Morgunblaðið - 11.05.2022, Síða 14

Morgunblaðið - 11.05.2022, Síða 14
14 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 2022 Kæru Kópavogs- búar. Það hefur sennilega ekki farið fram hjá neinum, sem fylgist með kosningabaráttu sveitarfélaganna, að húsnæðismál næstu 5- 10 árin eru eitt helsta og mikilvægasta mál- efnið. Ástæðan er ein- föld og augljós. Allir eiga skilið að hafa þak yfir höfuðið og sá streituvaldur sem fylgir óöryggi með húsnæði er nokk- uð sem enginn á að þurfa að upplifa. Kópavogur hefur staðið framar öðr- um sveitarfélögum hvað varðar byggingu nýrra íbúða síðastliðin 10 ár, en húsnæðisskortur er samt sem áður gríðarlegur og það er verkefni sem þarf að takast á við. Þegar þessi grein er skrifuð eru samtals 29 íbúðir til sölu í fjölbýli og það í öllum Kópa- vogi, sem telur í dag tæplega 40.000 íbúa. Þegar litið er til leigumarkaðar bæjarins er staðan enn verri og sam- kvæmt upplýsingum á fasteignir.is eru einungis fjórar íbúðir í boði. Við vitum öll að þetta er staða sem ekki verður við unað og hún þýðir að- eins eitt: Næsta bæjarstjórn þarf að vanda gríðarlega til verka og fara gaumgæfilega yfir hvernig íbúðir á að byggja og ekki síst fyrir hverja. En hvað er hægt að gera? Síðast- liðna mánuði hafa vextir verið hækk- aðir verulega sem virðist þó ekki hafa tilætluð áhrif, því fasteignaverð heldur áfram að hækka í hverjum mánuði. Landsbankinn og Ís- landsbanki létu frá sér greiningu í maí 2021 og gerðu ráð fyrir 7% hækkun á árinu 2022. Hækkunin er hins veg- ar nú þegar 7,4% og það bara á fyrstu 3-4 mánuðum ársins og fá- ir, ef einhverjir, sem gerðu sér grein fyrir hversu mikil áhrif heimsfaraldur myndi hafa. Erfiðast að kaupa fyrstu eign „Hvernig getur verðið hækkað endalaust?“ og „hvernig hefur fólk efni á þessu?“ eru spurningar sem ég fæ næstum daglega í mínu starfi. Svörin geta verið mörg en mín svör eru eftirfarandi: Um 80% kaupenda eiga fasteign fyrir. Sú eign hefur hækkað um 20 milljónir síðastliðin tvö ár og eignin sem viðkomandi kaupir hefur sömuleiðis hækkað um 20 til 30 milljónir. Fólk selur á háu verði og kaupir á háu verði og því eru um 80% af kaupendum í sama bátn- um. Stóra vandamálið liggur hjá þeim sem eru að kaupa sína fyrstu eign og þar viljum við sjá breytingar. Margar skýringar er að finna á þess- ari miklu hækkun síðastliðin 2-3 ár; áðurnefndur heimsfaraldur, lágir vextir, auk annarra þátta, en ein helsta skýringin er allt of lítið fram- boð. Vandinn stór og krefst úrlausnar Flestir eru sammála um þörfina og telja að byggja þurfi 4.000 íbúðir á ári næstu 10 árin (á landinu öllu), en þess má geta að einungis fjórum sinnum frá aldamótum hefur okkur tekist að byggja 3.000 íbúðir á ári. Aðeins sú staðreynd lýsir mögulega stærðargráðu vandamálsins sem blasir við og krefst bráðrar úrlausn- ar. Staðan er að við Kópavogsbúar getum byggt um fjögur til fimm þús- und íbúðir á næstu 10-15 árum. Svæði sem horft er til eru Glaðheim- ar, Vatnsendahlíð, Vatnsendahvarf og þéttingarreitir við Auðbrekku, Hamraborg og Kársnes. Eftir að því lýkur er eina leiðin til að byggja meira að kaupa af öðrum sveitar- félögum land sem liggur nálægt Kópavogi. Þétting byggðar er hins vegar flókin í framkvæmd. Hver vill láta þétta byggð beint fyrir framan sig? Hver vill missa útsýnið sitt? Hver vill fleiri bíla? Samt sem áður þarf að þétta byggð og huga um leið að heild- arhagsmunum Kópavogsbúa. Þeir íbúar sem búa á þéttingarreitum