Morgunblaðið - 13.04.2022, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 13.04.2022, Qupperneq 23
HM 2023 Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Tvö vafasöm atriði féllu íslenska landsliðinu í hag þegar það vann gríð- arlega dýrmætan sigur á Tékkum, 1:0, í undankeppni heimsmeistara- móts kvenna í Teplice í gær. Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir skor- aði sigurmarkið á 35. mínútu, eftir að markvörður Tékka varði skalla Gló- dísar Perlu Viggósdóttur upp í þver- slána. Boltinn fór af hönd Gunnhildar í netið en það sáu aðeins sjónvarps- vélarnar og enginn mótmælti mark- inu á vellinum. Myndbandsdómgæsla er ekki til staðar í undankeppninni og það var Íslandi til happs í þetta sinn. Hitt atvikið átti sér stað í uppbót- artímanum þar sem mark var dæmt af Tékkum og mjög erfitt var að sjá fyrir hvað það var. En skoski dóm- arinn var handviss í sinni sök og dæmdi aukaspyrnu sem Tékkar mót- mæltu harðlega og héldu því áfram eftir að leik var lokið. Hreinn úrslitaleikur í haust og umspilssæti í höfn En stigin þrjú fleyta íslenska lið- inu á topp riðilsins, einu stigi fyrir ofan ríkjandi Evrópumeistara frá Hollandi, og þar með er alveg ljóst að liðin mætast í hreinum úrslitaleik í lokaumferðinni í Hollandi 6. sept- ember. Í millitíðinni eiga bæði að mæta Hvíta-Rússlandi sem varla setur strik í reikninginn. Sigurinn í Teplice gulltryggir Ís- landi líka sæti í umspilinu, hið minnsta, því með honum er endan- lega ljóst að Ísland verður í öðru tveggja efstu sætanna. Sigurliðið fer beint á HM og liðið í öðru sæti fer í umspil. Tékkland átti möguleika á öðru sætinu með sigri í gær og von- brigði leikmanna liðsins eftir að markið var dæmt af því voru skilj- anleg. En það er gríðarlega sterkt að hafa náð sex stigum gegn tékkneska liðinu sem gerði jafntefli í báðum leikjum sínum við Hollendinga, og var aðeins örfáum mínútum frá sigri í öðrum þeirra. Eftir tapið gegn Hollandi á Laug- ardalsvellinum í haust hefur allt fall- ið með íslenska liðinu því það hefur unnið alla fimm leikina eftir það og fengið hagstæð úrslit í innbyrðis leikjum keppinautanna. Það má eflaust deila lengi um hvort þessi sigur í Teplice hafi verið sanngjarn. En fyrir utan þetta mark sem dæmt var af Tékkum í lokin náðu þeir aldrei að ógna marki Ís- lands verulega þrátt fyrir mjög þunga pressu á köflum. Tvö skot ut- an vítateigs, yfir mark Íslands, var það eina sem Tékkar komu á blað í sóknarleik sínum. Haldið hreinu átta sinnum Þetta er í takt við þann öfluga varnarleik sem Þorsteinn Hall- dórsson hefur náð að byggja upp en undir hans stjórn hefur íslenska landsliðið nú haldið marki sínu hreinu í átta landsleikjum af fjórtán. Og þetta var tíundi sigurinn í þess- um fjórtán leikjum. Íslenska liðið óð svo sem ekki í færum í Teplice en átti þó sjö mark- skot, þrjú þeirra á markið, og Bar- bora Votiková varði glæsilega frá Sveindísi Jane Jónsdóttur í byrjun uppbótartímans, þegar engu munaði að hún kæmi Íslandi í 2:0 eftir að hafa sloppið ein inn fyrir tékknesku vörnina. Nú verða HM-draumarnir lagðir til hliðar um