Morgunblaðið - 11.05.2022, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 11.05.2022, Qupperneq 2
2 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 2022 Skeifan 3 • 108 Reykjavík • Sími 581 2333 • rafver.is • rafver@rafver.is FC 7 Premium Þráðlaus skúringarvél fyrir heimili 10% afsláttur Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Gísli Freyr Valdórsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is Lagt hefur verið til að breyting verði gerð á Lottói Íslenskrar getspár sem felur í sér að leikurinn breytist úr Lottó 5/40 í Lottó 5/42, þ.e. nú þarf fimm réttar tölur af 42 til þess að vinna. Auk þess hefur verið lagt til að verð á seldri röð hækki úr 130 kr. í 150 kr. Þá verður einum vinnings- flokki bætt við. Íslensk getspá hefur óskað eftir við dómsmálaráðuneytið að þessar breytingar verði gerðar en tillög- urnar má nú finna í Samráðsgáttinni. „Við höfum farið mjög hægt í að breyta lottómatrixunni eða kúlufjöld- anum. Við breyttum þessu síðast árið 2008, þá fórum við úr fimm tölum af 38 í fimm tölur af 40. Þá voru Íslend- ingar 315 þúsund en nú eru þeir um 370 þúsund. Við bara eltum íbúafjöld- ann,“ segir Stefán Konráðsson, fram- kvæmdastjóri Íslenskrar getspár. Þar sem þátttakendur séu fleiri kalli það á þessar breytingar. Íslensk getspá hóf rekstur á Lottó 5/32 árið 1986. Leiknum var breytt árið 1988 í 5/38 og hélst hann óbreytt- ur til ársins 2008. Stefán segir að þannig nái leikur- inn „að næra sig“ en vinningslíkurnar séu vissulega minni. „Leikurinn verð- ur erfiðari fyrir vikið, við erum ekk- ert að reyna að plata neinn með það. Lottó er lottó og við erum bara að koma til móts við íbúafjölda en til þess að milda áhrifin komum við með nýjan vinningsflokk. Þá dreifast vinn- ingarnir á fleiri.“ Nýi flokkurinn er þrjár réttar tölur og bónustala. „Um leið hækkum við verðið um 20 krónur. Það hefur ekki verið gert síð- an 2013. Miðað við vísitöluverð ætti röðin að kosta um 170 krónur.“ Fjölga kúlum í íslenska Lottó - Minnka vinningslíkur vegna fólksfjölda Morgunblaðið/Eggert Lottó Breytingar eru fyrirhugaðar á þessum vinsæla getspárleik. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Engin þyrla Landhelgisgæslunnar (LHG) var tiltæk í gær þegar flytja þurfti slasaðan mann á sjúkrahús eftir bílslys undir Eyjafjöllum. Ásgeir Erlendsson, upplýsinga- fulltrúi LHG, segir að í gærmorgun hafi verið sett upp ein þyrluáhöfn. Hjá Gæslunni eru sex þyrluáhafnir. Ásgeir segir það þýða að um 2⁄3 hluta ársins geti tvær áhafnir verið til taks en 1⁄3 hluta ársins ein áhöfn. Þessa dagana á ein áhöfn að vera á vakt. Tvær þyrlur eru til reiðu. Flugstjórinn sem var á vakt í gær- morgun tilkynnti veikindi og gat því ekki flogið. En gat flugmaðurinn ekki tekið við sem flugstjóri? „Nei, það er ekki heimild til þess. Flugstjórar eru takmörkuð auðlind og því urðum við að reyna að fá flug- stjóra sem var á frívakt til að hlaupa í skarðið, en því miður tókst það ekki í þetta sinn og þess vegna gat þyrlan ekki farið,“ segir Ásgeir. Í hverri áhöfn eru fimm, þ.e. flugstjóri, flug- maður, sigmaður sem einnig er stýrimaður, spilmaður sem einnig er flugvirki og svo læknir. Öll áhöfnin, að undanteknum flugstjóranum, var tilbúin í flugið í gær. Tveir þyrlu- flugstjórar LHG eru búsettir fyrir norðan og dvelja þar í sínum frítíma. Þeir geta því ekki skotist í útkall með skömmum fyrirvara. Ástæða þess að einungis ein þyrlu- áhöfn er á vakt þessa