Morgunblaðið - 11.05.2022, Síða 13

Morgunblaðið - 11.05.2022, Síða 13
Það er með ólík- indum að sjá að hluti ríkisstjórnarinnar, þ.e. VG og Fram- sóknarflokkurinn, ásamt Samfylking- unni í Reykjavík, hafi nú ákveðið að und- irrita viljayfirlýsingu um þjóðarhöll. Með þessu reyna flokk- arnir að styðja fram- boð sinna félaga til sveitarstjórna. Fjármálaráðherra var auðvitað víðs fjarri og vilja- yfirlýsingin segir kjósendum ná- kvæmlega ekki neitt! Laugardalshöllin stenst engan veginn alþjóðlegar kröfur til æfinga og keppni og langt er síðan kallað hefur verið eftir fullnægj- andi íþróttahúsi. Forsvarsmenn íþróttafélaga og sambanda hafa ítrekað fundað, óskað eftir og bent á þetta skipulagsleysi og seina- gang frá hendi yfirvalda. Það er skammarlegt að þetta mál og raunar fleiri hafi ekki hlot- ið framgang og í raun hjákátlegt nú viku fyrir kosningar að slík viljayfirlýsing komi fram. Í fjár- málaáætlun ríkisstjórnarinnar, sem gilda á í fimm ár og nýlega var samþykkt, kemur ekki stafur fram um þetta verkefni. Þessi viljayfirlýsing er ekki trúverðug og fyrir mörgum lítur hún út sem flottræfilsháttur, eða óstjórn, gleðigosaskapur, tild- urmennska og yfir- borðsháttur. Það er ekki einungis bygging umrædds þjóðarleikvangs sem setið hefur á hak- anum. Frjálsíþrótta- menn og knattspyrnu- menn, sambönd þeirra og félög hafa lengi kallað eftir nýjum þjóðarleikvangi fyrir frjálsar íþróttir og knattspyrnu sem ekk- ert bólar á. Svo virðist sem þeir sem við stjórnvölinn standa geri sér ekki fyllilega grein fyrir gildi íþrótta og þeim uppeldisáhrifum sem af- reksíþróttamenn geta haft á kom- andi kynslóðir, ef miða má við seinaganginn og skipulagsleysið um þessi mál. Við uppeldi á börn- um og íþróttauppeldi þýðir ekki að tjalda til einnar nætur og hefja starfið þegar barnið er komið á unglingsaldur. Allar íþróttir þurfa á afreksíþróttafólki að halda, þannig skapast áhugi með því að fylgjast með fyrirmyndum og nýtt íþróttafólk verður til. Komist Miðflokkurinn til valda í Kópavogi þá munum við einhenda okkur í að standa við það sem við boðum og vinna að uppbyggingu sem nýtist sem flestum bæjar- búum. Ég veit að forystumenn flokksins myndu ólmir bjóða fram krafta sína til að byggja upp sómasamlega landsaðstöðu fyrir íþróttafólk, inniíþrótta, sem og fyrir frjálsar íþróttir og knatt- spyrnu, ef til þess kæmi. Það er engum hollt að vera of lengi við stjórnvölinn og nú hafa ákveðnir flokkar í sveitarfélög- unum á höfuðborgarsvæðinu setið lengur en góðu hófi gegnir. Því er rétt að breyta! Ég vil því hvetja þig, kjósandi góður, til þess að greiða Mið- flokknum atkvæði þitt. Við störf- um sem einn samheldinn hópur um allt land og hugsun okkar er skýr. Við munum gera það sem við segjumst ætla að gera! Það höfum við sýnt og sannað, t.d. í Icesave! Merktu X við M í sveitarstjórn- arkosningunum 14. maí og vertu velkominn í kosningakaffi hring- inn um landið. Eftir Unu Maríu Óskarsdóttur Una María Óskarsdóttir » Það er hjákátlegt nú viku fyrir kosningar að slík viljayfirlýsing komi fram, en ekki er stafur um málið í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar! Höfundur var formaður íþróttaráðs Kópavogs í 11 ár. Er aðstoðarmaður Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar og skipar 3. sæti á lista Miðflokksins og óháðra í Kópavogi. Ákvarðanir og loforð rétt fyrir kosningar eða flottræfilsháttur? 