Morgunblaðið - 30.04.2022, Blaðsíða 33
_ Mason Greenwood, leikmaður
enska knattspyrnuliðsins Manchester
United, verður áfram laus gegn trygg-
ingu en hann er grunaður um nauðg-
un, líkamsárás og líflátshótanir í garð
fyrrverandi unnustu sinnar. Hann var
handtekinn í janúar og hefur ekki æft
né leikið með Manchester United frá
þeim tíma.
_ Þjóðverjinn Boris Becker, einn
frægasti tennisleikari sögunnar, hefur
verið dæmdur til tveggja og hálfs árs
fangelsisvistar í Bretlandi fyrir fjár-
málamisferli. Becker var gefið að sök
að hafa skotið undan eignum að virði
milljóna punda eftir að hann var lýstur
gjaldþrota árið 2017. Margþættar
ákærur á hendur honum hefðu getað
þýtt allt að 28 ára fangelsi en hann var
fundinn sekur um
fjögur ákæru-
atriði. Becker er
54 ára gamall og
var afar sigursæll
á árunum 1985 til
1996 þar sem
hann vann m.a.
sex stórmót, þar
af Wimbledon þrí-
vegis.
_ Tímabili enska sóknarmannsins Ja-
dons Sanchos hjá Manchester United
gæti verið lokið vegna hálskirtlabólgu.
Knattspyrnustjórinn Ralf Rangnick
staðfesti á blaðamannafundi í gær.
Sancho var ekki með United í 1:1-
jafnteflinu gegn Chelsea á fimmtudag
vegna veikindanna. Sancho er ekki eini
leikmaður United sem verður fjarver-
andi næstu vikurnar því Edinson Cav-
ani, Fred, Harry Maguire, Paul Pogba,
Luke Shaw, Jesse Lingard og Aaron
Wan-Bissaka misstu allir af leiknum
við Chelsea.
_ Körfuknattleiksmaðurinn Martin
Hermannsson leikur ekki með Val-
encia gegn Andorra í efstu deild
Spánar í körfubolta í dag vegna
meiðsla.
Í frétt á heimasíðu félagsins kemur
fram að Martin sé að glíma við
meiðsli í hægri ökkla en ekki kemur
fram hversu alvarleg þau eru eða
hvort hann missi af fleiri leikjum.
Martin setti félagsmet gegn Levallois
í átta liða úrslitum Evrópubikarsins á
miðvikudag er hann gaf 11 stoðsend-
ingar og tapaði
aldrei boltanum.
Enginn leikmaður
félagsins hafði áð-
ur gefið jafn-
margar stoðsend-
ingar án þess að
tapa boltanum í
Evrópuleik.
_ Handknattleikskonan Ragnhildur
Edda Þórðardóttir hefur gert þriggja
ára samning við FH. Hún kom að láni
til FH frá Val í byrjun árs og hefur nú
ákveðið að ganga að fullu í raðir
Hafnarfjarðarfélagsins. Vinstrihorna-
konan skoraði 42 mörk í 1. deildinni,
Grill 66-deildinni, á leiktíðinni og 23
mörk í 14 leikjum með Val á síðustu
leiktíð.
ÍÞRÓTTIR 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. APRÍL 2022
Erkifjendurnir Valur og KR
mætast á Hlíðarenda í Bestu
deild karla í fótbolta í kvöld.
Búast má við skemmtilegum
leik en Reykjavíkurstórveldin
hafa oft boðið upp á magnaða
skemmtun. Það er eitthvað í
loftinu þegar þessi lið mætast.
Fyrir tveimur árum vann
Valur ótrúlegan 5:4-útisigur á
KR í einum allra skemmtileg-
asta leik þess sumars. Skiptust
liðin á að lenda undir og síðan
snúa taflinu sér í vil en að lok-
um var það Valur sem mátaði
KR-inga. Patrick Pedersen
skoraði tvö mörk fyrir Val.
Í fyrra vann Valur 3:2-
útisigur á KR. KR komst yfir
snemma leiks en Valur svaraði
með þremur mörkum og vann
sterkan útisigur. Þótt leikurinn
hafi ekki alveg boðið upp á
sama fjör og árið á undan var
hann fjörugur.
KR hefur líka fagnað sigr-
um á Val í markaleikjum. Árið
2019 vann KR 3:2-heimasigur
eftir að Valur komst í 2:0.
Pablo Punyed skoraði sig-
urmark KR með glæsilegri
aukaspyrnu og fagnaði með
göngu að hætti bestu göngu-
manna heims. Mjaðma-
hreyfingarnar voru magnaðar.