dagana og fram í næstu viku er m.a. vegna þjálfunar sem frestaðist í kórónu- veirufaraldrinum. Enginn úr þyrlu- áhöfnunum var erlendis við þjálfun í gær. Efla þarf þyrlusveitina meira „Stjórnvöld hafa stigið stór skref til að efla þyrlusveitina, bæði með nýju þyrlunum og svo var þyrlu- áhöfnum fjölgað úr fimm í sex. Því er ekki að leyna að með sjö þyrluáhöfn- um væri hægt að auka viðbragðsget- una enn frekar,“ segir Ásgeir. Danska varðskipið Triton lá við bryggju í Reykjavík í gær og þar er þyrla um borð. Að sögn Ásgeirs til- kynnti danski sjóherinn að þyrlan af Triton þyrfti að fara í viðhald í Kefla- vík í gær. Því var hún ekki til reiðu þegar á þurfti að halda. Morgunblaðið/Árni Sæberg TF-GNA Fimm eru í áhöfn hverrar þyrlu og hjá LHG eru sex þyrluáhafnir. Flugstjóri veik- ur – engin þyrla - Ein þyrluáhöfn á vakt þessa dagana Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhann- esson, sæmdi í gær þrettán Fær- eyinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu fyrir framlag sitt við björgunarstörf þegar flugvél Flug- félags Íslands fórst á eyjunni Myki- nesi við Færeyjar 26. september 1970 og með henni átta manns. Úr slysinu komust 26 manns lífs af og ætla má að harðfylgi Færeyinga hafi þar ráðið miklu. Hugrekki og þrautseigja Þrekvirki var unnið við að koma slösuðum úr flugvélarflakinu af fjalli niður í byggðina í Mykinesi. Þaðan var fólkið flutt áfram ýmist með þyrlu eða sjóleiðina til Þórshafnar og á sjúkrahús þar. Mykines er af- skekkt klettaeyja nyrst í Færeyja- klasanum. Þangað hefur löngum ver- ið torsótt að komast, rétt eins og var haustdaginn þegar íslenska flugvélin fórst. Sú var af gerðinni Fokker F27 Friendship en slíkar voru í aðal- hlutverki í innanlands- og Færeyja- flugi FÍ um áratugaskeið. „Mér er það heiður að færa ykkur þakkir okkar allra á Íslandi fyrir hugrekki ykkar og þrautseigju við afar erfiðar kringumstæður. Atbeini ykkar bjargaði mannslífum,“ sagði forsetinn við athöfn í gær í bústað ís- lenska ræðismannsins í Færeyjum. Forsetinn er nú í opinberri heimsókn í Færeyjum, hvar hann hefur heilsað upp á fólk auk þess að flytja fyr- irlestur við Fróðskaparsetur Fær- eyja, háskólann í Þórshöfn. Heiður þeim sem heiður ber Þau sem fálkaorðuna fengu í gær fyrir björgunarafrekið í Mykinesi voru Aksel Niclasen sjómaður, Ann- finnur á Túvuvølli Jensen fiskverka- maður, Bjarni Hansen bóndi, Dánj- al Danielsen vélstjóri, Jaspur Joensen skipstjóri, Jákup í Løðu kennari, Johan Hendrik Olsen, fyrrverandi sjómaður, Jóhannes Fredrik Meinhard Summaldur Jo- ensen, fyrrverandi sjómaður, Karl Mikkelsen, fyrrverandi sjómaður, Katrin Dahl, fyrrverandi hjúkr- unarfræðingur, Kjartan Simonsen, fyrrverandi smiður, Leon Heinesen, fyrrverandi vitavörður, og Reðin Leonsson, fyrrverandi lögreglu- maður. Heiður þeim sem heiður ber, sagði forseti Íslands við athöfnina í gær. Með þessum virðingarvotti væri fólki þökkuð einstök fram- ganga á sorgarstundu í sameigin- legri sögu Íslendinga og Fær- eyinga. Ljósmynd/Ólavur Frederiksen Færeyjar Færeyingarnir þrettán sem fengu heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu afhent í gær af Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands, sem hér er fyrir miðri mynd. Framganga þessa fólks við björgunarstörf þótti einstök. Færeyingarnir fengu fálkaorðu fyrir björgun - Unnu mikið afreksverk í flugslysinu í Mykinesi árið 1970

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.