Morgunblaðið - 30.04.2022, Blaðsíða 40
Kordo-kvartettinn heldur tónleika í Salnum í kvöld kl.
20 en yfirskrift tónleikanna er „Frændur í norðri“.
Kvartettinn var stofnaður 2018 og hann skipa fiðluleik-
ararnir Páll Palomares og Vera Panitch, víóluleikarinn
Þórarinn Már Baldursson og sellóleikarinn Hrafnkell
Orri Egilsson. Þau leika öll með Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands. Kvartettinn er nýkominn úr sinni fyrstu tónleika-
ferð, til Norður-Spánar. Á efnisskrá hans í kvöld eru
fyrstu strengjakvartettar Carls Nielsens og Edvards
Griegs og frumflutt verk eftir Huga Guðmundsson.
Frændur í norðri á tónleikum
Kordo-kvartettsins í Salnum í kvöld
LAUGARDAGUR 30. APRÍL 120. DAGUR ÁRSINS 2022
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í lausasölu 1.330 kr.
Áskrift 8.383kr. Helgaráskrift 5.230 kr.
PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr.
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Chris Paul vann það ótrúlega afrek að skora úr öllum
skotum sínum þegar Phoenix Suns tryggði sér sæti í
annarri umferð úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfu-
bolta í fyrrinótt. Gunnar Valgeirsson, NBA-sérfræðingur
Morgunblaðsins, fer yfir stöðuna þegar fyrstu umferð-
inni er að ljúka og hann telur að þrátt fyrir erfiðleika sé
Phoenix á ný orðið sigurstranglegasta liðið. »32
Orðnir sigurstranglegastir á ný
ÍÞRÓTTIR MENNING
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Enginn hefur fyrr náð þeim áfanga
sem Hulda Óskarsdóttir náði í dag,
en hún fagnar 85 ára verslunar-
prófsafmæli. Hulda brautskráðist
frá Verzlunarskóla Íslands árið
1937.
„Mamma fór í Kvennaskólann og
þegar hún lauk námi þar vildi hún
mennta sig meira. Ástæðan fyrir
því að hún valdi að fara í Versl-
unarskólann til að taka verslunar-
próf gæti að hluta til verið sú að
móðurbróðir hennar, Sigurður Guð-
jónsson, var lengi kennari við skól-
ann,“ segir Auður María Aðal-
steinsdóttir, ein af þremur dætrum
Huldu, en þar sem Hulda er á 103.
aldursári treysti hún sér ekki til að
koma sjálf í viðtal í tilefni af tíma-
mótunum.
„Ég er ekki frá því að það hafi
haft áhrif á að mamma sóttist eftir
að mennta sig, að móðursystir
hennar, Stefanía Guðjónsdóttir,
hafði farið í Menntaskólann í
Reykjavík, sem fáar stúlkur af
hennar kynslóð gerðu. Mamma
hafði því þessa menntuðu kvenfyr-
irmynd í fjölskyldunni, en á þess-
um tíma var litið mikið upp til
þeirra sem fóru í MR. Mamma tal-
aði stundum um þessa menntuðu
frænku sína sem hafði farið í MR
og ég efast ekki um að mamma
hafi verið sjálf góð fyrirmynd syst-
ur sinnar, Guðnýjar Sesselju, sem
alltaf var kölluð Sissa. Sissa var
sex árum yngri en mamma og hún
fór líka í Verslunarskólann,“ segir
Auður og bætir við að móðir henn-
ar hafi farið út á vinnumarkaðinn
eftir verslunarprófið.
„Hún hóf störf á skrifstofu hjá
Helga Lárussyni frá Klaustri, en
ég veit að hana langaði alltaf til að
starfa í apóteki. Þegar það stóð til
boða seinna þá var hún búin að
fastráða sig á skrifstofunni og gat
því ekki þegið starfið.“
Auður segir að móðir hennar hafi
kynnst mannsefninu, Aðalsteini Jó-
hannssyni, á Borginni en þangað
fór ungt fólk á þeim árum til að
skemmta sér og dansa.
„Þegar mamma og pabbi giftu
sig þá hætti hún að vinna á skrif-
stofunni og helgaði sig húsmóður-
starfinu og uppeldi okkar systra.
Sá háttur á lífi kvenna var algeng-
ur þá.“
Hulda Óskars-
dóttir fæddist í
Pósthússtræti 14 í
Reykjavík 5. sept-
ember 1919. For-
eldrar hennar voru
hjónin Óskar
Árnason rakara-
meistari og Guðný
Guðjónsdóttir.
Eiginmaður Huldu
var Aðalsteinn Jó-
hannsson, tækni-
fræðingur og
framkvæmdastjóri
A. Jóhannsson og Smith í Reykja-
vík. Hann lést árið 1998. Þau eign-
uðust þrjár dætur, Guðnýju Snjó-
laugu, Sigurlaugu og Auði Maríu.
Hulda býr nú í Seljahlíð í Reykja-
vík.
Enginn hefur áður náð
þessum merka áfanga
- Hulda Óskarsdóttir fagnar 85 ára verslunarprófsafmæli
Morgunblaðið/Eggert
Hulda Myndin var tekin árið 2019 þegar Hulda fagnaði 100 ára afmæli.
Skólaspjald
Hulda 18 ára
stúlka á skóla-
spjaldi Verslunar-
skólans á útskrift-
arárinu sínu.