13 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 2022 Hvernig til tekst við rekstur og þjónustu sveitarfélaga hefur bein áhrif á lífskjör okkar allra. Í sumum sveit- arfélögum hefur tekist að samþætta hófsemd í opinberum álögum og gjöldum við öfluga þjónustu. Í öðrum (og þau eru því miður of mörg) eru álögur í há- marki en íbúarnir fá ekki þá þjónustu sem þeir ætlast til að sveitarfélagið veiti. Ég hef áður gert það að umtalsefni á þessum síðum að hugmyndafræði skipti ekki síður máli við stjórnun sveitarfélaga en við ríkisreksturinn. Þar takast á hugmyndir um hvort íbú- arnir njóti valfrelsis í samgöngu- málum, húsnæðismálum og skóla- málum eða hvort stjórnlyndi ráði för. Sveitarstjórnarmaður sem leggur áherslu á aðhaldssemi í rekstri gefur ekki út kosningavíxla eða undirritar viljayfirlýsingar um hitt og þetta, sem lítil innistæða er fyrir – ekki einu sinni í aðdraganda kosninga til að fá af sér huggulega ljósmynd. Stjórn- málamaður sem berst fyrir sífellt auknum útgjöldum hefur litlar áhyggjur af þungum álögum á íbúana. Áhugi hans snýst um að láta engin tækifæri til tekjuöflunar fram hjá sér fara og ef nauðsynlegt er að skuld- setja sveitarsjóð. Í aðdraganda sveitarstjórnarkosn- inga er ekki óeðlilegt að mesta athygl- in beinist að höfuðborginni – lang- stærsta sveitarfélagi landsins. Það skiptir ekki aðeins Reykvíkinga máli hvernig til tekst við rekstur borg- arinnar heldur eiga allir landsmenn beint eða óbeint mikið undir því að þar takist vel til. Blómleg, vel skipulögð og hrein höfuðborg er metnaðarmál allra. Gengið á eigið fé Samfylkingin hefur verið leiðandi í meirihluta borgarstjórnar allt frá árinu 2010. Fyrst í samstarfi við Besta flokkinn en síðan í bræðingi annarra vinstri flokkanna; VG, og Pírata og Viðreisnar síðustu fjögur ár. Frá 2014 hefur Dagur B. Eggertsson verið borg- arstjóri en fjögur ár þar á undan var hann for- maður borgarráðs. Hægt er að nota ýmsa mælikvarða á hvernig til hefur tekist á þessu valdatíma vinstri manna í borginni. Samgöngu- mál eru í ólestri. Loforð um gríðarlega uppbygg- ingu leiguíbúða hafa ekki staðist. Skipulagsmál hafa leitt til ófremdar- ástands á íbúðamarkaði. Viðhaldi skóla hefur ekki verið sinnt. Barna- fjölskyldur fá ekki nauðsynlega þjón- ustu og þannig má lengi telja. Og ekki hefur tekist vel í rekstri borgarsjóðs. Skattstofnar Reykjavíkur, líkt og flestra annarra sveitarfélaga, hafa styrkst verulega á síðustu árum. Út- svarsstofn einstaklinga hefur hækkað hressilega vegna launahækkana og grunnur fasteignagjalda hefur stór- hækkað vegna þróunar fasteignaverðs. Meirihlutinn í Reykjavík hefur ekki séð ástæðu til þess að nýta þetta tæki- færi – hagstæða þróun – til að slaka ör- lítið á klónni. Þegar litið er á rekstur A- hluta borgarsjóðs er það skiljanlegt. Uppsafnaður halli frá 2014 er um 14 þúsund milljónir króna á föstu verð- lagi. Tekjurnar duga sem sagt ekki fyrir grunnrekstri borgarinnar. Skuld- ir aukast og gengið er á eigið fé. Borg- arsjóður er ósjálfbær og þar að treysta á afkomu fyrirtækja í B-hluta. Borgin gefur lítið eftir við að afla sér fjár með sköttum eða þjónustu- gjöldum. Útsvarið er eins hátt og lög leyfa og mun hærra en í mörgum minni