Morgunblaðið - 30.04.2022, Síða 9

Morgunblaðið - 30.04.2022, Síða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. APRÍL 2022 „Blómafernurnar komu á markaðinn árið 1985 í tilefni af 50 ára afmæli Mjólkursamsölunnar. Hún vildi þá færa neytendum blóm. Okkur fannst tilvalið að endurvekja þessa sígildu hönnun,“ segir Guðný Steinsdóttir, markaðsstjóri hjá MS. Nýmjólk og léttmjólk frá MS er nú boðin í versl- unum í þessum fernum og verður svo í um mánuð í tilefni af Hönn- unarMars sem verður dagana 4. til 8. maí. Vakin var sérstök athygli á blóma- fernunum í Grósku í gær þegar Jök- ull Jónsson arkitekt og Tanja Levý, fata-, búninga- og textílhönnuður, opnuðu endurvakið eldhús níunda áratugarins þar sem finna má tíma- lausa íslenska klassík. Við þetta tækifæri voru hönnuðir blómafernanna heiðraðir en það eru Kristín Þorkelsdóttir, Tryggvi T. Tryggvason og Stephen Fairbairn. Þær eru skreyttar með myndefni eftir listamanninn Eggert Pétursson úr bókinni Íslensk flóra. Guðný segir að starfsfólk MS hafi fengið jákvæð viðbrögð frá neyt- endum vegna þessa framtaks. helgi@mbl.is Ljósmynd/Aldís Pálsdóttir Hönnuðir Þau Stephen Fairbairn og Kristín Þorkelsdóttir hönnuðu blóma- fernurnar frá 1985 ásamt Tryggva T. Tryggvasyni og voru heiðruð í gær. Hönnuðir blómaferna heiðraðir - Mjólkurfernur frá 1985 eru tímabundið í búðum Gróska Hluti af innsetningunni. Ísland er orðið vinsæll æfingastaður og vettvangur rannsókna fyrir vænt- anlegar ferðir til tunglsins og Mars, samkvæmt nýlegri grein á vefnum space.com. Vefurinn fjallar um geimferðir, stjörnufræði og geimvís- indi. Fram kemur í greininni að það færist í vöxt að hér séu prófaðir geimbúningar, gerðar tilraunir með mögulegar vistarverur til notkunar úti í geimnum og farartæki sem nota á annars staðar en á jörðinni. Rætt er við Daniel Leeb, stofn- anda Geimvísindastofnunar Íslands ehf. (Iceland Space Agency), og Atla Þór Fanndal, framkvæmdastjóra Space Iceland. Daniel segir í viðtalinu að gott sé að gera geimtengdar rannsóknir á Íslandi vegna fjölbreytts umhverfis sem á stundum líkist því sem finnst á öðrum hnöttum. Geimvísinda- stofnun Íslands hefur m.a. starfað með DIGMARS-rannsóknateyminu frá NASA, geimvísindastofnun Bandaríkjanna. Talið er að ákveðin líkindi séu með jarðfræði Íslands og rauðu plánetunnar Mars. Meðal annars er verið að rannsaka hvort ís- lensk stöðuvötn geti varpað ljósi á ferla yfirborðsvatns og jarðvatns í árdaga á Mars. Rannsókn hófst á Sandvatni í þessu skyni í fyrra og verður henni haldið áfram í sumar, að því er Daniel sagði í samtali við Morgunblaðið. Atli Þór Fanndal hjá Space Ice- land segir við space.com að Ísland henti mjög vel til æfinga í umhverfi sem líkist því sem er á tunglinu og á Mars. Það sé ástæða þess að erlend- ir aðilar komi hingað til lands til að undirbúa geimferðir. Fram kemur að Space Iceland vilji tengja saman hagsmunaaðila og koma á fót sam- starfsvettvangi á sviði geimtengdra verkefna og rannsókna. Space Iceland hefur ásamt fleir- um tekið þátt í verkefni sem kallast CHILL-ICE og snýst um að útbúa eftirlíkingu af vistarverum í geimn- um. Það er gert í íslenskum hraun- hellum. Á heimasíðu Space Iceland sést að íslenskir námsmenn hafa fengið stuðning þess til að vinna að sumarverkefnum. gudni@mbl.is Ljósmynd/Space Iceland/Chill-Ice Stefánshellir Vísindamenn komu í fyrra vegna geimfaraþjálfunar. Geimbún- aður próf- aður hér - Tvö félög einbeita sér að geimnum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.