Árið 2009 vann Valur 4:3-
útisigur á KR í leik sem bauð
upp á allt; fullt af mörkum,
sjálfsmark, rautt spjald og
magnaða stemningu. Leikurinn
var spilaður á einum besta
sumardegi ársins, 20 gráður,
ekki ský á himni. Þvílíkur dag-
ur.
KR vann Val 5:2 á útivelli
árið 2009 þar sem Björgólfur
Takefusa skoraði fimm mörk og
tryggði sér markakóngstitilinn.
Sá leikur og fleiri verða rifjaðir
betur upp í næsta bakverði
undirritaðs.
BAKVÖRÐUR
Jóhann Ingi
Hafþórsson
johanningi@mbl.is
KÖRFUBOLTI
Gunnar Egill Daníelsson
gunnaregill@mbl.is
Kári Jónsson, landsliðsmaður í
körfuknattleik, hefur farið mikinn
með Val í úrslitakeppni Íslands-
mótsins í körfuknattleik karla. Lið-
inu hefur gengið yfirmáta vel í úr-
slitakeppninni enda búið að vinna
einvígi sín í fjórðungsúrslitunum og
undanúrslitunum örugglega, 3:0
gegn Stjörnunni og sömuleiðis 3:0
gegn fráfarandi Íslandsmeisturum
Þórs frá Þorlákshöfn. Valur flaug
því í úrslitaeinvígið þar sem liðið
mætir annaðhvort Tindastóli eða
deildarmeisturum Njarðvíkur.
„Upplifun mín af úrslitakeppninni
hefur verið mjög góð. Við höfum ver-
ið að spila vel og erum 6:0 í henni.
Þetta er búið að vera allt á réttri leið
hjá okkur síðustu leikina í deildinni
og inn í úrslitakeppnina þannig að
við getum verið sáttir með það en
það er nóg eftir ennþá,“ sagði Kári í
samtali við Morgunblaðið.
Spurður hvað hafi gert það að
verkum að Valur hafi unnið alla sex
leiki sína í úrslitakeppninni til þessa
sagði hann: „Menn eru bara tilbúnir
að leggja aðeins aukalega á sig og
fórna sér fyrir liðið. Það er komin
meiri rútína á mannskapinn, hlut-
verkaskipan er orðin skýrari og það
er líka bara gaman. Það er mikið
undir, mikil orka og stemning og það
hjálpar alltaf mikið.“
Getur verið bæði gott og slæmt
Kári hefur verið hluti af mörgum
góðum liðum á ferli sínum; með upp-
eldisfélaginu Haukum, íslenska
landsliðinu og hjá atvinnuliðum á
Spáni. Valsliðið er afar vel skipað en
hann treysti sér ekki til þess að meta
hvar á listanum yfir bestu liðin sem
hann hefur leikið með það væri.
„Það er svo ótrúlega erfitt að
segja núna. Ef þú spyrðir mig í sum-
ar væri auðveldara að svara því. Ég
get ekki svarað því núna en þetta er
mjög gott lið. Það er mikil reynsla í
liðinu, hjá leikmönnum og þjálfara.
Það er fullt af leikmönnum sem hafa
gert þetta áður og vita um hvað
þetta snýst, það er mjög stór partur
af þessu,“ sagði Kári.
Þar sem árangurinn hjá Val hefur
verið þetta góður í úrslitakeppninni
þarf liðið að bíða enn um sinn eftir
því að spila fyrsta leikinn í úrslita-
einvíginu. „Það getur verið bæði
gott og slæmt. Þetta er svolítið snúin
staða. Það er mjög gott að hvíla og
safna kröftum aftur því það er nátt-
úrlega þétt spilað í úrslitakeppninni
og menn verða þreyttir og lemstr-
aðir.
Þannig að það er gott en svo getur
þetta verið slæmt af því að þú vilt
halda ryþma og þegar það er of
langt milli leikja getur það verið að-
eins erfiðara að halda sér í takti.
Þetta er mjög fín lína, að vera þarna
einhvers staðar á milli,“ útskýrði
hann.
Sópurinn ólíklega á lofti
Staðan í einvígi Tindastóls og
Njarðvíkur er 2:1, Stólunum í vil. Í
kvöld mætast þau í fjórða leik á
Sauðárkróki þar sem heimamenn
geta tryggt sér sæti í úrslitum á
meðan Njarðvíkingar freista þess að
knýja fram oddaleik. Kári kvaðst
ekki eiga sér neinn óskaandstæðing.
„Nei, í rauninni ekki. Það eru tvö
frábær lið eftir, Tindastóll og Njarð-
vík. Það verður bara hörkubarátta
og brjálæði, sama hvaða lið við fáum.