sinn því næsta verkefni íslenska liðsins er Evrópumótið á Englandi í sumar þar sem Belgía, Ítalía og Frakkland eru mótherj- arnir í riðlakeppninni. Heilladísirnar hliðhollar - Ísland upp fyrir Holland og í efsta sæti undanriðils HM eftir vafasamt sigur- mark Gunnhildar Yrsu í Teplice - Mark dæmt af Tékkum í uppbótartímanum Ljósmynd/Zenyfotbal Teplice Sigurmarki Íslands fagnað eftir að Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir kom boltanum yfir marklínuna í kjölfar hornspyrnu eftir 35 mínútna leik. ÍÞRÓTTIR 23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 2022 _ Kolbeinn Sigþórsson íhugar að leggja knattspyrnuskóna á hilluna en umboðsmaður hans, Fredrik Risp, skýrði frá því í samtali við sænska net- miðilinn Fotbollskanalen í gær. Kol- beinn hefur verið án félags síðan í des- ember þegar samningur hans við Gautaborg rann út. Risp segir að mikill áhugi sé á Kolbeini, bæði innan og ut- an Svíþjóðar, en hann skorti hungur og hvatningu til að halda áfram. „Hann var tilbúinn til að gera allt fyrir ís- lenska landsliðið en sú hvatning er ekki lengur fyrir hendi,“ sagði um- boðsmaðurinn. _ Argentínskur knattspyrnumaður, Thiago Ceijas, hefur samið við Grind- víkinga um að leika með þeim í 1. deildinni í sumar. Ceijas er 21 árs gam- all miðjumaður og hefur verið á Ítalíu undanfarin ár, síðast með C- deildarfélaginu Carpi. _ Melina Ayers, knattspyrnukona frá Ástralíu, er komin til liðs við Breiðablik í láni frá meistaraliðinu Melbourne Victory. Hún er 22 ára framherji og var í lykilhlutverki hjá Victory í vetur þegar liðið tryggði sér ástralska meistaratit- ilinn annað árið í röð á nýliðnu tímabili þar í landi. _ Arnar Daði Arnarsson hefur fram- lengt samning sinn við Gróttu sem þjálfari karlaliðs félagins í handknatt- leik til þriggja ára. Markahæsti leik- maður Gróttu í vetur, Birgir Steinn Jónsson, hefur samið við félagið til tveggja ára. _ Nýliðar Fram í Bestu deild karla í fótbolta hafa fengið ástralskan varnar- mann til liðs við sig. Hann heitir Hos- ine Bility, er tvítugur og kemur frá Midtjylland í Danmörku þar sem hann lék með unglingaliðinu og hefur verið í hópi aðalliðsins án þess að spila. _ Piltalandslið Íslands í íshokkí, 18 ára og yngri, vann Ísrael 6:3 í C-deild heimsmeistaramótsins í Istanbúl í gær og er með sex stig eftir tvo leiki. Strákarnir unnu Belga í fyrsta leik. Alex Sveinsson skoraði tvö markanna og þeir Arnar Karvelsson, Níels Haf- steinsson, Gunnlaugur Þorsteinsson og Uni Blöndal eitt mark hver. _ Handknattleiksmaðurinn Ásgeir Snær Vignisson hefur samið til tveggja ára við Helsingborg, sem verður nýliði í sænsku úr- valsdeildinni á næsta tímabili. Ásgeir er 23 ára örv- hent skytta og hefur leikið með ÍBV undanfarin tvö ár en ólst upp í Val. Hann hefur skorað 45 mörk í 20 leikjum með ÍBV í vet- ur. Eitt ogannað 0:1 Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir 35. Ísland: (4-3-3) Mark: Sandra Sig- urðardóttir. Vörn: Sif Atladóttir (Guðný Árnadóttir 80), Glódís Perla Viggósdóttir, Guðrún Arnardóttir, Hallbera Guðný Gísladóttir. Miðja: Dagný