskiptasviði Háskóla Íslands.
„Það er heilmikil fjölbreytni hér og því um
margt líkt að vinna í HÍ og að vera á Mogg-
anum. Við framleiðum kynningarefni, ég mynda
stærri viðburði innan skólans og svo er það miðlun á vísindastarfi.“
Áhugamál Kristins er fyrst og fremst ljósmyndun. „Myndir af fólki hafa
verið mitt áhugasvið innan ljósmyndunarinnar, en ég lagði áherslu á port-
rettmyndir í lokaverkefni mínu.“ Verkefnið var portrett af meðlimum bresku
lávarðadeildarinnar og þrjár mynda Kristins úr lokaverkefninu eru í eigu
National Portrait Gallery í London.
Kristinn var með sýningu í Þjóðminjasafninu 2005 og af því tilefni var gef-
in út bókin Skuggaföll um verk Kristins. Hann var einnig með sýningu í
Þýskalandi í tengslum við Bókamessuna í Frankfurt. Sú sýning hefur farið
víða um heim. Hann gaf út bókina Sköpunarsögur með Pétri Blöndal en í
bókinni eru viðtöl við 12 rithöfunda með nokkrum portrettmyndum af hverj-
um og einum höfundi.
FJÖLSKYLDA Eiginkona Kristins er Anna Hjartardóttir, f. 1960, hjúkr-
unarfræðingur. Börn þeirra eru Ívar, f. 1990, Íris, f 1993, og Harpa, f. 1997.
Foreldrar Kristins voru Svava Steingrímsdóttir, f. 1921, d. 2014, húsmóðir,
og Ingvar Björnsson, f. 1912, d. 1963, kennari á Akranesi. Stjúpfaðir Kristins
var Páll Hallgrímsson, f. 1912, d. 2005, sýslumaður í Árnessýslu.
Kristinn Ingvarsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Af einhverjum ástæðum ertu stað-
ráðin/n í að fá þínu framgengt í dag. Pass-
aðu samt að vaða ekki yfir fólk. Haltu vinnu
og einkalífi aðskildu.
20. apríl - 20. maí +
Naut Láttu þér ekki bregða þótt sumir hafi
aðrar skoðanir á málum en þú, jafnvel þeir
sem hafa alltaf verið í já-liði þínu. Vinir þínir
kunna vel að meta þig.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Það er mikil hætta á hvers konar
misskilningi þessa dagana. Gættu þess að
ganga hægt um gleðinnar dyr, þú átt það til
að fara of geyst af stað.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Þú ert hrókur alls fagnaðar og allir
vilja vera nálægt þér. Reyndu að vera hjálp-
leg/ur og veita öðrum stuðning. Grasið er
ekkert grænna hinum megin við girðinguna.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Að reyna að breyta hegðun annarra er
næstum því vonlaust, en þú vilt endilega
reyna. Farðu vel með peningana þína.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Það er ágætt að staldra við, líta yfir
sviðið og reyna að gera sér grein fyrir því,
hvort málin þokast áfram eða ekki. Leyfðu
þér að dreyma - það kostar ekkert.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Það er ekkert vit í því að forðast það að
taka ákvörðun. Þú ert snillingur í að fresta
hlutum.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Þú ert ekki það sem gerist en
viðbrögðin eru þín. Kannski býstu við of
miklu í nýlegu ástarsambandi, en mundu að
Róm var ekki byggð á einum degi.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Notaðu daginn til rannsókna, þú
býrð yfir einbeitingu og krafti núna sem ger-
ir þér kleift að komast til botns í því sem þú
kærir þig um. Ekki skuldbinda þig til neins.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Þótt þú megir ekki vanrækja
skyldur þínar í vinnunni ættirðu að reyna að
verja meiri tíma með fjölskyldunni. Gerðu
þér dagamun í kvöld.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Farðu eftir hugboði þínu í fjár-
málum en forðastu að taka óþarfa áhættu.
Námskeið sem þig langar á býðst allt í einu,
þú ættir að stökkva á það.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Þú sveiflast milli sjálfsöryggis og van-
metakenndar. Gættu þess að taka ekki fram
í fyrir þeim sem eru að reyna að segja þér
hvernig þeir vilja hafa hlutina.
