Morgunblaðið - 30.04.2022, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. APRÍL 2022
Kringlan ... alltaf næg bílastæði
Borðabókanir á
www.finnssonbistro.is eða
info@finnssonbistro.is
Frábær kostur í hádeginu
Djúsí
andasamloka
Þín upplifun skiptir okkur máli
„Mín skilaboð til fyrirtækja eru að
þau taki þátt í baráttunni í þeim
miklu efnahagsaðstæðum sem nú
eru uppi og til
neytenda að þeir
verði vel vakandi
yfir verðlagi,“
segir Lilja Al-
freðsdóttir,
menningar- og
viðskiptaráð-
herra. Tilefnið er
sú mikla umræða
sem verið hefur
um verðhækkanir
og verðbólgu.
Verðbólgan fór í 7,2% við síðustu
mælingu hér og einnig er mikil verð-
bólga víða um lönd. Lilja segir að
ástæðan fyrir verðbólguþrýstingi sé
að miklir peningar séu í umferð í
kjölfar kórónuveirufaraldursins og
hnökrar í aðfangakeðjunni vegna
innrásar Rússa í Úkraínu.
Lilja kynnti á ríkisstjórnarfundi í
gær minnisblað um upplýsingaöflun
um þróun samkeppni og verðhækk-
anir á lykilmörkuðum sem Sam-
keppniseftirlitið hefur hafið. Mark-
miðið er að gera stofnuninni kleift að
greina áhrif ytri aðstæðna á verð-
bólgu á lykilmörkuðum, einkum þró-
un framlegðar á dagvörumarkaði,
eldsneytismarkaði og markaði fyrir
byggingarefni. Vonast er til að hægt
verði að meta mögulega samkeppn-
isbresti á viðkomandi mörkuðum
sem myndu hugsanlega kalla á frek-
ari athuganir eða aðgerðir.
Lilja segir mikilvægt að Sam-
keppniseftirlitið geri þessa athugun.
Með því sé hún að gæta þess að
verðhækkanir verði ekki nema þar
sem þeirra er þörf vegna ytri að-
stæðna. „Mér fannst mikilvægt að
gera grein fyrir þessu á ríkisstjórn-
arfundi og var vel tekið í verkefnið,“
segir Lilja. helgi@mbl.is
Verð hækki aðeins
þar sem þörf er á
- Samkeppniseftirlitið aflar upplýsinga
Morgunblaðið/Golli
Innkaupakerran Nokkur verð-
bólguþrýstingur er nú í hagkerfinu.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Það er mín bjargfasta skoðun að
verkalýðshreyfingin, atvinnulífið,
verslun og þjónusta, Seðlabankinn,
sveitarfélögin og ríkið eigi að taka
höndum saman og finna leið til að
milda afleiðingar aðgerða gegn verð-
bólgunni eins og hægt er,“ segir Vil-
hjálmur Birgisson, formaður Verka-
lýðsfélags Akraness og Starfs-
greinasambands Íslands, um
aðgerðir til að vinna gegn verðbólgu.
Halldór Benjamín Þorbergsson,
framkvæmdastjóri Samtaka atvinnu-
lífsins, telur brýnt að hlutaðeigendur
nái sátt um að ná tökum á verðbólg-
unni og bendir á að samtal í þá veru
sé hafið á vettvangi þjóðhagsráðs.
Nýjasta mæling Hagstofu Íslands
sýnir að verðbólgan er nú 7,2%. Lilja
Alfreðsdóttir viðskiptaráðherra sagði
í aðsendri grein í Morgunblaðinu í
gær að stærsta verkefnið fram undan
væri að ná tökum á verðbólgunni.
Nefndi aðgerðir Seðlabankans, ríkis-
fjármálin þurfi að vera aðhaldssöm
og vinnumarkaðurinn verði að taka
tillit til aðstæðna.
Allir tapa á verðbólgu
„Verðbólgan er meiri og þrálátari
en búist var við,“ segir Halldór Benja-
mín. Því valdi utanaðkomandi áhrif og
aukin spenna í efnahagslífinu. Búast
megi við miklum vaxtahækkunum og
vísar hann í því efni til greiningar-
deilda bankanna sem geri ráð fyrir
allt að einnar prósentu hækkun stýri-
vaxta Seðlabankans í næstu viku.
„Mikilvægt er að ræða áhrif niður-
staðna kjarasamninga á verðbólgu.
Það lögmál gildir enn og mun gera um
ókomna tíð, að innistæðulausir kjara-
samningar valda verðbólgu, enda tapa
allir á því og lágtekjufólkið mest,“ seg-
ir Halldór og telur að tryggja verði að
nýir kjarasamningar muni ekki leiða
til enn meiri verðbólgu og hærri vaxta.