sveitarfélögum, sem njóta ekki hagkvæmni stærðarinnar sem Reykjavík ætti að búa við væri rétt staðið að málum. Í viðtali við DV í október 2015 hélt borgarstjóri því fram að Reykjavík glímdi við tekjuvanda – útgjaldavandi væri ekki til staðar. Ári síðar taldi borgarstjóri rétt að borgin fengi sér- staka ríkisaðstoð til að hægt væri að skipta út eitruðu dekkjakurli á íþróttavöllum barna og unglinga. Tekjuvandinn kom hins vegar ekki í veg fyrir „bragga-ævintýrið“. Skuldir hækkað um 87% „Tekjuvandi“ A-hluta borgarsjóðs er ekki meiri en svo að tekjurnar hafa hækkað um 43% að raunvirði frá 2014. Eftir 12 ára valdatíma vinstri flokkanna glímir borgarsjóður við út- gjalda- og skuldavanda, þar sem eigið fé er étið upp: - Árið 2021 voru skatttekjur Reykja- víkur liðlega 33 þúsund milljónum krónum hærri á föstu verðlagi en 2014 – árið sem Dagur B. Eggertsson settist í stól borgarstjórna. Raun- hækkunin var tæplega 43%. Sé litið aftur til ársins 2010 þegar þeir fé- lagar Jón Gnarr og Dagur B. tóku við völdum í Reykjavík þá voru skatt- tekjurnar um 41 þúsund milljónum hærri á síðasta ári. - Í heild voru rekstrartekjur A-hluta borgarinnar liðlega 42 þúsund millj- ónum hærri á liðnu ári en 2014 og nær 58 þúsund milljónum sé miðað við 2010. - Á föstu verðlagi voru tekjur A- hluta borgarsjóðs um 970 þúsund krónum hærri á hverja fjögurra manna fjölskyldu 2021 en 2010, þar af skatttekjur 717 þúsund. - Í borgarstjórnartíð Dags B. Egg- ertssonar hefur launakostnaður A- hluta hækkað um 60% að raunvirði eða rúmlega 32 þúsund milljónir. Hlutfall launakostnaðar af tekjum hefur farið úr 53,6% í 60,4%. - Rekstrargjöld á hverja fjögurra manna fjölskyldu voru 674 þúsund krónum hærri á síðasta ári en 2014 – á föstu verðlagi. Í heild hækkuðu gjöldin um nær 35 þúsund milljónir króna að raunvirði. - Að raungildi hafa skuldir borgar- sjóðs hækkað um 87% eða um rúm- lega 67 þúsund milljónir króna. Þetta jafngildir rúmlega 1,7 milljóna króna skuldaaukningu á hverja fjögurra manna fjölskyldu. - Eigið fé borgarsjóðs hefur rýrnað um tæplega 13 þúsund milljónir króna á föstu verðlagi frá 2014. Eigin- fjárhlutfallið hefur lækkað úr 58% ár- ið 2014 í 39% í lok síðasta árs. Það er borin von að álögur á borg- arbúa lækki á komandi árum haldi nú- verandi meirihluti velli – enn eitt vara- dekkið breytir þar engu. Útsvarið lækkar ekki, þjónustugjöld lækka ekki. Þjónusta borgarinnar verður ekki betri. Samgöngur verða áfram í ólestri og þar skiptir engu þótt gömul kosningaloforð um stokk séu endur- nýjuð. Bolmagn borgarinnar til að ráð- ast í nauðsynlegar fjárfestingar í hag- ræðum og félagslegum innviðum verður takmarkað. Á sama tíma styrkjast nágrannasveitarfélögin. Um- svifamikil uppbyggingin er fram und- an í Mosfellsbæ. Haldið verður áfram að lækka álögur á íbúa í Kópavogi og Hafnarfirði. Á Seltjarnarnesi verður útsvarið lækkað. Í Garðabæ njóta íbú- ar hófsemdar í álögum. Í öllum þessum sveitarfélögum verður góð þjónusta aukin með óbreyttum meirihlutum. Í kjörklefanum á laugardaginn velja kjósendur um allt land á milli ólíkra hugmynda. Niðurstaðan hefur áhrif á lífskjör okkar allra á komandi árum. Eftir Óla Björn Kárason »Það er borin von að álögur á borgarbúa lækki á komandi árum haldi núverandi meiri- hluti velli – enn eitt vara- dekkið breytir þar