Morgunblaðið - 11.05.2022, Síða 8

Morgunblaðið - 11.05.2022, Síða 8
8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 2022 Ekkert var og er að marka Dag B. um allar þjóðarhallirnar sem hann lofar fyrir hverjar kosn- ingar. - - - Hann er þó sjálf- um sér sam- kvæmur því ómark- tækari maður hefur aldrei áður gegnt embætti borgar- stjóra. Um það eru óteljandi dæmi. Hin má telja á fingrum annarrar handar. - - - Öll loforðin eru margsvikin. Tímamörkin nú, 2025, standast ekki og það vita und- irskrifendur. - - - Nú síðast mætti Ásmundur E. Daðason með formanni VG til að skrifa undir enn eina marklausa yfirlýsingu Dags. - - - Hlægilegastur alls er þó eld- spýtustokkurinn undir Miklu- braut sem Dagur hóf að lofa fyrir hálfum öðrum áratug! - - - Björn Bjarnason bendir á að rifr- ildið verði svo um það hver hafi hindrað að þjóðarhöllin rísi ekki! Ráðherrarnir taki þátt í leik- araskapnum með borgarstjóra á flokkspólitískum forsendum. - - - Björn skrifar: „Verði Dagur B. áfram borgarstjóri er fyrir- sjáanlegt að áfram verður spólað í farinu frá 2006. - - - Undir hans stjórn er allur sköp- unar- og framkvæmdaþróttur úr sögunni. - - - Frekari stöðnun leiðir til meiri afturfarar.“ Ásmundur E. Daðason Loforðaermi tútnar STAKSTEINAR Dagur B. Eggertsson Alls hafa 406 manns skrifað undir áskorun til borgaryfirvalda um að hætta við framkvæmd landfyllingar í Skerjafirði. Flestir sem skrifað hafa undir listann eru íbúar í Skerjafirði sem hafa lagst gegn því að borgar- yfirvöld haldi fyrirhuguðum fram- kvæmdum til streitu í trássi við vilja íbúa, eins og segir í tilkynningu frá aðstandendum listans. „Meirihlutanum í borginni þótti ekki ástæða til að verða við beiðni um skoðanakönnun um vilja íbúa vegna málsins, líkt og gert var vegna fyrirhugaðra framkvæmda borgar- innar í Háaleitis- og Bústaðahverfi. Vegna þessarar vanrækslu borgar- yfirvalda í samskiptum við íbúa settu íbúar í Skerjafirði af stað undir- skriftasöfnun með það fyrir augum að vilji þeirra næði upp á yfirborðið,“ segir m.a. í tilkynningunni. Telja íbúarnir að landfyllingin muni spilla einu eftirstandandi nátt- úrulegu fjöru borgarlandsins, stofna lífríki fjörunnar í mikla hættu og skemma sterkan svip fjörunnar á svæðinu. Með undirskriftunum eru borgaryfirvöld hvött til þess að end- urskoða hugmyndir um landfyllingu og taka betur til greina mat Um- hverfisstofnunar, þar sem segir að umhverfisáhrif verði mikil, neikvæð og óafturkræf. Vilja hætta við landfyllinguna - 406 manns skrifuðu á undirskrifta- lista gegn landfyllingu í Skerjafirði Morgunblaðið/Árni Sæberg Skerjafjörður Landfyllingin á að koma við suðurenda flugvallarins. Brottfarir Íslendinga frá landinu eru nú orðnar álíka margar og fyrir far- aldur kórónuveirunnar. Talningar Ferðamálastofu leiða í ljós að í sein- asta mánuði voru brottfarir Íslend- inga um 58 þúsund talsins en í sama mánuði í fyrra voru þær tæplega þrjú þúsund. „Brottfarir Íslendinga í apríl eru orðnar álíka margar og þær voru fyrir kórónaveirufaraldurinn en þær mældust tæplega 61 þúsund í apríl 2019. Frá áramótum hafa brottfarir Íslendinga mælst tæplega 136 þúsund,“ segir í umfjöllun Ferðamálastofu. Ef litið er á ferðir erlendra far- þega kemur í ljós að brottfarir þeirra frá landinu í apríl voru um 103 þúsund, en þær voru tæplega 5.800 í sama mánuði í fyrra. Er nýliðinn mánuður sá fjórði fjölmennasti frá því að mælingar Ferðamálastofu á fjölda brottfara frá landinu hófust. Brottfarir erlendra farþega í apríl voru fleiri á árunum 2017-2019 en brottfarir farþega í síðastliðnum aprílmánuði voru fleiri en í sama mánuði árið 2016. „Flestar brottfarir í apríl voru til- komnar vegna Bandaríkjamanna, tæplega 18 þúsund talsins eða 17,4%. Bandaríkjamenn voru jafn- framt fjölmennasta þjóðernið í apríl 2017 og 2018 eða um fjórðungur brottfara og í apríl 2019 eða ríflega fimmtungur brottfara,“ segir í um- fjöllun Ferðamálastofu um fjöldann. Jafnframt kemur fram að brott- farir Breta voru í öðru sæti í apríl sl. eða tæplega 16.200 talsins og 15,7% af heild. „Bretar voru fjölmennasta þjóðernið í apríl á árunum 2002- 2016. Þegar mest var eða í apríl 2017 mældust brottfarir Breta tæplega 28 þúsund.“ Brottfarir Pólverja eru svo í þriðja sæti eða 10,8% af heildinni. omfr@mbl.is Íslendingar á flugi líkt og fyrir faraldur - 103 þúsund brott- farir erlendra ferða- manna í aprílmánuði Morgunblaðið/Eggert Brottför Á árinu hafa um 347.000 erlendir farþegar farið frá Íslandi. # a ll ir ú ta ð le ik a Skíðasprengja 50% afsláttur af Peltonen gönguskíðum Smiðjuvegur 1, s. 419 7300, sportval.is Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.