Hvorki fyrirtækin né heimilin njóti
góðs af verðbólgu og háum vöxtum.
Þak á hækkun lána
„Við erum að horfa upp á for-
dæmalausa tíma þar sem verðbólgan
æðir stjórnlaust áfram, með sama
hætti og er að gerast vítt og breitt um
heiminn,“ segir Vilhjálmur Birgisson
og heldur áfram: „Það sýnir okkur að
almenningur og heimilin bera enga
ábyrgð á þeirri verðbólgu sem nú er.
Á þeirri fosendu er mikilvægt að
stjórnvöld taki málið alvarlega og
verji heimilin fyrir verðbólgu-
skotinu,“ segir Vilhjálmur.
Nefnir hann sérstaklega afleiðing-
ar af tengingu fjárskuldbindinga
heimilanna við verðlag. Segir að verð-
tryggðar skuldir heimilanna nemi
1.500 milljörðum króna. Höfuðstóll
þeirra hafi því hækkað um 108 millj-
arða á tólf mánuðum og í síðasta
mánuði einum, á 31 degi, um 20 millj-
arða. Ef litið sé til hefðbundins verð-
tryggðs láns, upp á 35 milljónir, þá
hafi það hækkað um 438 þúsund
krónur á einum mánuði. „Þetta er
galið. Miðað við þá fordæmalausu
stöðu sem nú er uppi verða stjórnvöld
að grípa til aðgerða. Það mætti til
dæmis setja þak á vísitöluhækkun
verðtryggðra lána.“
Spurður um aðrar aðgerðir segir
Vilhjálmur að draga mætti úr gjöld-
um sem lögð eru á bensín og olíu, eins
og gert hafi verið í sumum nágranna-
löndum. Þá þurfi að ráðast í mikið
átak á húsnæðismarkaðnum. Sveitar-
félögin beri ábyrgð á hluta verðbólg-
unnar vegna hækkunar fasteigna-
verðs. Þau verði að auka framboð á
lóðum til að koma til móts við eft-
irspurn eftir húsnæði.
Kjarasamningar eina úrræðið
Vilhjálmur segir að við aðstæður
eins og nú ríkja komi aðstöðumunur
verslunar og þjónustu annars vegar
og launafólks hins vegar skýrt í ljós.
Sem dæmi nefnir hann að þegar verð
á innfluttum vörum hækki geti versl-
un og þjónusta varpað auknum
kostnaði út í verðlagið, um leið og
varan er keypt inn. Þegar launafólk
sé í sömu stöðu geti það ekki mætt
auknum kostnaði nema í gegnum
kjarasamninga og þeir séu ekki lausir
nema á tveggja til fjögurra ára fresti.
„Það er alveg ljóst að ef menn taka
sig ekki á og reyna að milda áhrifin af
verðbólgu og draga úr vaxtahækkun-
um hefur verkalýðshreyfingin engin
önnur tól til að mæta auknum út-
gjöldum heimilanna en kjarasamn-
inga,“ segir Vilhjálmur og tekur fram
að þróunin í verðlagi dragi ekki úr
kröfugerð verkalýðsfélaganna, sem
standi vörð um hag sinna fé-
lagsmanna, nema síður sé. Þess
vegna sé mikilvægt að menn myndi
samstöðu sem allir taki þátt í.
Nánar spurður um þetta segir Vil-
hjálmur að hann eigi við víðtækt ferli
þar sem allir komi að borðinu. Seðla-
bankinn reyni að stíga lausar á
bremsuna við vaxtaákvarðanir og
nýti frekar önnur tól sem bankinn
ráði yfir til að slá á verðbólguna. Ríki
og sveitarfélög lækki álögur á heim-
ilin, til dæmis með lækkun leikskóla-
gjalda til að létta á útgjöldum barna-
fjölskyldna. „Þetta er víðtækt
verkefni og ég tel að við megum eng-
an tíma missa við að hefja þetta sam-
tal,“ segir Vilhjálmur.
Samráð um viðbrögð við verðbólgu
- Formaður SGS vill víðtækt samráð um að milda áhrif verðbólgu og vaxtahækkana og verja heimilin
- Framkvæmdastjóri SA segir að kjarasamningar megi ekki leiða til aukinnar verðbólgu og vaxtahækkunar
Vilhjálmur
Birgisson
Halldór Benjamín
Þorbergsson
Morgunblaðið/Ómar
Reykjavík Hækkun húsnæðisliðar vísitölunnar hefur verið einn helsti orsakavaldur verðbólgunnar sem Hagstofan mælir nú um stundir 7,2%.
Lilja Alfreðsdóttir