þeirra fjölmörgu kennara sem
kenna á hverri önn. „Það er dásam-
legt að vinna þarna, ég er í sam-
skiptum við besta kvikmyndagerð-
arfólkið á landinu og er að fá það til
að kenna. Maður er að hjálpa hæfi-
leikaríku fólki að finna sig í faginu
og gera flottar myndir. Svo er þetta
skóli sem ég var í sjálfur og mér
þykir vænt um hann. Nú á 30 ára
afmæli skólans erum við svo í full-
sínar fyrri myndir og leist þeim vel
á.“
Hrafnkell hóf störf sem stunda-
kennari við Kvikmyndaskóla Ís-
lands árið 2010. Árið 2011 tók hann
við sem deildarstjóri handrits- og
leikstjórnardeildar Kvikmyndaskól-
ans til ársins 2016 þegar hann tók
við starfi námsstjóra við skólann,
sem felur í sér skipulag alls náms í
skólanum ásamt ráðningu allra
H
rafnkell Stefánsson er
fæddur 13. apríl 1982
í Reykjavík. „Ég átti
heima í Danmörku
frá 2 ára aldri til 8
ára í hverfi stutt frá Kaupmanna-
höfn sem heitir Kagsåkolligiet, en
þar bjuggu margir Íslendingar. Við
fjölskyldan fluttum svo til Hafnar-
fjarðar.“
Hrafnkell gekk í Engidalsskóla
og svo Víðistaðaskóla í unglinga-
deild. „Það var margt afreks- og
listafólk í þeim bekk, t.d. Ágústa
Eva leikkona, Egill Rafnsson
trommari og Logi Geirsson hand-
boltamaður.“ Hrafnkell lauk stúd-
entsprófi af listnámsbraut úr Borg-
arholtsskóla, diplóma frá Kvik-
myndaskóla Íslands árið 2000 og
lauk MA-gráðu frá The London
Film School 2007. „Þegar ég var
barn þá bjó ég til sjónvarpsþætti
með G.I. Joe-köllunum mínum, á
mánudögum var einn þáttur og á
þriðjudögum var einhver annar
þáttur. Ég var alltaf að búa til ein-
verjar sögur. Ég hef því alltaf vitað
að ég ætlaði að búa til bíó eða sjón-
varp. Svo fór ég að skrifa og búa til
myndir og sá að skriftirnar áttu
best við mig.“
Hrafnkell hóf að starfa sem
handritshöfundur beint eftir nám
við ýmis handritsverkefni, ásamt
handritsráðgjöf. Árið 2011 kom út
kvikmyndin Kurteist fólk, síðar á
sama ári kom út Borgríki og svo ár-
ið 2014 kom út Borgríki 2 – Blóð
hraustra manna, en myndirnar
skrifaði Hrafnkell í félagi við Ólaf
Jóhannesson (Olaf de Fleur), sem
leikstýrði öllum þremur mynd-
unum.
„Eitt verkefni sem er á döfinni
hjá mér er hryllingsmynd sem er í
fjármögnunarferli með einum af
mínum nánustu samstarfsmönnum,
Ólafi Jóhannessyni. Einnig er gam-
anmynd í þróun hjá Erni Marinó
Arnarsyni og Þorkeli Harðarsyni,“
en þeir gerðu Veiðiferðamyndirnar.
„Ég frétti að þeir ætluðu að gera
tvær myndir á ári og ég hafði sam-
band við þá um að ég ætti gaman-
handrit sem væri alveg í takt við
það sem þeir voru að hugsa með
um undirbúningi fyrir tilvonandi út-
tekt vegna umsóknar skólans um að
verða háskóli.“
Hrafnkell var tilnefndur til Edd-
unnar fyrir besta handrit fyrir
myndina Kurteist fólk. Myndir hans
hafa svo verið tilnefndar til fjölda
Edduverðlauna. Hrafnkell var í
stjórn Félags kvikmyndagerðar-
manna 2008-2010.
Áhugamál Hrafnkels eru að horfa
á kvikmyndir og sjónvarpsþætti,
eða eyða tíma með fjölskyldunni.
„Þá erum við reyndar oft að horfa á
kvikmyndir en svo erum við líka
dugleg að spila borðspil. Svo hitti
ég æskuvini aðra hverja viku til að
spila flókin borðspil, þar sem það
tekur oft jafn langan tíma að lesa
reglurnar og að spila sjálf spilið.“
Hrafnkell er í Kaupmannahöfn í
tilefni afmælisins. „Konan mín bauð
mér í afmælisferð með krökkunum.
Þar hef ég m.a. verið að kíkja á
æskuslóðirnar.“
Fjölskylda
Eiginkona Hrafnkels er Helga
Ásdís Jónasdóttir, f. 12.4. 1988, við-
skiptafræðingur og starfar við end-
urskoðun. Þau eru búsett í Húsa-
hverfi í Grafarvogi. Foreldrar
Hrafnkell Stefánsson, handritshöfundur og námsstj. við Kvikmyndaskóla Íslands – 40 ára
Fjölskyldan Hrafnkell og Helga ásamt börnunum við gosstöðvarnar hjá Fagradalsfjalli í fyrra.
Ætlaði alltaf að búa til bíó
Bíó búið til Hrafnkell við tökur á kvikmyndinni Borgríki 2 ásamt Guðna
Páli Sæmundssyni sem var aðstoðarleikstjóri myndarinnar.
Til hamingju með daginn
Stykkishólmur Olivia Eldey Vitos fæddist 13. apríl 2021 og
á því eins árs afmæli í dag. Foreldrar hennar eru Jana Vitos
og Maros Vitos. „Við óskum þess að lífið færi þér gleði og
hamingju svo þú megir dreifa henni til annarra, hér eftir
sem hingað til.“ Mamma og pabbi.
Nýr borgari