verða fyrir ónæði á byggingartíma og þess vegna þarf gríðarlega mikið samráð við íbúa og reyna eftir fremsta megni að klára verkefnin á sem skemmstum tíma. Einn ljós punktur fyrir íbúa á þéttingarreitum er sá að fasteignaverð hækkar mikið í þeim hverfum þar sem byggð er þétt með nýjum íbúðum, veitinga- stöðum o.fl. En fyrir hvaða hóp á að byggja og hvernig íbúðir? Sextíu ára og eldri eru um 20% íbúa Kópavogs en síðast- liðin 10 ár hefur einungis eitt fjöl- býlishús verið byggt fyrir þann hóp, við Sunnusmára. Við viljum byggja íbúðir fyrir fólkið sem byggði upp bæinn okkar, fjölbýlishús með sam- bærilegri þjónustu og við Gullsmára og/eða Boðaþing. Þörf á slíkum íbúð- um blasir við því engin svoleiðis eign er til sölu. Að sama skapi þarf að byggja íbúðir fyrir unga Kópavogs- búa sem vilja búa í bænum okkar og hafa lítið sem ekkert val og auðvitað fyrir barna- og fjölskyldufólk. Það þarf að byggja fyrir alla aldurshópa Raðhús, parhús og einbýli eru orð- in það dýr að fáir ráða við svoleiðis eignir. Það þarf að byggja fimm her- bergja íbúðir (fjögur svefnherbergi) sem er sami fjöldi herbergja og í flestum rað-, par- og einbýlum fyrir fjölskyldufólk. Það þarf að byggja til- tölulega litlar og vel skipulagðar íbúðir fyrir þá sem yngri eru og svo íbúðir með færri herbergjum en stærri alrýmum fyrir þá sem eldri eru. Hvað með byggingarkostnað? En er hægt að lækka bygging- arkostnað? Væri hægt að byggja ódýrari íbúðir í Kópavogi? Er hægt að stytta byggingartíma? Er hægt að hraða lóðaframboði og hraða fram- kvæmdum? Á Kópavogsbær að selja einbýlishúsalóðir sem einungis örfá prósent íbúa geta keypt? Eða á að byggja fjórbýli á einbýlishúsalóðum sem kæmi út í svipuðu bygginga- magni en fleiri íbúðum? Þetta eru allt spurningar sem næsta bæjarstjórn þarf að svara með heildarhagsmuni íbúa í huga. Lausn á þessu aðkallandi vanda- máli er að: - auka framboð strax - þétta byggð – þar sem það er hægt - brjóta land og búa til lóðir - stytta alla ferla því of langur tími fer í að fá teikningar samþykktar, byggingarleyfi, eignaskiptasamn- inga og annað því tengt - auka svigrúm á íþyngjandi bygg- ingarreglugerðum - passa upp á að ferlið sé skilvirkt og taki ekki of langan tíma - fara yfir kröfur skipulagsráðs sem eru mögulega of stífar, en flóknar byggingar hækka byggingar- kostnað - skoða mögulega á að einfalda deiluskipulagið þannig að hægt sé að byggja hagkvæmara húsnæði Húsnæðisvandi er staða sem ekki verður við unað og þýðir, eins og áð- ur sagði, að næsta bæjarstjórn þarf að vanda afskaplega vel til verka. Þar er gríðarleg reynsla og þekking á húsnæðismarkaði mikilvæg. Eftir Hannes Steindórsson »Húsnæðisvandi er staða sem ekki verður við unað. Hannes Steindórsson Höfundur skipar fjórða sæti Sjálf- stæðisflokksins í Kópavogi og hefur unnið sem fasteignasali í rúm 18 ár. Hvernig leysum við húsnæðisvanda í Kópavogi? Á dögunum birti sr. Gísli Gunnarsson í Glaumbæ ágæta grein í Morgunblaðinu (5.5.) um Skagafjörð og Hóla. Athygli vekur þó að í síðari hluta greinar sinnar gengur hann gegn ályktun presta- og djákna- stefnu þjóðkirkjunnar sem haldin var í lok síðasta mánaðar en þaðan var send þessi áskorun: „Presta- og djákna- stefna 2022, haldin á Laugarbakka í Miðfirði 26.-28. apríl, hvetur for- sætisnefnd kirkjuþings til þess að draga til baka staðfestingu á ákvörðun kjörstjórnar um auglýs- ingu um tilnefningu og kjör nýs Hólabiskups sem birt var á vef- svæðinu kirkjan.is 22. apríl sl.