Brynjarsdóttir, Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir , Karólína Lea Vil- hjálmsdóttir (Elín Metta Jensen 80). Sókn: Sveindís Jane Jónsdóttir, Berglind Björg Þorvaldsdóttir (Sara Björk Gunnarsdóttir 57), Agla María Albertsdóttir (Svava Rós Guðmunds- dóttir 69). TÉKKLAND – ÍSLAND 0:1 Dómari: Lorraine Watson, Skotlandi Áhorfendur: 3.242. _ Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir skor- aði sitt 14. mark fyrir A-landsliðið. Hún jafnaði þar með Olgu Færseth en þær eru nú í 11.-12. sæti yfir markahæstu leikmenn landsliðsins frá upphafi. _ Sara Björk Gunnarsdóttir hélt áfram að bæta leikjametið og lék sinn 138. landsleik. Hallbera Guðný Gísladóttir er þriðja leikjahæst og lék sinn 127. landsleik. KÖRFUKNATTLEIKUR Undanúrslit kvenna, fjórði leikur: Njarðvík: Njarðvík – Fjölnir (2:1) ...... 20.15 Umspil karla, undanúrslit, oddaleikur: Höfn: Sindri – Álftanes (2:2)................ 19.15 KNATTSPYRNA Mjólkurbikar karla, 1. umferð: Njarðvík: Njarðvík – Fjölnir.................... 18 Ólafsvík: Reynir He. – Skallagrímur....... 20 Í KVÖLD! Víkingar verða Íslandsmeistarar í knattspyrnu annað árið í röð ef hin árlega spá forráðamanna, fyrirliða og þjálfara liðanna í Bestu deild karla gengur eftir. Á kynningarfundi deildarinnar í gær var spáin birt og þar fengu Víkingar 367 stig í efsta sæti, Breiðablik 364 stig í öðru sæti og Valur 334 stig í þriðja sæti. KR fékk 316 stig í fjórða sæti, FH 299 stig í fimmta sæti og Stjarnan 223 stig í sjötta sætinu en þessi lið myndu þá komast í úrslitakeppnina á lokaspretti Íslandsmótsins. KA fékk 207 stig, Leiknir R. 160 stig, ÍA og ÍBV bæði 120 stig en Keflavík með 82 stig og Fram með 68 stig var spáð neðstu sætunum og þar með falli úr deildinni. Ljósmynd/Óttar Geirsson Sigursælir Víkingar unnu tvöfalt í fyrra og þykja líklegir til afreka í ár. Víkingum spáð sigri Evrópumeistarar Chelsea eru úr leik í Meistaradeild Evrópu í fótbolta eftir að hafa velgt Real Madrid hressilega undir uggum í seinni leik liðanna í átta liða úrslitunum í spænsku höfuðborginni í gærkvöld. Real Madrid vann fyrri leikinn í London, 3:1, en Chelsea gerði sér lít- ið fyrir og komst yfir í einvíginu með því að ná 3:0 forystu. Mason Mount skoraði á 15. mínútu, Antonio Rüdi- ger á 51. og Timo Werner á 75. mín- útu. Rodrygo tryggði Real Madrid framlengingu með því að minnka muninn í 3:1 á 80. mínútu. Í fram- lengingunni skoraði síðan Karim Benzema enn eitt mark sitt fyrir Real og kom liði sínu áfram, 5:4 sam- anlagt, þrátt fyrir ósigur á heima- velli, 3:2. Í München urðu heldur betur óvænt úrslit þegar „Guli kafbát- urinn“ frá Spáni, Villarreal, náði jafntefli við stórveldið Bayern München, 1:1, og vann þar með ein- vígið 2:1. Robert Lewandowski kom Bayern yfir á 52. mínútu, 1:0, og þar með var staðan jöfn samanlagt. Þegar allt stefndi í framlengingu skoraði Samuel Chukwueze jöfnunarmark Villarreal, sem kom spænska liðinu áfram. Real slapp en Bayern slegið út AFP/Oscar del Pozo Madríd Rodrygo og Karim Ben- zema voru bjargvættir Real Madrid.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.