engu. Óli Björn Kárason Höfundur er alþingismaður Sjálfstæðisflokksins. Valfrelsi, stjórnlyndi, hófsemd og skuldsetning Borgarsjóður Reykjavíkur í vanda Rekstur og efnahagur A-hluta 2021 vs 2014* Tekjur hafa hækkað gríðarlega að raunvirði: Skatttekjur um 33.136 Aðrar tekjur 9.020 Samtals m.kr. 42.156 ... en rekstrargjöldin enn meira: Rekstrarkostnaður samtals 34.660 Launakostnaður 32.262 ...og rekstrarniðurstaðan er neikvæð: Uppsöfnað 2014 til 2021 -13.986 ...og því hafa skuldir hækkað: Skuldaaukning frá 2014 67.407 og eigið fé rýrnað -12.858 *Milljónir kr. á föstu verðlagi m.v. neysluverð 2021 Nokkrar lykiltölur A-hluta Reykjavíkur 2014-2021, á föstu verðlagi í þúsundum króna á íbúa 2014 2015 2016 2017 2018 2019 2020 2021 Breyting frá 2014 Fjöldi íbúa 121.814 122.452 123.133 126.109 128.724 131.146 133.181 135.681 13.867 Skatttekjur 635 665 717 766 797 813 806 814 179 Rekstrartekjur samtals 822 874 944 1.043 1.030 1.010 1.009 1.049 227 Laun og launatengd gjöld 440 472 485 550 543 558 599 633 193 Rekstrargjöld alls 850 958 875 961 943 959 1.010 1.019 169 Skuldir 634 775 787 889 930 919 971 1.066 432 Ég hitti alþingis- mann á förnum vegi á dögunum og tókum við tal saman. Hann er þingmaður flokks sem um þessar mund- ir er í stjórnarand- stöðu. Talið barst að störfum þingsins. Hann sagði mér að forysta flokks síns ætlaðist til þess að hann tæki þátt í and- ófi gegn ríkisstjórninni, hvert sem málefnið væri og hvaða skoðun hann kynni að hafa á því. Hann sagði mér að flokksfélagar hans leituðust við að vinna svona. Þeir settu á langar ræður, sem ekki þjónuðu neinum öðrum tilgangi en þeim að andæfa ríkisstjórninni. Þetta gerðist m.a. í málum sem þeir væru hlynntir en teldu skyldu sína að mótmæla og tefja fyrir vegna þess að þeir væru í stjórn- arandstöðu. Þetta eru slæm tíðindi. Sést hef- ur að vísu séð málþóf í þinginu sem engum tilgangi virðist þjóna. Þetta er hins vegar í fyrsta sinn sem ég heyri vitnisburð um að forysta stjórnarandstöðuflokka ætlist til þess að þingmenn þeirra viðhafi framferði af þessu tagi. Viðmælandi minn kvaðst að vísu ekki taka þátt í þessu sjálfur en félagar hans í þingflokknum gerðu það í stórum stíl. Stundum stæðu þingfundir miklu lengur en þörf væri á vegna þess að málþófsmenn misnot- uðu málfrelsi sitt á þennan hátt. Þeir þingmenn sem taka þátt í svona fram- ferði ættu að skilja að þeir skaða trúverðug- leika sinn með því. Það er eins og þeir haldi að almenningur sem fylg- ist með sé sauðheimsk- ur og sjái ekki í gegn- um ruglið. Það er mikill misskilningur. Það er ekki ólíklegt að fólkið í land- inu missi trúna á heiðarleika þing- manna sem haga sér svona og taki síður mark á þeim þegar þeir segja eitthvað sem þeim sjálfum finnst skipta raunverulegu máli. Ég ráðlegg þeim því að láta af þessum vinnubrögðum. Það er ekk- ert athugavert við að fallast á rétt- mæti þingmáls sem maður er hlynntur, þó að þingmaður eða ráð- herra úr öðrum flokki flytji það. Með því hækka þeir bara í áliti en lækka ekki, eins og þeir virðast telja. Þeir fórna trú- verðugleika sínum Eftir Jón Steinar Gunnlaugsson Jón Steinar Gunnlaugsson » Það er ekki ólíklegt að fólkið í landinu missi trúna á heiðar- leika þingmanna sem haga sér svona. Höfundur er lögmaður.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.