“ Var hún rökstudd með því að nú væri „að störfum nefnd á vegum kirkju- þings sem meta á þörf á vígðri þjónustu kirkjunnar á landsvísu og eru embætti vígslubiskupa þar undir“. – Vissulega væri leitt ef vígslubiskupskjör og -vígsla færi fram í skugga þessarar ályktunar þeirra stétta sem málið er skyldast. Í grein sinni einfaldar sr. Gísli einnig stöðu vígslubiskupamálsins á kirkjuþingi. Hann getur aðeins um eina tillögu sem fram hafi komið á þinginu á liðnu hausti og lýsir efni hennar svo að hún hafi gengið út á að leggja niður vígslubiskupsemb- ættin í núverandi mynd. Vissulega má lýsa tillögunni svo. Allt eins má þó segja að hún hafi gengið út á að færa embættin til upprunalegs horfs sem þau höfðu frá stofnun (1909) og hartnær út tuttugustu öldina. Þar er þó um smekksatriði að ræða! Hitt skiptir meira máli að á þinginu komu fram tvær tillögur. Önnur snerist um fyrrgreinda breytingu en hin um að haldið væri óbreyttri skipan. Hvorug tillagan fékk framgang og flutningsmenn drógu báðar tillögurnar til baka. Flutningsmaður tillögunnar um breytingu, Hjalti Hugason, gerði það með bókun þar sem fram kom að hann teldi tillöguna ekki hafa fengið nægilega umfjöllun við fyrstu umræðu áður en hún fór fyrir löggjafarnefnd þingsins. Þá kom fram að hann treysti því að málefnið muni verða endurvakið í einhverri mynd á næsta kjörtíma- bili kirkjuþings. Ekki er okkur kunnugt um að aðrar bókanir hafi verið gerðar. Eins og raunar kem- ur fram í ályktun presta- og djáknastefnu er því alls ekki hægt að líta svo á að málið sé útkljáð á vettvangi kirkjuþings. Fyrrgreindar tillögur komu ekki fram að tilefnislausu. Ástæðan fyrir þeim er sú að í nýjum þjóðkirkju- lögum er ekki getið um vígslubisk- upa. Af þeim sökum verður að kveða á um stöðu þeirra í sérstök- um starfsreglum. Tilefnið var því ærið. Það er rétt sem fram kemur í grein sr. Gísla að fyrr á árinu gengu í gildi nýjar starfsreglur um kjör biskups Íslands og vígslu- biskupa. Ástæða þeirra er hin sama, þ.e. að á hverjum tíma verða að vera fyrir hendi fullgildar starfsreglur um kjör biskups. Nýju lögin kölluðu því á að slíkar reglur yrðu staðfestar sem fyrst eftir gild- istöku þeirra. Meginefni reglnanna lýtur að því hvernig staðið skuli að kjöri biskups Íslands. Þau ákvæði sem við geta átt eru síðan heim- færð upp á kjör vígslubiskupa. Af þeim ástæðum voru eins og sakir standa engar málefnalegar ástæður til að fella vígslubiskupana út úr starfsreglunum um kjörið. Af af- greiðslu þeirra er á hinn bóginn ekkert hægt að álykta um afstöðu þingsins til þess hvernig vígslubisk- upsembættunum skuli háttað í framtíðinni. Það mál bíður komandi kirkjuþings. Því má líta svo á að vígslubiskupskjör nú sé ekki tíma- bært ef þjóðkirkjan vill vanda stefnumörkun sína, ákvarðanatöku og framþróun. Þess má geta að báðar fyrr- greindar tillögur voru dregnar til baka þar sem löggjafarnefnd kirkjuþings þótti ekki tímabært að taka afstöðu til þeirra vegna vinnu nefndarinnar sem presta- og djáknastefna vísaði til og sr. Gísli situr raunar sjálfur í. Löggjafar- nefnd sendi þó frá sér einróma nefndarálit þar sem því er beint til forsætisnefndar að fresta kosningu vígslubiskups á Hólum fram yfir kirkjuþing í haust. Hún er því á sama máli og presta- og djákna- stefnan. Það er svo rétt sem sr. Gísli Gunnarsson segir í lok greinar sinnar að mikilvægt er að Hólar og Skálholt verði áfram andlegar mið- stöðvar kirkju og