Morgunblaðið - 30.04.2022, Page 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. APRÍL 2022
Hyundai Kona Comfort ‘20, sjálfskiptur,
ekinn 15 þús.km. Verð: 4.390.000 kr.
592173
SsangYong Tivoli DLX ‘18, sjálfskiptur,
ekinn 72 þús.km. Verð: 2.690.000 kr.
800527
Opel Corsa Enjoy ‘18, sjálfskiptur,
ekinn 77 þús.km. Verð: 1.890.000 kr.
446547
SsangYong Korando DLX ‘18, beinskiptur,
ekinn 52 þús.km. Verð: 3.190.000 kr.
592154
B
irt
m
e
ð
fy
rirv
a
ra
u
m
m
y
n
d
a
-
o
g
te
x
ta
b
re
n
g
l.
50
%AFSLÁTTUR AFSÖLULAUNUMÍ MAÍ
Komdu og skoðaðu gott úrval bíla á Krókhálsi 9
Okkur vantar þinn bíl á skrá!
Vegna góðrar sölu vantar okkur allar tegundir bíla á skrá!
Notaðir bílar
Sjáðu bílanna á
notadir.benni.is
Bílabúð Benna | Krókhálsi 9 | Reykjavík | 590 2035
4x4
4x4
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
É
g er ekki með annan
fótinn í gröfinni þótt ég
sé orðin rúmlega sjötug.
Maður verður líka að
hafa gaman af því sem maður er
að gera,“ segir Ágústa Gísladóttir,
sem á erfitt með að sitja aðgerða-
laus og sneri sér því að fatafram-
leiðslu eftir að hún komst á hinn
svokallaða aldur.
„Þegar maður hættir að vinna
hjá öðrum þá fer að banka upp á
það sem mann langar að gera. Ég
hef alltaf verið með eitthvað á
prjónunum, í bókstaflegri merk-
ingu, hef prjónað mikið yfir ævina.
Mér fannst tími til kominn að
prufa að gera eitthvað úr því. Mér
fannst nóg til af venjulegum lopa-
peysum svo mér datt í hug að fara
aðrar leiðir og ég fór því að prjóna
stutterma lopapeysur. Í framhald-
inu komu grifflur sem ná hátt upp
á handlegg og fara vel með stutt-
erma peysunum og líka húfur. Ég
hef verið að prufa mig áfram og
börnin mín hjálpa mér í þessu, þau
hvöttu mig til að fara af stað með
mína eigin fatalínu. Þau eru dugn-
aðarforkar,“ segir Ágústa, sem
sjálf býr yfir nægri orku og sló því
til.
„Ég vildi hafa peysurnar létt-
ar og nútímalegar, þær eru ekki
nema 100 grömm. Ég nota einfald-
an plötulopa sem er óspunninn og
viðkvæmur fyrir vikið, en gefur
góða tilfinningu. Vinkona mín,
Bjarnfríður Jónsdóttir, kom mér
til hjálpar og hún prjónar núna
peysurnar fyrir mig, en hún er
þaulvön prjónakona og mikill snill-
ingur. Ég sé aftur á móti um að
prjóna fylgihlutina, húfurnar og
grifflurnar.“
Vill endurvekja geirfuglinn
Í ljósi þess að ekki vilja allir
klæðast ull ákváðu þau að bjóða
líka upp á mjúka bómullarboli sem
eru framleiddir úr 100% óbleiktri
og lífrænni bómull. Auk þess eru
litarefnin náttúruleg sem notuð
eru í áprentuðu myndirnar.
„Áprentuðu myndirnar á
bolunum eru af vörumerki fatalín-
unnar, geirfuglinum, en latneskt
heiti hans er Pinguinus impennis.
Pinguinus merkir mörgæs, og því
köllum við geirfugls-fatalínuna
okkar The Icelandic Penguin, eða
hina íslensku mörgæs,“ segir
Ágústa og bætir við að geirfuglinn
sé í raun hin upprunalega mörgæs.
„Við búum hér í Grindavík þar
sem geirfuglinum er gert hátt und-
ir höfði, en talið er að síðasti geir-
fuglinn hafi verið drepinn hér í
Eldey árið 1844. Við erum með
þessu vörumerki að vísa í geirfugl-
inn okkar hér á Reykjanesinu,
heiðra minningu hans, endurvekja
þennan útdauða fugl með þessum
táknræna hætti,“ segir Ágústa,
sem átti von á fiski í land þegar
viðtalið var tekið, en eiginmaður
hennar, Hafsteinn Sæmundsson,
sem áður var í útgerð, rær nú á
trillu, þótt 85 ára sé.
„Hann er núna á grásleppu og
sonur okkar, Heimir Örn, rær með
honum og ég hleyp í skarðið og ræ
með Hafsteini ef sonurinn kemst
ekki,“ segir Ágústa og bætir við að
sonur þeirra Gísli Ari hafi hannað
vörumerkið, The Icelandic Peng-
uin.
„Hann er líka ljósmyndari og
tekur allar myndir fyrir mig. Þetta
er allt á byrjunarstigi, við erum að
safna upp í lager. Við byrjuðum að
undirbúa og græja þegar covid var
en erum ekki byrjuð að selja. Ég
vona að ferðamennirnir sæki í
þetta, þá er um að gera að hafa
flíkurnar léttar og fallegar úr ynd-
islega íslenska lopanum okkar.“
Svalt Hinar háu grifflur ná alveg
upp að stuttum ermum peysunnar.
Bolur Síðerma bolur úr 100% óbleiktri lífrænni bómull með geirfugli.
Töff Stutterma lopapeysurnar
henta fólki af öllum kynjum.
Geirfuglinn er íslenska mörgæsin
„Ég hleyp í skarðið og ræ
með Hafsteini ef sonur
okkar kemst ekki,“ segir
Ágústa Gísladóttir sem
vílar ekki fyrir sér að fara
á grásleppuveiðar með
eiginmanninum. Hún
tók sig líka til og hannaði
nýja fatalínu, The Ice-
landic Penguin, eða hina
íslensku mörgæs.
Ljósmyndir/Gísli Ari Hafsteinsson
Ágústa Aldeilis ekki af baki dottin þótt aldur færist yfir, prjónar alla daga.