Það er erfitt að fara eitthvað að
hugsa of mikið út í það fyrr en kem-
ur að því. Við erum meira að hugsa
um okkur eins og er.“
Spurður um möguleika Vals á að
standa uppi sem Íslandsmeistarar
sagði hann: „Það er erfitt að segja,
það kemur allt í ljós. Ég tel okkur
klárlega eiga möguleika á móti báð-
um liðum en að við séum að fara í
einhverja sópun aftur tel ég ólíklegt,
það yrði allavega eitthvað ótrúlegt.
Ég held að menn séu ekkert að
búast við því, menn eru alveg með
báða fætur á jörðinni og vita að það
er nóg eftir og að við þurfum að gera
allt sem við getum til þess að sækja
þrjá sigra í viðbót á þessu tímabili.
Við setjum stefnuna á það.“
Skiptir pabba og afa ekki máli
Kári er sem áður segir uppalinn
hjá Haukum, sem tryggðu sér sæti í
úrvalsdeildinni eftir árs fjarveru
með því að standa uppi sem sigur-
vegarar 1. deildar. Hann er ánægður
með það.
„Já, að sjálfsögðu. Ég er náttúr-
lega uppalinn Haukamaður og
Haukar eru það stór klúbbur að þeir
eiga alltaf heima í úrvalsdeild. Það
er flott að þeir séu komnir þangað
aftur og vonandi geta þeir teflt fram
samkeppnishæfu liði og haldið sér
uppi.“
Kári er af þriðju kynslóð körfu-
knattleiksmanna. Faðir hans, Jón
Arnar Ingvarsson, var atvinnumað-
ur og landsliðsmaður sem lék lengst
af með Haukum. Afi Kára, Ingvar
Sigurður Jónsson, lagði svo á sínum
tíma grunn að því hversu styrkum
fótum körfuknattleiksdeild Hauka
hefur staðið um langt árabil og hefur
löngum verið kallaður „faðir körfu-
knattleiksins í Hafnarfirði“. Hann
lék með meistaraflokknum, þjálfaði í
yngri flokkum og þjálfaði síðar
meistaraflokk karla hjá félaginu.
Jón Arnar og Ingvar hafa báðir
verið duglegir að mæta á leiki Vals í
úrslitakeppninni en hvað finnst
þetta hörðum Haukamönnum um að
Kári leiki nú listir sínar með Val?
„Það er nú bara gaman held ég.
Það fer ekkert verr í þá hvort sem
maður er í Haukum eða Val. Þeir
voru í öðrum liðum eins og ég og það
er ekkert heilagt. Svo lengi sem
maður er að standa sig vel og gera
vel þá eru þeir sáttir,“ sagði Kári að
lokum í samtali við Morgunblaðið.
Með fullt af mönnum
sem hafa gert þetta áður
- Valur 6:0 í úrslitakeppninni - Kostir og gallar við bið eftir fyrsta úrslitaleik
Morgunblaðið/Óttar Geirsson
25 Kári Jónsson lék vel með Val í einvíginu gegn Íslandsmeisturum Þórs frá Þorlákshöfn og skoraði m.a. 25 stig í
þriðja leiknum. Hann bíður nú eftir því hvort Tindastóll eða Njarðvík verði mótherjinn í úrslitaeinvíginu.
Mjólkurbikar kvenna
1. umferð:
Augnablik – Hamar.................................. 7:0
Fylkir – Haukar........................................ 0:3
_ Augnab. og Haukar mætast í 2. umferð.
Grótta – FH .............................................. 0:7
_ FH mætir ÍH eða KÁ.
ÍA – Fjölnir ............................................... 6:1
_ ÍA mætir Sindra eða KH.
Tyrkland
Giresunspor – Adana Demirspor .......... 2:0
- Birkir Bjarnason lék fyrri hálfleik með
Adana Demirspor.
Þýskaland
B-deild:
Sandhausen – Schalke ............................ 1:2
- Guðlaugur Victor Pálsson kom inn á hjá
Schalke á 76. mínútu.
Holland
B-deild:
Maastricht – Jong Ajax........................... 1:0
- Kristian Nökkvi Hlynsson lék allan leik-
inn með Jong Ajax.
Danmörk
B-deild, úrslitakeppnin:
Hvidovre – Horsens................................. 0:1
- Aron Sigurðarson lék allan leikinn með
Horsens.
B-deild, fallkeppnin:
Fremad Amager – Esbjerg .................... 2:0
- Ísak Óli Ólafsson kom inn á hjá Esbjerg
á 71. mínútu.
Svíþjóð
Rosengård – Hammarby ........................ 4:1
- Guðrún Arnardóttir lék allan leikinn
með Rosengård.
Katar
Bikarkeppnin, 8-liða úrslit:
Al-Arabi – Al-Kharitiyath ...................... 2:1
- Aron Einar Gunnarsson lék allan leikinn
með Al-Arabi og lagði upp sigurmarkið.
4.$--3795.$