þjóðar. Vandséð er þó að það velti á því hvort vígslubiskupar starfi áfram á þann hátt sem tíðkast hefur frá því skömmu fyrir sl. aldamót eða á öðrum grundvelli. Eftir Hjalta Hugason og Stefán Magnússon Hjalti Hugason » Í nýjum þjóðkirkju- lögum er ekki getið um vígslubiskupa. Af þeim sökum verður að kveða á um stöðu þeirra í sérstökum starfsreglum.Tilefnið var því ærið. Höfundar sátu á kirkjuþingi sl. kjörtímabil. hhugason@hi.is / fagriskogur@nett.is Stefán Magnússon Er tímabært að kjósa vígslubiskup á Hólum? Enginn fer varhluta af mikilvægi húsnæðis- mála í komandi sveit- arstjórnarkosningum í Fjarðabyggð. Flestir ef ekki allir finna fyrir mikilli vöntun hús- næðis, sér í lagi á al- mennum markaði bæði til kaups og leigu. Frambjóðendur Sjálfstæðisflokks í Fjarðabyggð hafa kynnt metnaðarfulla stefnuskrá fyrir komandi kosningar þar sem þessi málaflokkur er sérstaklega nefndur. Þar fullyrðum við að ráðist verði í samhent átak atvinnulífs og sveitarfé- lags um uppbyggingu íbúða. Það er afar mikilvægt ef við viljum sjá Fjarðabyggð áfram blómstra. Við treystum okkur til að leiða þá fram- kvæmd og tryggja nýtt uppbygging- arskeið. Metnaðarfull uppbygging- aráform kalla á sterka forystu og sóknarhug. Hann höfum við. Við í Sjálfstæðisflokknum í Fjarða- byggð ætlum að byrja á því að koma á samráðsvettvangi byggingaraðila, at- vinnulífs og sveitarfélags með það fyrir augum að auðvelda uppbygg- ingu húsnæðis í öllum byggðakjörn- um og ná meiri fjölbreytileika í at- vinnumálum. Við munum beita okkur fyrir stuðningsaðgerðum til bygging- araðila og tryggja fjölgun íbúða. Grundvöllur þess er að tryggja nægt lóðaframboð í öllum byggðakjörnum og mæta þörfum húsbyggjenda. Þá viljum við hvetja til samstarfs um uppbyggingu húsnæðis sem hentar 60 ára og eldri. Við munum ráðast í víðtækt mark- aðsátak þar sem við kynnum meðal annars lausar lóðir og kosti þess að fjárfesta í fasteignum í Fjarðabyggð. Að sama skapi þarf að tryggja aðgang að upplýsingum um lóðirnar og kostn- að við þær. Fjarðabyggð getur farið í ákveðna forvinnu sem gerir lóðirnar seljanlegri og minnkað óvissuþætti sem fylgja sumum lóðum, sem auð- veldar íbúum og fyrirtækjum að fara af stað með byggingu húsnæðis. Við viljum tryggja hófsemi og hvatningu í gjöldum vegna húsbygg- inga. Lækka þarf álagningarstuðul fasteignagjalda á kjörtímabilinu. Að sama skapi ætti að leggja á sann- gjarnt vatnsgjald og taka mið af raunkostnaði en ekki húsnæðisverði. Vatnsgjald skyldi taka mið af stærð húsnæðis en ekki verðmæti. Að endingu viljum við aðstoða og búa til hvata til að auka nýtingar- möguleika húsnæðis með það fyrir augum að fjölga leiguíbúðum á al- mennum markaði. Fjarðabyggð hefur alla burði til að vaxa og styrkjast. Það kallar á metn- að og kraft í uppbyggingu húsnæðis. Úr því verður að bæta því það er ekki hægt að sætta sig við lengri bið eftir uppbyggingu í húsnæðismálum og fjölgun í sveitarfélaginu, hættum að tala um hlutina og byrjum að fram- kvæma. Það verður best gert með sóknar- hug Sjálfstæðisflokksins. Um hann verður kosið 14. maí nk. Kosið um húsnæðis- mál í Fjarðabyggð Eftir Ragnar Sig- urðsson og Heimi Snæ Gylfason Ragnar Sigurðsson » Fjarðabyggð hefur alla burði til að vaxa og styrkjast. Það kallar á metnað og kraft í upp- byggingu húsnæðis. Höfundar skipa 1. og 5. sæti á fram- boðslista Sjálfstæðisflokksins í Fjarðabyggð. Heimir Snær Gylfason

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.